Alþýðublað Hafnarfjarðar


Alþýðublað Hafnarfjarðar - 27.10.1952, Side 3

Alþýðublað Hafnarfjarðar - 27.10.1952, Side 3
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR 3 þetta allt vill Verkakvennafélagið senda Emil Jónssyni, alþingis- manni, sínar innilegustu árnaðar- óskir á þessiun merku tímamótum í ævi hans og óska þess og vona, að starf félagsins og Emils megi alltaf ganga jafn vel og vinsamlega framvegis sem hingað til. Verkakvennafélagið Framtíðin. ---- 4 ---- Kvenfélag Alþýðuflokksins send- ir hinum trausta og vinsæla for- manni Alþýðufl. í Hafnarfirði, Emil Jónssyni, hamingjuóskir og þakklæti á 50 ára afmælinu.Það var gæfa þessa bæjarfélags að hann, ungur að árum með glæsilegar gáf- ur og menntun, gekk í Alþýðuflokk inn, þar sem hann hefur staðið sið- an traustur og öruggur og helgað honum krafta sína. Hann hefur átt sinn sterka þátt í því að Alþýðu- flokkurinn hefur átt öruggan meiri- hluta í bæjarstjórn síðast liðin 25 ár og það hefur gerbreytt lífi al- mennings í þessum bæ. Þegar ævi- starf þeirra manna, sem nú standa í stjórnmálabaráttu þjóðarinnar, verður dæmt af framtíðinni, mun nafn Emils Jónssonar verða í röð- um okkar beztu manna og það \ý ljóðabók Nýkomin er á markaðinn, ljóða- bók eftir Þórodd Guðmundsson frá Sandi. Nefnist hún Anganþeyr. Mestur hluti kvæðanna er frum- saminn en nokkur þýdd úr ensku og eit kvæðið er þýtt úr sænsku. Kvæðin eru misgóð; ekkert lé- legt, en nokkur ágæt. Það er lítill vafi, að mörgum þeim, sem ljóð- um unna, þyki fengur að mörgum kvæðanna. Þóroddur er búsettur hér í bæ og eflaust kunnur mörg- um Hafnfirðingum. Er enginn vafi á því. að mörgum þeirra, sem ekki liafa kynnst þeirri hlið Þóroddar, sem að skáldskapnum veit. þykir merkilegt að kynnast henni. Boðskapur og hugarheimur Þór- odds er fa'gur og mannbætandi, án þess þó að boða neina heigul- mennsku, því hann dáir karl- mennsku og drengskap. Bókin er í mjög smekklegum frá- gangi. Er hún því tilvalin sem tæki færisgjöf bæði hvað efni og frá- gang snertir. Orðsending til FUJ Sunnudaginn 2 nóvember verð- ur aðalfundur haldinn í Félagi ungra jafnaðarmanna. Verður fund urinn í Alþýðuliúsinu við Strand- götu kl. 1,30 e. h. .. Fundarefni eru margs konar og má þar nefna inntöku nýrra félaga, venjuleg aðalfundarstörf, kosning fulltrúa á sambandsþing S. U. J. °g fieira. mun sjást „gegnum bölsins blakka kaf“ hefur árangur af störfum hans verið „sem blys á miðjum veg“. Það er þess vegna einlæg ósk okkar og von að Alþýðuflokkur- inn fái að njóta starfskrafta þessa ágætis manns um langa framtíð. „Þú beitir á strenginn, en stefnir til lands, þótt stríkki og dýpki og vöð séu naum“. Við þökkum honum einhuga störfin. Kvennfélag Alþýðuflokksins. ----- 4 ---- Á þessum tímamótum ævi þinn- ar flytur F. U. J. þér hugheilar óskir um leið og við minnumst hins glæsilega og árangursríka starfs þíns fyrir hagsmunamálum Hafn- firzkra æsku og alþýðu og íslenzku þjóðarinnar í heild. Við þökkum þér leiðsögn þína öll þessi ár og allt sem þú hefur kennt okkur í félagsstarfi okkar og við vonum að okkur auðnist að eiga svo traustan forustumann sem þig í framtíðinni og að endingu vonum við að framtíðar draumar þínir rætist um framkvæmd Jafnaðar- stefnunnar á Islandi. Lifðu heill! F. U. J., Hafnarfirði. ♦MimiiiiiiiiniiimiiiiiitiimiiMiiiiuimimiuiHmiiiiiuiiHiiimimiiHiiimiiiiMHimmiiiiinmmimiiniiiiimiiiiniiiiimiiiiHmiiiiiiiiiHiiiii,., Frá Haustmarkaði Kaiipfólit^ Ilafnfirðiiigra Trippakjöt og folaldakjöt kemur að líkindum í vikunni. i | V E R Ð : | Trippakjöt í heilum og hálfum skrokkum ....... kr. 8.50 kg. I Trippakjöt, frampartur ..............,*............ — 7.50 — | Trippakjöt, afturpartur ........................... — 9.90 — g Folaldakjöt í heilum og hálfum skrokkum.......— 8.95 — | Folaldakjöt, frampartur ........................... — 8.25 — | Folaldakjöt, afturpartur .......................... — 10.75 — Kjötið saltað fyrir þá, er þess óska gegn sanngjörnu gjaldi. | Tunnur seldar á staðnum. Þar sem aðeins hefur tekist að tryggja takmarkað magn, er | nauðsynlegt að pantanir berist sem fyrst í næstu Kaupfélags- 5 búð. n Hafnarfirði 27. október 1952, | HAUSTMARKAÐUR a Kanpfclag:§ Ilnfnfirðingn V cgabi'cfi ii í vörugeymslunni Strandgötu 28, sími 9824. Alþýðublað Hafnarfjarðar vill vekja eftirtekt bæjarbúa á auglýsr ingu bæjarfógeta, um bann við að unglingar innan 16 ára aldurs, sæki obinbera dansleisleiki. Foreldrar og forráðamenn ungl- linga þurfa að gera sér og ungling- unum Ijóst, að sé nám eða vinna stundað af skyldurækni og sam- viskusemi getur það orðið heilsu- fari unglinga skaðsamlegt að eyða oft miklurn hluta af svefntíma sín- uin á misjöfnum dansleikjum. Auk þess er alltaf hætt við að þeir, sem þar venja komur sínar, geti lent í félagsskap óvandaðri manna. Hef- ur margur pilturinn og stúlkan á þann hátt orðið ógæfunni að bráð, þar sem vöntun var á þroska og * mati á því, sem um var að velja. Sjjóvinnunámskeið Sjóvinnunámskeið á vegum bæj- arins hofst i siðustu viku. Er kennt í sundlauginni. Námskeiðið hafa sótt um 60 piltar. Ungir menn og piltar í bænum, sem langar til að Iæra eitthvað til sjóvinnu, ættu ekki að sleppa þessu tækifæri. Enginn veit, hvenær hann þarf á þeirri kunnáttu að halda. Til þessa náms eyðist tæplega tími frá öðrum störf um, því kennsla fer fram að kvöld- inu og er ókeypis. Þeir Halldór Hallgrímsson og Guðmundur Guðmundsson sjá um námskeiðið fyrir hönd bæjarins g 1 ....................................................... Þakpappi, rúðugler 3 og 4 mm. Þakjárn væntan- legt. Kaupfélag: Ilafiifirðingra VÖRUGEYMSLAN - SÍMI 9824 ORÐSENDING til Haínfirðinga um vegabréf. I samráði við barnavemdarnefnd og forstöðumenn skól- ánna hér í bæ, hefur verið ákveðið, að börn og ungling- ar innan 16 ára aldurs, fái ekki aðgang að opinberum dansleikjum í bænum. Jafnframt er ákveðið, að gefa út vegabréf til þeirra bæjarbúa, 12 ára og eldri, sem þess óska. Geta menn snúið sér til lögregluvarðstofunnar og fengið þar afgreidd vegabréf, en afhenda þarf ljósmynd, af þeim er vegabréfs óskar, í tveimur eintökum af venju- legri vegábréfamynda stærð. Athygli ska'l vakin á því, að telji löggæzlumenn ungling, sem fara vill á opinberan dansleik eða hefur komizt þar inn, vera ýngri en 16 ára, verður honum vísað. burt, geti hann ekki fært sönnur á það með vegabréfi, að hann sé eldri en 16 ára. Lögreglustjórinn í Hafnarfirði, 22. okt. 1952. Guðrn. í Guðmundsson.

x

Alþýðublað Hafnarfjarðar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublað Hafnarfjarðar
https://timarit.is/publication/411

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.