Alþýðublað Hafnarfjarðar


Alþýðublað Hafnarfjarðar - 28.04.1951, Blaðsíða 2

Alþýðublað Hafnarfjarðar - 28.04.1951, Blaðsíða 2
2 ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAK Söluhorfur á freð- fiski erlendis Síðastliðið ár var fluttur út freð- fiskur fyrir 80Á millj. ísl. króna. Er það annar hæzti útflutningsliður- inn það ár. Verkaður og óverkaður saltfiskur var fluttur út fyrír 87 millj. króna. Stærsti kaupandinn að freðfisk- inum var Amerika, sem keypti fyr- ir 35 millj. króna. Fryst karfaflök var stór liður í þeim útflutningi. Útlit er fyrir mikla sölu, í Ameríku, á þessu ári á ýsu-, karfa- og steinbíts flökum, fyrir viðunandi verð. Hins vegar er nokkuð óviss sala á þorskfl. nema þá helzt í eins punds um- búðum, en sárfá frystihús hafa að- stöðu til þeirrar framleiðslu. Til þess þarf dýrar pökkunarvélar, sem kosta á annað hundrað þúsund kr. stykkið. Það liggur í hlutarins eðli, að til þess að halda velh í samkeppn inni þar vestra, verða fleirri frysti- hús að fá þessar dýru vélar, því þá opnast ennþá stærri markaður fyrir hraðfrysta fiskinn í Ameríku. Ekki er ólíklegt að hægt verði að selja 6—8 þús. lestir af karfa- flökum þar vestra á þessu ári og myndi það magn, ef vel tekst með söluna, gefa gjaldeyri, sem nema myndi 40—50 millj. króna. Mestur hluti þessara uphæðar yrði eftir í landinu fyrir hráefni og vinnulaun, því vinnulaun við karfavinnslu eru mikil, vegna þess hve hann er sein- unninn og mikillar vandvirkni þarf að gæta við vinnslu hans. Vara þessi er þegar vel þekkt í Ameríku og hefur líkað ágætlega, heilir farmar úr „Fossunum" selzt á svipstundu. En alvarlegar kvart- anir hafa komið út af einu atriði í meðferð vörunnar og er það um 'lélega hreinsun, því allt hreistur þarf að fjarlægja áður en fiskinum er pakkað í fallegar umbúðir. Hefur nú verið gerð gangskör að því í hverju einasta frystihúsi, að bæta úr þessum ágalla og verður þeim húsum bannað að framleiða karfaflök, sem ekki gæta þessa. Selt hefur verið nokkuð af þorsk- flökum til Ameríku. Þá hafa verið seldar 2000 lestir af þorskflökum til ísrael og svipað magn til Bret- lands. Búast má við sölu á svipuðu magni og áður til Tékkóslóvakíu. Unnið er að sölu til Ungverjalands en ennþá er óvíst um árangurinn. Þá verður reynt að komast inn á þýzka markaðinn og hafður „Iager“ í Hamborg, og fiskurinn sendur inn í landið frá þeim „lager", eftir því sem pantanir berast. Samkvæmt umsögn umboðs- manna frystihúsanna erlendis, lík- ar islenzki fiskurinn allsstaðar vel, mnn hetur en fiskur keppinaut- Sitt af hverju .... SKÁK *---- ' Rossolimo teflir í Hafnarfirði ÁBURÐARVERKSMIÐfAN. — Heyrst hefur, að mjög hafi komið til álita að reisa hina nýju áburðarverksmiðju hér í Hafnarfirði. Sérfræðing- amir tveir frá Ameríku, eru sagðir þeirrar skoðunar, að Hafnarfjörður sé einna bezt fallinn þeirra staða, sem um er að ræða, fyrir verksmiðjuna. ÞRÍR F.U.J.-FÉLAGAR. — Þrír meðlimir úr F.U.J. í Hafnarfirði, þeir Ólafur Friðjónsson, Jón Már Þorvaldsson og Ólafur Sigurðsson hafa í vetur tekið þátt í leiklistarstarfsemi þeirri, sem rekin er á vegum Klemenz- ar Jónssonar leikara. Þeir hafa einnig komið fram opinberlega og skemmt með leik sínum við ýms tækifæri, nú í vetur. Hafa þeir getið sér hins bezta orðstýrs með frammistöðu sinni og sýnt mikla og ótvíræða hæfi- leika á sviði leiklistar. FORUSTUKLÍKAN SPARKAR. — Síðan hin nýja forustuklíka Sjálf- stæðisflokksins hér í bæ, náði völdum í flokki sínum, hefur hún sparkað eða bolað eftirtöldum Sjálfstæðismönnum úr trúnaðarstöðum, sem bæj- arstjórnin veitir: Lofti Bjarnasyni, úr bæjarstjórn og íþróttanefnd, Þor- leifi Jónssyni, úr bæjarstjórn, bæjarráði og hafnarnefnd, Jóni Gíslasyni, úr útgerðarráði, og Guðjóni Magnússyni, úr niðurjöfnunarnefnd ásamt Sigurði Kristjánssyni. VATNSVEITAN. — Bæjarverkfræðingurinn mætti á bæjarráðsfundi fyrir skömmu. Taldi hann að vonir stæðu til þess, að hin nýja vatnsveita yrði fullbúin í júnímánuði næstkomandi. HIN NÝJA FORUSTA AÐ VERKI. — Helztu menn hinnar nýju forustu- klíku íhaldsins hér í bæ, eru eins og kunnugt er: Stefán