Alþýðublað Hafnarfjarðar - 03.02.1962, Síða 3
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
3
Ábyrgðarleysið keyrir ..
(Framhald af bls. 4)
að Olafur Thors og aðrir for-
ystumenn Sjálfstæðisflokksins
séu að hæla kommúnistum fyr-
ir dugnað, framtakssemi, og
ábyrgðartilfinningu, þegar þeir
Sjálfstæðismenn hrósa ríkis-
stjórn þeirri, sem sat að völdum
1944—1946 undir forsæti Ólafs,
en í henni sátu einnig komm-
únistar. En samkvæmt þeirri
formúlu, sem Hamar fylgir, hef-
ur Óla'fur þá verið að vegsama
kommúnista. Ég trúi því ekki
heldur, að Sjálfstæðismenn í Ól-
afsvík, sem mynda þar meiri-
hluta í bæjarstjórn með komm-
únistum, þurfi fyrir það eitt að
starfa með kommúnistum í bæj-
arstjórn að vera á móti vest
rænni samvinnu og andstæðir
aðild íslands að Atlántshafs
bandalaginu, þótt formúla
Hamars geri ráð fyrir því. Ekki
vil ég heldur væna þá Sjálf-
stæðismenn, sem áður hafa
starfað með kommúnistum í
verkalýðsfélögum, um tvöfeldni
og Rússadekur,, þótt þeir séu
loddarar, tvískinnungar og hver
veit hvað samkvæmt formúlu
Hamars.
Nri hlýtur sú spurning að vakna,
hver munur sé á niðurrifsmönn-
um konnnúnista og manni þeim,
sem skrifaði umrædda grein í
Hamri. Ég hika ekki við að
setja þá á sama bekk. Komm-
únistar vinna skipulega að því
að reyna að eyðileggja efnahag
landsins og að innleiða hér
kommúnisma. Greinarhöfundur
Hamars vinnur að því að rjúfa
einingu þá, sem skapast hefur
milli manna í lýðræðisflokkun-
um þremur, og veitir þar með
vatni á myllu kommúnista með
því að reyna að veikja viðnáms-
þrótt þjóðarinnar.
Hér er ekki um neitt dægur-
mál að ræða, sem Varðberg
berst fyrir, heldur sjálfstæði
þjóðarinnar og frelsi þegna
landsins, sjálft fjöregg þjóðar-
innar. Hér er um að ræða, livort
Ráðning á jólagetraun
Leikfélags Ilafnarfj.
ég og þú verðum frjálsir menn
í frjálsu landi, eða þá hvort
hneppa eigi landið í einræðis-
fjötra hins alþjóðlega kommún-
isma. Því munum við Alþýðu-
flokksmenn vinna af einhug
með starfi Varðbergs, en ekki
láta einhverja stundarhagsmuni
ráða gerðum okkar, eins og
Hamar gerir með því að reyna
að sverta andstæðinga sína með
ósannindum og rangfærslum.
Þessi skrif Hamars er ekki ann-
að en tilraun til að reka rýting
í bak Varðbergs. Ég vil biðja
Hafnfirðinga, að láta Hamar
ekki villa sér sýn með skrifum
sínum á kostnað Varðbergs,
heldur skora ég á alla Hafnfirð-
inga að fylkja sér undir merki
félagsins. Sem betur fer hefur
skrifum Hamars ekki tekizt að
rjúfa samstöðu þá, sem ríkir inn-
an Varðbergs, og við Alþýðu-
flokksmenn munum vinna heils
hugar að stefnumiðum félags-
ins.
Þessi skrif Hamars fordæma
allir lýðræðissinnaðir menn,
hvar á landinu sem er.
Hins vil ég geta, að ég er lítt
hrifinn af samvinnu við komm-
imísta í hænum, og það vona
ég fastlega, að þeir verði áhrifa-
lausir eftir næstu kosningar.
Það verður gert með því,
að Hafnfirðingar veita Alþýðu
flokknum hreinan meirihluta í
hæfarstjórn í hæjarstjórnarkosn-
ingunum í vor, því að meiri-
hluti Sjálfstæðisflokksins er ál-
veg útlilokaður. Hafnfirðingar
sfá nú hetur en nokkru sinni
fi/rr, hve nákvæmlega íhaldið
spilar eftir hinu nýútgefna kjör-
orði sínu, engin áhyrgð, hara
hrögð, ekki 'sízt eftir þessa um
ræddu grein í Hamri. Slík
vinnubrögð falla ekki Hafnfirð-
ingum, og þéss vegna meðal
annars hafa þeir stjórn þessa
flokks, en munu þess í stað
veita Alþýðuflokknum hreinan
meirihluta í hæjarstjórnarkosn-
ingunum 27. maí í vor.
1. Hulda Runólfsdóttir, Kristbjörg
Kjeld og Auður Guðmundsdóttir.
2. Guðrún Jóhannsdóttir og Arsæll
Pálsson í Húrra krakki.
3. Katrín Káradóttir og Jón Kr.
Jóbannesson í hlutverkunr Ingibjargar
og Gústafs.
4. Guðjón Einarsson (Wagstaff),
Steinunn Bjarnadóttir (Bett.) og Katla
Ólafsdóttir (Doris Wagstaff). — Gervi-
knapinn.
