Good-Templar - 01.10.1900, Blaðsíða 9

Good-Templar - 01.10.1900, Blaðsíða 9
þarf ekki að tala; það ern alkunnir fylgifiskar áfengisnautnar- innar. Þetta er nú ein liliðin á bindindismálinu, þetta er örlítið brot af sögn áfengisins: fjársóun, heilsuspilling og siðieysi. Saga áfengisins er löng saga, sem að líkindum lætur, því langt er siðan menn fóru að neyta áfengis. Um mjög margar aldir hefir mikill hluti mannkynsins neytt áfengis bæði í hófi og óhófl; og um allan þann afarlanga tíma hefir áfengið ritað sína sögu; en fjölda margir kaflar þeirrar sögu eru ritaðir með blóði og tárum, því að saga áfengisins er eigi síður raunaleg en löng. Einnig á voru landi, íslandi, hefir áfengið ritað sína raunasögu, og heldur enn áfram að ritahana; og aílirkomum vér við þá sögu, meira eða minna. Þetta álíta sumir menn ranga skoðun; þeir segja að sór komi bindindismálið ekkert við, þeir komi .hvergi við áfengissöguna, þeir standi langt fyrir utan það mál, Játi það alveg eiga sig; lofi þeim að drekka, sem drekka vilja, og þeim að selja, sem selja vilja; lofi bindindismönnum að hamast gegn áfenginu annarsvegar og drykkjumönnunum að fylla sig hinsvegar; sjálfir komi þeir hvergi nærri. Engum kemur til liugar að rengja það, að þetta sé hjart- ans sannfæring þessara manna, að svona horfi þetta við frá þeirra sjónarmiði; en það er, eins og máltækið segir, eigi nema hálfsögð sagan, meðan að eins einn segír frá. 1 bindindismálinu skiftast, menn í tvo flokka: bindindis- menn og áfengisneytendur; enginn þriðji flokkur er til, engin önnur skifting möguleg. En satt er það, að mjög eru menn misjafnir í hvorum flokknum um sig. í bindindismannaflokknum eru hinir áköfustu framsóknar- menn bindindisliðsins, sem hamast gegn áfengisnautninni og verja til þess bæði tíma og fó að fá henni útrýrnt. Þar eru og áhugamiklir alvörumenn, sem þoka, málefni voru áfram skref fyrir skref og fet fyr fet með inni mestu hægð og stillingu; og í þeim flokknum eru enn fremur menn, sem mjög litið skifta sór af bindindismálinu, nefna það varJa á nafn við nokkurn mann, Jofa því að ganga sinn gang og öðrum að hafa fyrir því. En eitt er sameiginlegt öllum mönnum í þessum ílokki: enginn þeiri'a neytir áfengis, þeir eru allir bindindismenn

x

Good-Templar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Good-Templar
https://timarit.is/publication/428

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.