Muninn - 01.02.1975, Side 1
4. töiubiað
47. árgangur
74-75
Lengi getur vont versnað. Svo
sannarlega er þetta réttmæli.
Undanfarin ár hefur félagslífi
hér í skóla hrakað stórlega frá
ári til árs og hefur þessi vetur
verið sýnu lakastur það sem af
er. Orsakir þessa eru auðvitað
allmargar, en ég vil þó leyfa mér
að halda því fram, að þyngst
vegi ómennska, leti og sjálfs-
elska meginþorra nemenda. Víst
eru þetta stór orð en ætli menn
komist ekki að sömu niðurstöðu
ef þeir hugleiða málið.
A Aðalfundi I í fyrra voru
alW undirdeildir Hugins lagðar
niður, eh- þess í stað er öllum
frjálst að stöfna starfshópa eða
félög um sín áhugamál. Skóla-
félagið styrkir. slarfsemi þeirra
fjárhagslega, ef ástæða þykir til.
Tilgangur þessarar breytingar
var sá, að sporna við þeirri ör-
deyðu, sem ríkt hafði í félags-
lífinu og gera þeim, sem raun-
verulegan áhuga höfðu, kleifl
að starfa að sínum hugarefnum.
Þessi lög eru að mestu leyti
anum og voru samþykkt af fólki,
sem enn er hér. Eg vona, að
þetta fólk hafi gert sér grein fyr-
ir því, að lagabreytingin ein, er
lagslíf verður aldrei fengið með
alls ekki nægileg til að snúa fé-
lagslífinu af helreið sinni. Fé-
verslunarbraski, hermangi né
sem náðargjöf af himnum ofan,
heldur verðum við að byggja
það upp með eigin kröftum og
hyggj uviti.
Þau undur og stórmerki gerð.
ust nú í haust að yfir 99% nem-
enda greiddu félagsgjöld Hugins
og er hér áreiðanlega um að
ræða einsdæmi í sögu félagsins.
Maður freistast til að halda, að
fólk vildi hafa eilthvað fyrir
snúð sinn og því yrði ríkjandi
blómleg og öflug félagsstarfsemi
hér i vetur. En sú hefur aldeilis
ekki orðið raunin á.
Tónlistarklúbbur var stofnað-
ur i haust og hefur staðið fyrir
tónlistarkynningu og tónleikum.
Formlegur stofnfundur hans var
rækilega auglýstur nú skömmu
eftir áramótin. Vegna þess starfs
se mforystumenn hans höfðu
þegar unnið og þar eð fjöldi
manns hafði keypt félagsskir-
teini, gerði ég mér vonir um
mikinn áhuga og góða mætingu
félaga. En hvílík vonbrigði.
Þrettán manns mættu og þar af
sex úr bráðabirgðastjórn klúbhs
ins.
Ég vil leyfa mér að spyrja:
Er allur þorri nemenda svo ger-
samlega sneyddur öllu sem heitir
félagslegur þroski, að þeir telji
sér trú um, að allir skapaðir hlut
ir verði færðir þeim á silfurfati
án þess að nokkuð sé lagt að
mörkum?
Það vantar ekki að sökudólg-
urinn sé fundinn og honum stillt
upp við vegg. Hver man ekki
opinberun Steinars Frímanns-
sonar á skólafundi fyrir 1. des.:
„Stjórnarmenn Hugins eru sof-
andi sauðir.“ Þurfum við frek-
ari vitnanna við?
Það er fjarri mér að vilja
hvítþvo sljórn Hugins af allri
sök, því við erum jú mannleg
og eflaust mælti margt betur
fara í okkur starfi. En þó get ég
ekki stillt mig um að spyrja
fleiri spurninga.
Er það sök stj órnarinnar að
áhugafólk um t. d. bókmenntir
hefur ekki haft dugnað í sér til
að mvnda klúbb eða samtök til
bókmenntakynninga? Hvar er
myndlistarfólk eða þjóðmála-
sþekúlantar? Hvar eru áhuga-
menn um raunvísindi? Er and-
legur standard menntskælinga
virkilega svo óbjörgulegur að
þeir eigi sér ekki einu sinni á-
hugamál lengur?
En sagan er ekki hálfsögð enn
þá. Nokkrir skólafundir hafa
verið í vetur og satt að segja
hefur verið grátlegt að horfa
upp á hversu lítill hlutTnemenda
leggur það á sig að mæta og enn
fgnri þora að taka til máls. Ef
nemendur líta svo á, að skóla-
fundir séu aðeins hugsaðir sem
frí úr tímum þá sé ég ekki
minnstu ástæðu til að berjast
við að halda þá í kennslutíma.
Ég ætla aðeins að minnast á
þá fundi, sem allt til þessa hafa
talisl mestu hitafundir vetrarins.
