Alþýðublað Hafnarfjarðar - 03.02.1962, Qupperneq 4
4
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
Ilrafnkell Ásgeirsson:
r'
Abyrgðarleysið keyrir úr hðfi
Eg undirritaður sem stjómarmeðlimur í Varðbergi vil taka fram eftirfarandi vegna mjög óvið-
urkvæmilegra skrifa í síðasta tölublaði Hamars í greininni „Uppi og niðri“, þar sem ósannind-
um og rangfærslum er beitt svo blygðunarlauSt, að öllum lýðræðissinnuðum mönnum blöskrar.
Sá merki viðburður gerðist á
síðastliðnu sumri, að ungir
menn úr öllum lýðræðisflokk-
unum þremur, Alþýðuflokknum,
Framsóknarflokknum og Sjálf-
stæðisflokknum, ákváðu að
stofna félagið Varðberg. Til-
gangur félagsins er, eins og í
lögum þess stendur: a. Að efla
skilning meðal ungs fólks á ís-
landi á gildi lýðræðislegra
stjómarhátta . b. Að skapa auk-
inn sldlning á mikilvægi sam-
starfs lýðræðisþjóðanna til
verndar friðinum. c. Að vinna
gegn öfgastefnum og öfgaöfl-
um. d. Að mennta og þjálfa
unga áhugamenn í stjórnmála-
starfsemi, með því að afla
glöggra upplýsinga um samstarf
og menningu vestrænna þjóða;
um markmið og starf Atlants-
hafsbandalagsins svo og að að-
stoða í þessum efnum samtök
og stjórnmálafélög ungs fólks,
er starfa á grundvelli lýðræðis-
reglna. Svo stendur og í lögum
félagsins: Félagið fjallar ein-
ungis um utanríkismál, en tek-
í jólablaði Hamars kom fram,
að Hafnarfjarðarbær hafi ekki
styrkt St. Jósephsspítalann hér
í bæ. Hér fer Hamar með hrein
ósannindi, en St. Jósephsspítal-
inn hefur allt frá árinu 1957
notið árlega styrks frá Hafnar-
fjarðarbæ, kr. 50.000.00 á ári
hverju, og á f járhagsáætlun bæj-
arins í ár er sama framlag og
áður til spítalans.
Þótt Hafnfirðingar séu orðn-
ir ýmsu vanir af siðlausri blaða-
mennsku Hamars, þá lýsir það
ur ekki afstöðu til innanlands-
mála.
Með því að leggja á hilluna
innanlandserjur og flokkadrætti
og einbeita sér í staðinn að þeim
merku markmiðum, sem félag-
ið keppir að, hefur tekizt að
skapa slíka einingu og samstöðu
meðal ungra manna úr öllum
lýðræðisflokkunum, að slík eru
fá dæmi. Því hefur árangurinn
af starfi félagsins orðið góður,
og lýðræðissinnaðir menn um
land allt hafa fagnað stofnun
félagsins, og lýðræðissinnuð
blöð hafa stutt félagið að al-
efli. Svo gerist það 27. janúar
sl. að Hamar sker sig út úr og
gerir tilraun til að reka fleyg
í félagið með mjög ósæmilegum
dylgjum í garð pólitískra and-
stæðinga sinna. Bágt á ég með
að trúa, að það stafi af van-
þekkingu á stefnumiðum félags-
ins, heldur komi þar til ódreng-
lyndi og ábyrgðarleysi það, sem
einkennt hefur blaðið frá því
ég fyrst man eftir því.
vissulega spilltu hugarfari hjá
þeim Hamars-mönnum að vera
að reyna að læða því inn hjá
lesendum Hamars svona rétt
fyrir jólin, að bæjaryfirvöldin
kunni ekki að meta hið góða
og merka starf St. Jósephssystra
hér í Hafnarfirði um margra ára
bil.
Hafi Hamar skömm fyrir til-
tækið. Hann er trúr köllun
sinni: Engin ábyrgð, bara brögð.
Það mættu menn muna ávallt,
er þeir lesa Hamar.
Árið 1958 var gerður mál-
efnasamningur á milli Alþýðu-
flokksins og Alþýðubandalags-
ins um lausn ákveðinna bæjar-
málefna. Ekki nær sú samvinna
lengra, eins og Hafnfirðingum
er kunnugt. Nú hittist þannig
á, að bæjarstjórn samþykkti
fjárhagsáætlun fyrir árið 1962,
sama kvöldið og Varðbergs-
fundurinn var haldinn. Það veit
hver skyniborinn maður, að ef
2 eða fleiri flokkar mynda meiri-
hluta í sameiningu, þá hafa þeir
áður en fjárhagsáætlun er end-
anlega samþykkt í bæjarstjórn,
komið sér saman um frumvarp
að fjárhagsáætlun. Því væri það
næsta undarlegt, ef menn úr
þessum flokkum færi í hár sam-
an út af skipun fjárhagsáætl-
unarinnar á bæjarstjórnarfund-
inum, þótt þá greindi mjög
verulega á í ýmsum efnum, svo
sem utanríkismálum.
