Muninn

Ukioqatigiit

Muninn - 01.02.1975, Qupperneq 4

Muninn - 01.02.1975, Qupperneq 4
Dóróþea G. * Reimarsdóttir • Dóróþea G. Reimarsdóttir býð ur sig fram sem fulltrúa 5. bekkj ar í Hagsmunaráð. — Af hverju býðurðu þig jratn í þetta embœtti? — Vegna áhuga á að starfa að hagsmunamálum nemenda. — Hefurðu starfað eitthvao áður? — Já. Ég hef starfað í Heima- vistarráði og sem gjaldkeri 5. bekkj ar. — Eru það einhver sérstök mál, sem þú œtlar að beita þér fyrir ef þú nœrð kjöri? — Ég hef nú engin sérstök á stefnuskránni en eftir því, sem málin falla til, mun ég beita mér fyrir þeim eins og mér þykir réttast hverju sinni. — Telur þú nemendur haja næg völd í skólanum, eins og er? — Nei. Má þar nefna skóla- ráð þar sem nemendur eru í minnihluta. Því þarf að breyta. Skólaráð þar sem Vz eru nem- endur á móti % kennara er alls ekki nógu hagkvæmt. Astandið í Heimavistarráði er alls ekki nógu gott þar sem Meistari hef- ur neitunarvald gagnvart stjórn Heimavistar. — Hver er þín skoðun á stjórn áfengismála á vistinni og í skól- anum? — Ég er sammála því, að Meistari iiafi yfirstjórn áfengis- mála á vistinni eins og ástandið er í dag. En það er mín skoðun, að samráð verði haft við full- trúa nemenda í Hagsmunaráði, ef nemandi hefur brotið af sér í sambandi við áfengisneyslu, áður en frekari aðgerðum verði beitt. — En í sambandi við námið eigi að haf aeinhver völd í sam- sjáljt. Telur þú, að nemendur eigi að hafa einhver völd í sam- bandi við val og tilliögun náms- efnis? — Já. Mér finnst, að nemend. ur eigi að fá að ráða þar um að einhverju leyti í samráði við kennara. En þeir hafa hingað til viijað ráða námsefninu upp á eigin spýtur. — Telur þú þá fullyrðingu Steinars Frímannssonar rétta, að núverandi sljórn skólafélagsins hafi verið eins og „sofandi sauð- • O 66 l irr — Það er mín skoðun, að fé- lagslífið byggist ekki upp á stjórn skólafélagsins. Það eru nemendur sjálfir, sem eiga að byggja upp starfið. — En heldurðu að núverandi stjórn hafi stutt nœgilega mikið við bakið á nemendum? — Ég tel að betur væri hægt að gera. — Hvernig leggjast kosning- arnar í þig? — Nokkuð vel. — Bjartsýnn? - Já. — Og þú telur þig ná kjöri? — Já, maður verður að vera bjartsýnn á það. G. R. H. Bjórn Ingimarsson Björn Ingimarsson býður sig fram sem fulltrúa 5. bekkjar í Hagsmunaráð. — Af hverju býðurðu þig fram í þetta embœtti? — Ég býð mig fram í þetta embætti vegna þess að það er mín skoðun að efla beri starf og starfsþrek Hagsmunaráðs. Ég hef það til brunns að bera sem mótframbjóðandi minn hefur ekki sem ég best veit, og það er starfsreynsla á þessu sviði. í þeim skóla sem ég var í, áður en ég kom hingað, þ. e. Mennta- kólanum á Laugarvatni, hlaut ég þá eldskírn að vera kosinn sem fulltrúi þeirra á LÍM-þing og gæta hagsmuna þeirra þar. Og þar sem reynslu er farið að krefj ast æ meir í atvinulífinu, bæði hjá því opinbera og einkaaðil- um, þá finnst mér það vel fara að ég bjóði mig fram í Hags- munaráð sem fulltrúi 5. bekkjar. Og mun ég reyna að gera allt sem í mínu valdi stendur til þess að miðla væntanlegum samstarfs mönnum mínum þeirri visku og kunnáttu sem ég hef fengið með starfi mínu áður fyrr í Hags- munabaráttu nemenda. — IJvað finnst þér um þau völd sem Hagsmunaráð hefur í dag? Finnst þér það vera nógu sterlc slofnun til þes að geta stað- ið vörð um hagsmuni nemenda? — Mér finnst Hagsmunaráð ekki hafa næg völd. Sást það best í fyrra þegar einn af nem- endum skólans var rekinn fyrir það eitt, af vist, að hafa kært Meistara fyrir brot á vistarregl- um. Ályktanir Iiagsmunaráðs voru að engu hafðar og fór Meistari sínu fram hvað sem það sagði. Eins ber að nefna þann þátt er að áfengismálum snert'r. Þar hefur Meistari öll völd og getur rekið menn um- svifalaust úr skóla án þess að Hagsmunaráð komi þar nokkru við. Þetta finnst mér vera algjör óhæfa. Ef Hagsmunaráð á ekki að vera bara nafnið tómt, og ég tala ekki um einhver skraulfjöð- ur M. A. út á við, sem á að sýna hvað frjálslyndi Meistara gagn- vart nemendum er mikil, þarf það fólk sem nú velst í Hags- munaráð að taka sig saman og sýna það svart á hvítu að þeir eru virkilega valinn hópur sem hefur það á stefnuskrá sinni að slanda vörð um