24. okt. lagði stjórnin fram
fjárhagsáætlun fyrir veturinn og
jafnframt tillögu um 1700 kr.
félagsgjald. Samtals tóku fjórir
utan stjórnarinnar til máls, án
þess að nokkur þeirra gerði hina
minnstu athugasemd við áætlun
stj órnarinnar og ekki einn ein-
asti stóð upp og kvartaði undan
of háu gjaldi, sem er algert eins-
dæmi í minni skólatíð. Voru
menn þá ekki hæstánægðir með
að geta létt úr pyngju sinni í
sjóð skóla félagsins? 0, nei,
ekki var raunin sú. I öðruhverj u
horni fussuðu menn og sveiuðu
yfir svívirðilegum fjárkúgunum
stj órnarinnar. Engum datt þó í
hug að rísa upp á faturlappirnar
og segja hug sinn, ekki skorti þó
eggjanir fundarstjóra.
Kórónan á stórfenglegum af-
rekum nemenda var þó Aðal-
fundur I. Meðan flesl var voru
85 menn á íundinum en fækkaði
mjög er á leið. Um það bil 17%
nemenda ómökuðu sig á fund-
inn. Ég öfunda ekki nýja stjórn
af væntanigeu hlutskipti sínu því
sú breyting var nú gerð á lög-
um félagsins að fundur telst ekki
löglegur nema 25% nemenda
mæti á hann. Skyldi nokkurn-
tíma verða haldinn löglegur
fundur hér eftir?
En ekki er öll vitleysan eins.
Eftir upplestur á tillögum laga-
hreytinganefndar var óskað eftir
umræðum og þá ekki síst gagn-
rýni á þær tillögur sem fram
voru komnar. Ekki ein einasta
sála steig fram til að lýsa yfir
andstöðu sinni við nokkurt at-
riði breytingartillaganna. Laust
trúi ég því að móðurmálskunn-
átta manna sé svo bágborhi að
þeim sé ekki kleift að gera sig
skiljanlega í eyrum meðbræðra
sinna. Þannig að ástæða þessar-
ar þagnar ætti að hafa verið al-
gert samþykki þeirra í einu og
öllu.
En síðan gerast þau stórmerki
að ein tillagan er felld stein-
þegajndi og hljóðalaust. Vinnu-
brögð og hugsanagangur þessa
fólks er stórfenglegri en orð fá
lýst. Það þorir ekki að opinbera
skoðanir sínar en hugsar sem
svo að það sé allt í lagi að felast
í hópnum þegar að atkvæða-
greiðslunni kemur.
Ef slíkri moldvörpustarfsemi
linnir ekki hið bráðasta mun fé-
lagsstarfsemi í þessum skóla
heyra fortíðinni til að örfáum
árum Jiðnum.
Iiver var þá þessi tillaga sem
hér var um að ræða? Jú, hún var
sú að fulltrúar nemenda í skóla,-
ráðj skuli valdir af hagsmuna-
ráði en ekki kjörnir í almennum
kosningum.
Mig langar til að fjaíla lítil-
lega um hlutverk hagsmunaráðs.
I lögum Hugins segir m. a. um
hagsmunaráð:
„2. gr. Hagsmunaráð fjallar
um og gætir (sameiginlegra)
hagsmuna nemenda gagnvart
þeim sem standa að og sjá um
skólann og skólastarfsemina.
3. gr. 2) Hagsmunaráð fjallar
um vandamál sem upp kunna að
koma koma í sambandi við al-
menn skólastörf.
7. gr. Hagsmunaráð hefur rétt
til að skipa nefndir eða ein-
staklinga lil að starfa við hags-
munamál.“ En hvert skyldi vera
hlutverk fulltrúa okkar í skóla-
ráði? Jú, að gæta hagsmuna
nemenda gagnvart yfirvöldum
skólans og túlka skoðanir skóla-
funda þar. Eins og hvert manns-
barn hlýtur að sjá er hér greini-
lega um að ræða hlutverk hags-
munaráðs.
1 framhaldi af 7. gr. laga um
hagsmunaráð vil ég spyrja alla
þá sem felldu margumrædda til-
lögu. Treyslið þið ekki þeim
fulltrúum sem þið kjósið í hags-
munaráð til að velja hæfa full-
trúa ykkar í skólaráð og gæta
þannig hagsmuna ykkar?
Vonandi eigið þið eftir að
iðrast vanhugsaðra gerða ykkar
áður en brennimark mótsagna-
kennds hugsanagangs og aum-
ingjaskapar dregur ykkur í dilk
óalandi og óferjandi þursa og
dusilmenna.
Stefán Jóliannsson.
HVER ÞEKKIR ÞETTA HIJS?