Það er ósatt, sem í ofan-
greindri grein í Hamri segir,
að Árni Gunnlaugsson hafi hælt
kommúnistum fyrir ábyrgð og
rökfestu í málflutningi á þess-
um bæjarstjórnarfundi. Aftur á
móti minntist Árni réttilega á
ábyrgð þá, sem meirihlutinn
undir forystu Alþýðuflokksins
hefur sýnt í framkvæmd bæjar-
málefna, sem andstæðu við
vinnubrögð þeirra Sjálfstæðis-
manna í bæjarstjórn, sem ein-
kennast af ábyrgðarleysi og tvö-
feldni. Er það kannsld að áliti
Hamars þjónkun við kommún-
ista að neita að fallast á tillögur
Sjálfstæðismanna um að leggja
háa víxla á bæjarbúa, sem
myndu falla á bæinn með ofur-
þunga eftir nokkur ár?
Eg trúi því ekki að óreyndu,
(Framhald á bls. 3)
í JÓLABLAÐIMIJ LÍKA
VerSlaunagarflurinn á síSasta ári var við Kirkjuveg 9, eign þeirra Evu Jóhannsdóttur og Ólafs Sigurðsson’ar
fiskimatsmanns.
Htis og loðir tfyrlr raim-
ar 3 milljónfr króna,
Á nokkrum árum hefur bær-
inn keypt 7 hús við Reykjavík-
ur veg, sem hvað mest hafa
valdið slysahættu á Reykjavík-
urveginum og jafnframt staðið
í vegi fyrir breikkkun þeirrar
götu. Nýlega var 7. húsið flutt
á brott. Þetta rifjar það upp,
að á síðastliðnum 4 árum hefur
bæjarsjóður keypt hús og erfða-
festulóðir fyrir rúmar 3 milljón-
ir króna. Þetta hefur verið nauð-
synlegt vegna gatnagerðar og
skipulags, en í þeim efnum hef-
ur verið unnið af myndarskap
og framsýni og er enn.
Þá er vöxtur bæjarins mjög
ör, þannig að fjölgun nemur t.
d. meiru en öllum íbúunum á
Húsavík. Þetta hefur auðvitað
kallað á byggingu nýrra íbúðar-
húsi, byggingu nýs skóla o. fl-
o. fl. En þessar byggingar hafa
líka þurft aukið landrými og á
á síðastliðnum 4 árum héfur
bærinn tekið eignarnámi rúma
40 þúsund fermetra ræktunar-
lands með tilheyrandi mann-
virkjum fyrir um 460 þúsund
krónur. Það er heiður fyrir
Hafnarfjörð, að þangað vill fólk-
ið, en það er í mörg horn að
líta í ört vaxandi bæjarfélagi og
uppbyggingin er dýr.
Þessi hús við Reykjavíkurveginn hafa nú öll verið keypt og fjarlsegð af
bænum.
| í STUTTU MÁLI
SLYSAVARNAFÉLAG ÍSLANDS mun gangast,
fyrir tveimur námskeiðum hér í Hafnarfirði einhverja næstu daga.
Verður annað námskeiðið um meðferð gúmbjörgunarbáta, en hitt
um meðferð heimilisáhalda og þá einkum fyrir liúsmæður. Verða
námskeið þessi auglýst nánar í útvarpi. Slysavarnardeildirnar
Hraunprýði og Fiskaklettur hvetja sem flesta bæjarbúa að not-
færa sér þessi námskeið.
★
STJÓRNARKOSNINGU er nú lokið í Sjómanna-
félagi Hafnarfjarðar. B-listinn, listi lýðræðissinnaðra sjómanna,
bar sigur úr býtum, fékk 40 atkvæði, en A-listinn hlaut 36 at-
kvæði. Stjórnin hefur því verið heimt úr höndum kommúnista.
Stjórn Sjómannafélags Hafnarfjarðar skipa nú: Einar JónSson,
form., Sigurður Pétursson, Björn Þorleifsson, Kristján Sigurðs-
son og Hannes Guðmundsson. í varastjórn eru þeir Bjarni Her-
mundarson og Grétar Pálsson.
★
RÉTT FYRIR ÁRAMÓT færði Lionsklúbbur
Hafnarfjarðar Sólvangi að gjöf tæki til leðurskurðar. Eru tækin
sérlega vönduð, og kemur sér mjög vel fyrir Sólvang að fá þau
í sambandi við tómstundakennslu þá, sem fer þar fram. Um
líkt leyti færði klúbburinn einnig Barndskóla Hafnarfjarðar að
gjöf tæki til sjónmæl'ingar barnanna í skólanum. Þetta eru mjög
myndarlegar gjafir, og á Lionsklúbburinn miklar þakkir skilið
fyrir þær.
★
SÍÐASTLIÐIÐ mánudagskvöld hélt Félag ungra
jafnaðarmanna þriðja bæjarmálafund sinn á þessum vetri. Hrafn-
kell Ásgeirsson flutti þá framsöguræðu um hafnarmál. í lok
fundarins var samþykkt ályktun í hafnarmálum, og mun stjóm
félagsins siðan senda hana fulltrúaráði Álþýðuflokksfélaganna.
Eru fundir þessir mjög gagnlegir og skemmtilegir, og eru ungir
jafnaðarmenn livattir til að sækja þá alla. — Næsti fundur verð-
ur annan mánudag, og mun þá Snorri Jónsson kennari, flytja
framsögu um atvinnu- og skipulagsmál.