Good-Templar - 01.10.1900, Side 5

Good-Templar - 01.10.1900, Side 5
125 það rétta, en hjálpa þeim til að velja það ajálf. Par næst á kennarinn aðskoða sjálfan sig einsog meðlijálpara heimilanna. Vér trúum bönkunum fyrir fé voru, læknunum fyrir líkama barn- anna, en kennurunum fyrir sálum þeirra. I’etta krefur lipurðar og varkárni af kennaranum gagnvart heimilunum. Kennarinn verður að gæta þess, að hann ráðist ekki á boðorðið: „Heiðra skaltu föður þinn og móður." Hann á að snúa hjörtum for- eldranna til barnanna, og hjörtum barnanna til foreldranna. fú mátt aldrei reyna að hafa áhrif á föðurinn með því, að láta barnið gera það; en farðu til föðursins sjálfur og með að- stoð föðurkærleikans geturðu ef til vill fengið föðurinn í lið með þér. — „Þegar ég var barn,“ mælti hann, „leiddi faðir minn og kennari mig einu sinni í hvassviðri, og það var auð- velt að komast yfir fen og foruð á móti storminum. Þannig eiga skólinn og heimilið að taka barnið í hönd sér og hjálpa því yflr fen og foruð drykkjuskaparins. “ Ræður spunnust út af þessum frábæra fyrirlestri, en þær drógu fremur úr þeim áhrifum, er hann hafði haft á hugi manna, en að þær yki þau. I'ogar séra Bjerre liætti, hefðu menn helzt átt að fara, því að hann hafði sannarlega geflð nóg um- hugsunarefni. En það var svo á þessurn fundi sem oftar, að þar vóru karlar og konur með óseðjandi löngun til að heyra sjálfan sig tala, enda spöruðu þau ekki náðargáfurnar. Föstudaginn og Laugardaginn vóru einnig haldnir fundir. Ágæta fyrirlestra héldu: yfirlæknir Bendtzen í Kristíaníu, Di- rektör Kjær íKristíaníu, Schou prestur frá Stokkhólmi, Klockars ritstjóri frá Finnlandi, meistari Helleníus frá Finnlandi og Hal- vorsen prestur frá Kristjánssandi. Einkum var þó gerður mikill rómur að fyrirlestri Pedersens yfirkennara í Kristianíu, um „ábyrgð mannféiagsins á drykkjuskapnum“, og birtist fyrir- lestur þessi ef til vill siðar hér í blaðinu. Síðdegis á Laugardaginn fórn fundarmenn skemt.iferð yfir Krist.íaniufjörðinn á 4 gufuskipum. Við Sandvík var lagt að landi og ijósmynd tekin a.f flokknum. Lystigarðabúarnir út með firðinum höfðu viða flaggað íyrir flokknum. Einkum voru fundarmönnum sýnd virðingar- merki í Sandvík. Um kvöldið var haldin bindindishátíð í trúboðshúsinu í Cal- meyersgötunni i Kristíaníu og vóru þar liaidnar alimargar ræður,

x

Good-Templar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Good-Templar
https://timarit.is/publication/428

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.