Jónsson (fyrrv. n.......) og Páll Víðdalín Daníelsson „(tertu)“-ritstjóri. Þessir menn töldu útgerðafrráð betur skipað með brottrekstri Jóns Gíslasonar útgerðarmanns og skipun Stefáns Jónssonar í hans stað. En bæjarbúum er kunnugt, að Stefán er þekktur af allt öðru en því, að fást við útgerð. Guðjón Magnússon, skósmíðameistari, er gamalkunnur og vel kynnt- ur ITafnfirðingur. Hann ráku þeir úr niðurjöfnunarnefnd, til að koma þar að Páli Vídalín, ritstjóra, sem fáir bæjarbúar þekkja, aðrir en þeir, sem lesa Hamar, og er viðkynning hans eftir því, og því ekki á marga fiska. Þess skal geta að Stefán og Páll verða nokkrum krónum rikari með því að skipa sjálfa sig í þessar nefndir, þar sem nefndarstörf þessi eru launuð. anna, enda víða' keyptur bærra verði. Þarf að vinna að því að fjölhæfa framleiðsluna, selja fiskinn frystan, saltaðan, svo og óverkaðan, að ein- hverju leyti, og þurrkaðan. Þá væri nauðsynlegt að niðursuða fiskaf- urða skipaði veglegri sess í utflutn ingnum en nú er. Hér er gnægð af liráefni til nið- ursuðu, annað en þorskur, t. d. rækjur, kræklingur, kúfiskur, vatna- fiskur o. m. fl. Norðmenn flytja út fyrir hundruð milljónir króna á hverju ári, á sama tíma nemur okk- | ar útflutningur á niðursoðnum fisk- afurðum 1—2 millj. króna á ári. Bankavaldið fordæmir þessa at- vinnugrein og þegar það leggst á móti, eru leiðimar lokaðar. Er það illt til afspurnar og á eftir að hefna sín grimmilega. Eftir því sem framleiðslan er f jöl- breyttari, þess meiri atvinna í land- inu og betri lífsskilyrði fyrir þá, sem landið byggja. EKKI VANTAR SAMRÆMIÐ — Stór atvinnurekandi og framá- maður í Sjálfstæðisfl. kom inn á hálfopinberan stað. Þar hélt hann langa og stranga tölu um óbilgimi verkamanna og annarra launþega og óskammfeilni þeirra um, að heimta fulla vísitölu greidda á laun sín. Nokkrum dögum áður en þetta skeði, hafði Fjárhagsráð samþykkt að afnema verðlagseftirlit með starf semi þeirri, sem þessi atvinnurek- andi starfrækir. Strax, þegar Fjárhagsráð hafði af numið verðlagseftirlit á starfsemi þessa aðila, hækkaði hann álag sitt um hærri upphæð en þá, sem laun- þegar fara fram á. Það er ekki amalegt fyrir laun-- þega að treysta forsjá þessara manna. Fegrunarfélag var stofnað hér í bænum síðastliðinn sunnudag. Verð ur þess nánar getið síðar. Skákmeistari Frakklands, Nicolas Rossolimo, sem kom hingað til lands í boði Taflfélags Reykjavíkur, telfdi fjöltefli sunnud. 25. febrúar við fé- laga í Taflfélagi Hafnarfjarðar. — Rossolimo tefldi á 31 borði, og tap- aði hann aðeins einni skák og gerði fimm jafntefli. Taflfél. Hafnarfjarð- ar sendi sitt sterkasta lið á móti skáksnillingnum, og má með sanni segja, að útkoman sé hin glæsileg- asta fyrir hann, þar sem ýmsir okk- ar beztu manna töpuðu. Hér fer á eftir skák sú, sem Rossolimo tap- aði, fyrir Guðm. Þorlákssyni loft- skeytamanni: Hvítt: Svart: Rossolimo Guðm. Þorlákss. 1. e2—e4 d7—d5 (Þessu er sjaldan leikið á svart, því að opnun taflsins á þessu stigi er hvítum í hag sé nákvæmt leikið). 2. e4xd4 Rg8—f6 3. c2—c4 c7—c6 4. d2—d4 (Hvítur getur unnið peð með því að leika 4. d5xc6, en svartur fengi þá gott tafl og sóknarmöguleika eft- ir 4. .. ., Rb8xc6 5. Rgl—f3, e7—e5 6. d2—d3, Bc8-f5 7. Rbl-c3, Bf8 —c5 8. Bcl—e3, Bc5xe3 9. f2xe3, Dd8—b6 10. Ddl—cl! e5—e4 11. d3xe4, Rf6e4). 4. c6xd5 5. Rbl—c3 e7—e6 6. Bcl—g5 d5xc4 7. Bflxc4 Bf8-e7 8. Rgl—f3 0-0 9. 0 - 0 h7—h6 10: Bg5-h4 Bb8-d7 11. Ddl—e2 Rd7-b6 12. Bc4—b3 • Hf8-e8 13. Hal—dl Rb6-d5 14. Rf3-e5 Rd5xc3 15. b2xc3 Rf6-d5 16. Bh4xe7 He8xe7 17. De3-d3 Rd5-f6 18. Bb3—c2 He7—c7 19. h2—h3 b7—b6 20. Re5—g4 Bc8-b7 21. Bc2-b3 Rf6-d5 22. Bb3xd5 Þetta leiðir til peðstaps fyrir hvít- an, en riddarinn var orðinn hættuleg ur). 22 Dd8xd5 23. Rg4-e3 Dd5xa2 24. c3—c4 (Ilvítur undirbýr að skapa sér hættulegt frípeð). 24 Da2—a4 25. Hdl-al Da4—d7 26. d4—d5 e6xd5 27. c4xd5 Hc7—c5 28. Hfl-dl a7—a6

x

Alþýðublað Hafnarfjarðar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublað Hafnarfjarðar
https://timarit.is/publication/411

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.