5. Ársæll Pálsson. Leikritið sýnt
vorið 1943.
6. Ungfrú Bourne og Saul Hod-
kins. Leikritið er eftir Arnold Ridley
7. Hulda Runólfsdóttir, Friðleifur
Guðmundsson og Þóra Borg.
8. Margrét Magnúsdóttir, Þóra
Borg og Sverrir Guðmundsson í
Seínlausa brúðgumanum.
9. Jóbannes Steinsson.
10. Hulda Runólfsdóttir og Guð-
mundur Jónsson í Apakettinum.
11. Þorbjörg Magnúsdóttir (Eyrún)
Sveinn V. Stefánsson (Ambrosíus
hreppstjóri).
12. Hafsteinn Baldvinsson, Ólafur
S.igurðsson, Markús Kristinsson og
Stefán R. Þórðarson.
13. Sigurður Gíslason (Láki) í Al-
mannaróm.
14. Hafliði Andrésson og Soffía
Björnsdóttir.
15. Hans og Gréta, blómálfar og
skógardís.
16. Jón B. Pétursson.
17. Einar Pálsson.
18. Kinnarhvolssystur.
19. Hulda Runólfsdóttir.
20. Sigurður Kristinssom.
Margar lausnir bárust, en aðeins
ein lausn reyndist alveg rétt og var
bún frá Jóni Kr. Jóhannessyni, liúsa-
smíðameistara.
HF. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS.
Aðalfimcluir
Aðalfundur hlutafélagsins Eimskipafélags Islands, verður
haldinn í fundarsalnum í húsi félagsins í Reykjavík, laugar-
daginn 2. júní 1962 og.hefst kl. 1,30 eftir hádegi.
1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmdum
á liðnu starfsári og frá starfstilhögun á yfirstandandi
ári, og ástæðum fyrir henni, og leggur fram til úrskurð-
ar endurskoðaða rekstursreikninga til 31. des. 1961 og
efnahagsreikning með athugasemdum endurskoðenda,
svörum stjórnarinnar og tillögum til úrskurðar frá end-
urskoðendum.
2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiptingu
ársarðsins.
3. Kosning fjögurra manna í stjórn félagsins, í stað þeirra
sem úr ganga samkvæmt samþykktum félagsins.
4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess, er frá fer, og
eins varaendurskoðanda.
5. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins (ef til-
lögur koma fram).
6. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp
kunna að verða borin.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða.
Aðgöngumiðar að fundinum verða aflientir hluthöfum og
umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík,
dagana 29.—31. maí næstkomandi. Menn geta fengið eyðu-
blöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðalskrifstofu
félagsins í Reykjavík. Óskað er eftir að ný umboð og aftur-
kallanir eldri umboða séu komin skrifstofu félagsins í hend-
ur til skráningar, ef unnt er, viku fyrir fundinn.
Reykjavík, 9. janúar 1962.
STJÓRNIN.
ULTRAHVITT
- I.S.I. 50 ARA
(Framhald af bls. 4)
bandsins Benedikts G. Waage,
sem átt hefur sæti í stjórn þess
síðan 1915 eða í 47 ár og þar
af forseti síðan 1926. Hefur
hann unnið Í.S.Í. og allri íþrótta-
hreyfingunni í landinu mikið
og heillarjúgt starf.
Þá hefur Hermann Guð-
inundsson, form. Verkamanna-
fél. Hlífar, verið framkvæmda-
stjóri Í.S.Í. um langt árabil og
unnið þar ómetanlegt starf í
þágu íþróttahreyfingarinnar.
Iþróttasambands íslands er
höfuðaðili allra þeirra félaga
sem vinna að eflingu likams-
íþrótta. Landfræðilega er því
skipt í héraðssambönd og eftir
íþróttagreinum í sérsambönd.
Innan béraða er félögum safn-
að saman í sérráð fyrir hverja
íþróttagrein. Sérráðin eru und-
wvvvvvvwvvww
HúsmaBífur, athugiff:
Þegar þvegið er úr Perlu þvott>
dufti.fáið þér
hvítari þvott
hvotturinn er hvítari vegna PerliÞ
glampans.sem kemur í Ijós.þegar
tauið er skoðaö í dagsbirtu
— Perla fer vel með hendurnar —
iraðili sérsambanda, og er þeim
þó um leið, að því er skipulag
snertir, stjórnað af héraðssam-
böndum.
í þau 50 ár sem Í.S.Í. hefur
starfað hefur það unnið mark-
víst að eflingu og uppht/ggingu
íþróttanna og með þeim ágæta
árangri sem hla'sir nú við hvers
manns sjónum. Það hefur verið
sá lýsandi kyndill sem fært hef-
ur hirtu og yl til allra sem afl
hafa og unnið að vexti og við-
gangi íslenzkra íþrótta.
Það er innileg ósk allra þeirra
er unna fögrum og hollum
íþróttum að Í.S.Í. auðnist að
halda áfram sínu heilladrjúga
forystuhlutverki við að beina
áhuga íslenzks æskufólks frá
óhollum lífsvenjum að heil-
brigðum og þroskandi íþrótta-
iðkunum.