Rödd fólksins - Vestmannaeyjum - 14.01.1938, Blaðsíða 1

Rödd fólksins - Vestmannaeyjum - 14.01.1938, Blaðsíða 1
1. árg. VESTMANNAEYJUM 14. JANIJÁIt 1938. Hafaarmál Vestmannaeyj Eftir Pál Þorbjömsscn Vestmannaeyjar eru fiskiveiða- bær og engar líkur eru til að af- koma ibúanna geti á öðru byggst í framtíðinni en fiskiveiðum, og þvi sem þeim fylgir. Þróun fiski- veiðanna hefir frá fyrstu tíð liér sem annarsstaðar byggst á því, að hafnarskilyrðin yrðu bætt. Þessa nauðsyn sáu Vestmannaeyingar og réðust því í þau stórfeldustu liafnarmannvirki, sem enn hefir verið ráðist í hér á landi. Því þótt meira fé liafi verið varið lil hafn- armannvirkja á öðrum stað, sem sé Reykjavik, þá eru það í sjálfu sér smámunir samanborið við í- búafjöldann og þá möguleika til að afla frá liöfninnni tekna frá íbúunum og atvinnutælcjum þeirra. Þrátt fyrir það, að svoua mikið fé er komið í Vestmanna- eyjahöfn er ekki lengra komið enn en það, að floti okkar ber þess Ijós merki, að mikið vantar á enn að liöfnin sé fullkomin. Vest- mannaeyjar eru nú stærsti fisk- veiðabær landsins, en þær eiga ein- göngu smá skip, og þó eingöngu sé miðað við vélskip (mótorskip), sést að við eigum tiltölulega smænú skip en flestir aðrir út- i s I I í \ i I i i I í I. i ( } t 1 ! i i i gerðarbæir, sem nokkuð kveður að. Höfnin liefir takmarkað skipa- stærðina. Með hnignandi saltfisk- íramleiðslu liefir nauðsynin fyrir et-ærri báta aukist, þvi til dæmis síldveiðarnar krefjast stærri skipa en við yfirliöfuð eigum. Allir eru nokkurnveginn sam- mála um, að viðgangur Eyjanna byggist á því, að haldið verði á- fram með hafnargerðina, og þá sérstaklega dýpkunina og uppfyll- ingu í sambandi við hana. En jafn- íramt má það öllum vera ljóst, að sá floti, sem fyrir er, getur illa staðið undir þeim útgjöldum, sem liöfnin nú þarf á að halda, livað þá heldur þegar við bætist. Allir Vestmannaeyingar standa nndir hafnargerðinni og ættu því í raun og veru allir að njóta góðs af henni. Að nokkru leyti er það líka svo, en að öðru levti vii’ðist svo sem bætt aðstaða við höfnina hafi ekki komiðl almenmngi að gagni, heldur orðið einstaka mönnum til framdráttar. Upp- skipuanrgjöldin bafa ekki lælckað Rættrar aðstöðu við uppskipun skipun kola, salts og fleira virðist Frh. á 4. síðu. Málefnasanmmg'iir iim. vinstri sMnvimm í bæj- amálnM Vestmaona- eyja næstu fjögur ár Að undangengnu nefndarstarfi og fundum Alþýðuflokksins og Kommúnistaflokksins í Vest- mannaeyjum, þar sem rætt liefir verið um vinstri samvinnu i bæj- armálum Eyjanna fyrir næstu 4 ár, liafa kommúnistar og jafnað- armenn áltveðið að bafa sameig- inlega uppstillingu lista við bæj- arstjórnarkosningamar 30. janúar n. k. og' gert með sér málefna- samning, sem felur i sér þau mál er flokkarnir telja brýnasta nauð- syn á að barist verði fyrir á næsta kjörtímabili. Fara þau hér á eftir: 1. Núverandi bæjarmálaóreiðu verði útrýmt. Fjármálum bæjar- ins komið á hreint. Regla og festa í stjórn og starfrækslu bæjarins á grundvelli aukins lýðræðis í bæjarmálum. Allar fastar stöður verði auglýstar til umsóknar og liinir liæfustu menn valdir til livers starfa. 2. Gagngerð breyting á stefnu bæjarins í framfærslu- og at- vinnumálum. Útrýmt verði vöru- ávísanaokrinuj. Hamlað 1 verði gegn hinu sívaxandi fátækrafram- færi með þvi að auka vinnuna í bænum, svo sem með því að liafa forgöngu um stofnun iðnaðarfvr- irtækja á sviði sjávarútvegsins, rannsókn á fiskimiðum og hag- nýtingu aflans í samráði við Fiski- málanefnd og rikisstjórn. Enn- fremur með auldnni bæjar- og at- vinnubótavinnu undir kjörorðinu atvinna i stað styrkja til þeirra, sem geta unnið. 3. Verklegar framkvæmdir verði auknar með verulegum end- urbótum gatna og liolræsakerfis og verði það eingöngu liaft fyrir augum livar endurbótanna er mest þörf. Sjóveitan verði aukin með það fyrir augum, að hún lcomist um allan bæinn. Ilafist verði handa um byggingu verka- mannabústaða. 4. Hafnarmannvirkin verði aukin og liöfnin dýpkuð svo hún verði fær fiski- og flutningaskip- um. Kappkostað verði að Vest- mannaeyjahöfn gcti boðið fiski- flotanum, sem stundar veiðar • Frh. á 4. siðu. Haraldur Bjarnason. Guðmundur Sigurðsson. Jón Rafnsson. Guðlaugur Hansson. Sex efstu xnezm 4 lista vinstri masma Allir þessir menn eru kunnir hverjum einasta Vestmanneying, sem fullirúar alþýðunnar og ötul- ir baráttumenn gegn afturhalds- óreiðunni i málefnum bæjarins. Allir liafa þeir slarfað i bæjar- stjórn og að bæjarmálum árum saman við ágætan orðstír, sumir jteirra, eins og t. d. efsti og sjötti maður listans, Isleifur Ilögnason og Guðlaugur Hansson, frá 1923 og fram á þennan dag. Menn þess- ir eru því allir þaulkunnugir bæj- armálum Vestmannaeyja, og fyr- ir allra hluta sakir manna hæfast- ir til að ráða fram úr úrlausnar- efnum bæjarfélagsins með liag fjöldans fyrir augum. Listi vinstri manna er að öðru leyti skipaður slíku mannavali, að bæjarbúar geta sannarlega vel við unað, hvað varamennina snertir. Er þetta, sem að framan er sagt um A-listann, sízt of mælt, en þó það, sem enginn getur með sanni sagt um hina listana, hvorki um lista stóra íhaldsins né fylgihnatta þess, nazistana og Helga Ben.- listann.

x

Rödd fólksins - Vestmannaeyjum

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rödd fólksins - Vestmannaeyjum
https://timarit.is/publication/409

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.