Alþýðublað Hafnarfjarðar - 03.02.1962, Side 1
r
Jafnaðarstefnan
er stefna
alþýðunnar
ALÞYÐUBLAÐ
Verzlið við þá, sem
auglýsa í Alþýðu-
blaði Hafnarffarðar
IHIAdFf^ Æ\R\ IF JJ ARIEft AIRl
XXI. ÁRGANGUR HAFNARFIRÐI, 3. FEHRÚAR 1962 2. TÖLURLAÐ
Um þessa helgi verður lokið við að setja upp í fisk-
iðjuveri bæjarútgerðarinnar reykofn þann, sem notaður
verður til reykingar síldar. Þessi nýja framleiðslugrein
bér, reyking síldar, er að hefjast og mun auka atvinn-
nna í bænum og einnig fjölbreytni útflutningsafurða.
UNDIRRÚNINGURINN
A síðastliðnu hausti náðist
samkomulag milli Bæjarútgerð-
ar Hafnarfjarðar og skozks fyr-
irtækis um samstarf við fram-
leiðslu og sölu á reyktri síld.
Síðan var unnið áfram að undir-
búningi málsins. Hinn 15. jan-
úar sl. kom svo bv. Maí frá
Hull með reykingarofninn
ásamt síldarskurðarvél o. fl.
Siðan hefur verið unnið að upp-
setningu tækjanna.
framleiðslan
Reyking síldarinnar,, sem hér
er fyrirhugað í fyrstu, er teg-
und sú, sem kölluð er „kippers"
og margir íslendingar kannast
við. Til að byrja með verða
framleidd um 250 tonn af síld-
inni, en síðar er gert ráð fyrir
auknu framleiðslumagni og
einnig fyrir reykingu fleiri fiski-
tegunda.
atvinnuaukning
Það er áætlað, að allt að 20
manns muni fá nær fasta at-
vinnu við notkun þessa eina
reykofns, sennilega mikinn hluta
ársins. Ef framleiðslan heppn-
ast vel, svo sem vonir standa
tif þá er líklegt að settir verði
upp nokkrir reykofnar í viðbót
og kann svo að fara, að allt að
því 100 manns geti fengið at-
vinnu við þessa framleiðslu. Þá
má einnig benda á það, að þessi
nýja hagnýting síldaraflans hér
á landi mun auka á verðmæti
hans og bæta með því hag sjó-
manna.
FRUMKVÆÐI BÆJARÚT-
GERÐARINNAR
Þessi framleiðsla er nýmæli
hér á landi og er Bæjarútgerð
Hafnarfjarðar fyrst til að reyna
þessa tilhögun í þessari fram-
leiðslugrein. Hér er bæjarút-
gerðin enn sem fyrr trú því hlut-
verki sínu að hafa vakandi auga
á öllu, sem leiða má til aukinn-
ar atvinnu bæjarbúa til sjó's og
lands. Jáfnframt því, sem þessi
framleiðsla mun styrkja Bæjar-
útgerðina fjárhagslega og jafn-
vel geta orðið nokkur þátttaka
í útflutningi landsins.
Alþýðublað Hafnarfjarðar vill
færa Bæfarútgerð Hafnarffarðar
þakkir sínar fijrir þetta fram-
tak og óskar þess að þessi nýi
þáttur í rekstri Bæjarútgerðar-
innar verði til þess að bæta hag
og afkomu bæfarbúa, beint og
óbeint.
Iiinn 17. desember sl. varff
Cóðtemplarahúsið í H'dfnarfirði
75 ára. Stúkurnar Daníelsher
og Morgunstjarnan minntust
þann dag afmælisins með
myndarlegu hófi í húsinu. Þar
var margt góðra manna saman
komið og meðal gesta var bæj-
arstjórn Hafnarfjarðar. Við þetta
tækifæri afhenti bæjarstjórinn,
Stefán Gunnlaugsson, 25 þús.
króna framlag til liússins frá
Hafnarfjarðarbæ, sem ofurlítinn
þakklætisvott fyrir margþætta
þjónustu bæði liússins og templ-
ara í þágu Hafnarfjarðar. Hóf-
ið fór hið bezta fram og var
hið ánægjulegasta, svo sem
templara er von og vísa.
Mikil nmferð í Hafnarfjarðarhöfn
Umferðin í höfninni hefur
verið mikil á þessu nýbyrjaða
ári. Hér hafa komið skip eftir
skip og lestað útflutningsvörur.
Sumar þeirra hafa komið héðan
úr Hafnarfirði, en aðrar hafa
verið fluttar hingað á bílum,
bæði frá Reykjavík og Kefla-
vík. Á þessum rúma mánuði,
sem nú er liðinn af árinu 1962
hefur t. d. Tungufoss lestað 850
tunnur af lýsi úr Reykjavík, auk
annarrar vara frá Hafnarfirði
og Reykjavík, Dettifoss lestaði
m. a. 250 tonn af mjöli frá
Keflavík ásamt frystum fiski frá
Hafnarfirði og Keflavík, og
svona mætti lengi telja.
Auk þessara skipa hafa Sel-
foss, Lagarfoss, Reykjarfoss,
Langjökull o. fl. skip lestað
ýmiskonar vörur til útflutnings
hér í Hafnarfjarðarhöfn.
Árangurinn af hinum mynd-
arlegu hafnarframkvæmdum á
síðasta kjörtímabili núverandi
bæjarstjórnar, segir þegar til
sin.
Reyking síldar að heíjast hjá Bæjarntgerð
Hafnarfjarðar
i^^^^^^í^^cs^ieá^esieiejeieieieieieieá^eiesásesíeieieieicieieiesíeicá^ieiejeMeieieieieieie^^
Það gelin* eng:inii helðvirdur uiaður
„Nú hefði ég sagt Hamri
upp, éf ég hefði getað það,“
sagði gamall og heiðvirður
Sjálfstæðismaður um daginn,
þegar síðasti Hamar kom út.
5>Eg get ekki betur séð én
þessi blaðsnepill ætli að
hrekja mig úr flokknum og
þarf þó nokkuð til, en það
getur enginn heiðvirður mað-
ur látið bendla sig við svona
óhroða", bætti hann við og
kreppti hnýttar og gamal-
lunar hendurnar.
Og þetta var grunntónn
allra heiðvirðra Hafnfirðinga.
• •
Sorpblaðamennska Hamars
hefur nú gengið fram af öll-
um. Siðlaus og lúalegur róg-
uriim um bæjarstjórann, Stef-
án Gunnlaugsson, sló nú öll
fyrri met. Það lienti sem sé
bæjarstjórann okkar að láta
sér detta í hug, að Hamar
virti sannleikann einhvers,
eða réttara sagt, að Hamar
myndi skammast sín, þegar
hann væri staðinn opinber-
lega að ósannindum. Þess
vegna rak hann ósanninda-
sögu Hamars um brottrekst-
ur Óskars Guðmundssonar
bryggjuvarðar ofan í blaðið.
En það fór langt frá því að
Hamar kynni að skammast
sín. Hann þvert á móti hæld-
ist yfir skömminni og jók
óliroðann. Nú hefur bæjar-
stjórinn vegna þessa fádæma
ódrengskapar Hamars ákveð-
ið að leita réttar síns fyrir
dómstólum landsins og stefnt
Hamri fyrir ósannindin. AI-
menningur hefur dæmt Ham-
ar í þes'su máli eins og getur
hér í upphafi og dómstólarn-
ir munu koma í kjölfarið.
Hafnfirðingar hafa áður
dæmt í málum hafnfirzka
íhaldsins og dómar hæsta-
réttar siglt í kjölfarið, sbr.
Lýsi & Mjöl málið.
Þess má geta hér, að Ham-
ar hefur vakið á sér eftirtekt
utan Hafnarfjarðar. Og allt-
af á einn veg. Tíminn sagði
á síðast liðnu sumri: „Skrif
þessa blaðs (þ. e. Hamar)
einkennast af einfeldni, per-
sónuníði og misþyrmingu
tungunnar ofan á allt annað.
Háfnfirðingar Scgja, að eldri,
gætnari og skynsamari íhalds
menn í Háfnarfirði fái hroll
og gæsahús, þegar blaðið (þ.
e. Hamar) kemur út, vilji
helzt ekki minnast á það og
séu fljótir að stinga því í
ruslakörfuna."
Og dagblaðið Vísir getur
Hamars miðvikudaginn 24.
janúar og segir eftir að hafa
lesið þetta „blað Sjálfstæðis-
manna í Hafnarfirði, Ham-
ar“ að sum blöð „a. m. k.
kippi sér ekki upp við eitt
og eitt mannorðsvíg."
Hvers eiga Hafnfirðingar
að gjalda að þurfa að þola
svona blaðamennsku?