hagsmuni nem- enda . — Mig langar til að forvitn- ast um það af hverju þú hejur ekki boðið þig frma áður í ein- liver embœtti skólans þar sem þú hefur áður verið mjög dríf- andi í félagsmálum í M. L. — Já, það er ekki nema von að þú spyrjir. Þetta ár er annað ár mitt í þessum skóla og ég er nú fyrst farinn að þekkja fólkið í þessum skóla. Þegar ég kom hingað fyrst skiptust þeir hópar er hvað mest létu á sér bera í félagsmálum þessa skóla í tvær fylkingar. Hægri og vinstri, er voru mj ög róttækar. Ég átti enga samleið með hvorugum hópnum, þannig, að ég átti mjög erfitt uppdráttar. En nú hafa þessir hópar verið mjög lítið í frammi, sem sést best á því hvernig sá iisti sem ég er á, er skipaður. Ber þar mjög mikið á miðju- mönnum sem lítið hefur borið á í féiagslífi skólans, meðan hinar tvær róttæku fylkingar börðust um völd og áhrif innan skólans. Klíkuskapur innan skóla sem þessum er mjög hætlulegur hvað snertir að hann getur útilokað góða starfskrafta frá því að njóta sín. Starfskröftum sem gætu orðið nemendum og skóla- yfirvöldum til góðs. — Telur þú þá fullyrðingu Steinars Frímannssonar rétta að núvernadi stjórn skólafélagsins hafi verið eins og „sofandi sauð- ir?“ — Já, ég get tekið undir þessa fullyrðingu svo að segja. Eg heyrði nú ekki þessa fullyrð- ingu Steinars frumflutta en get Imyndað mér að hami hafi sett hana fram_ vegna þess hve hon- um hefur fundist félagslífið inn- an þessa skóia vera lítilmótlegt. Og það er alveg rétt. Félags- starfsemin hefur ekki verið fugl eða fiskur. Og það þýðir ekkert að reyna að afsaka þennan dauða, ef svo má segja, með því að benda á aðra skóla og segja: „Þetta er í öllum skóium“. Það hlýtur að vera kappsmál hvers nemanda í þessum skóla að hafa blómlegt félagslíf. Það er alla- vega mín skoðun. Og það fólk sem er á mínum lista er það fólk sem ég treysti best til þess að hrista slenið og rykið af félags- lífinu og hefja kyndil þess upp og láta hann skína sem skærast og lengst. — Og að lokum. Hvernig leggjast kosningarnar í þig? — Ég vona að þessar kosning- ar verði málefnalegar. Lausar við allan persónuskæting og ann an ósóma, sem því miður brydd- ar alltof oft á í kosningum sem þessum. Ég treysti á dómgreind hins almenna nemanda skólans og vona að það sem ég hef sagt í þessu spjalli okkar hafi verið listanum og sjálfum mér til góðs og upplýst nemendur að nokkru um skoðanir mínar og vilja. Að endingu bið ég alla vel að lifa og óska nemendum og skólanum al hins besta í þessum kosning- um. * G. R. H. Haraldur Ingi ♦ Haraldsson Að síðustu tókum við viðtal við Harald Inga Haraldsson, sjálfkjörinn formann Hugins, næsta kjörtímabil. — Ert þú ánœgður með að vera sjálfkjörinn í embœtti for- manns Hugins? — Nei, en þarsem félagslíf í skólanum hefur ekki verið með besta móti fær fólk ekki á- huga á þeim embættum, sem í boði eru. Mér finnst miður að ég skuli vera sjálfkjörinn í for- mannsembættið, því allt um- stang í kringum kosningar er á- kaflega vel til þess fallið, að vekja fólk upp til umhugsunar um félagsmál. — Gœti þetta ekki verið traustsyfirlýsing þar sem er boð- ið fram á móti flest öllum öðr- um ? — Jú, ef til vill, en það væri þá betra að fá þá traustsyfirlýs- ingu í því formi að maður sigr- aði kosningarnar. — Telur þú að til greina gœti komið, að gera þá breytingu á lögum, að enginn yrði sjálfkjör- f inn, þó að hann sé einn í fram- boði, heldur yrði að kjósa um, hvort menn vildu hann eða ekki? — I fljótu bragði sé ég ekkert sem mælir á móti þessari tillögu, en þar sem ég heyri þetta nú í fyrsta sinn, get ég ekki gefið neitt „konkret* svar. — Hvað er þér nú efst í huga, þegar þú átt nú í vœndum að taka við stimplinum og lyklin- um og þeirri valdastöðu, sem þeim fylgir? — Núverandi stjórn hefur nú ekki staðið sig nógu vel. Mér finnst, að formaður skólafélags- ins og skólafélagsstjórnin geti gegnt dálítið veigamiklu hlut- verki innan skólans í því sam- bandi að virka sem hvati, ekki svipa, á félagslíf innan skólans. Þetta er það, sem ég ætla mér að reyna að gera. — Þú telur sem sé að stjórn skólafélagsins geti komið félags- málunum á skrið, þessi félags- legi doði í skólanum komi innan frá? — Auðvitað er þessi félags- legi doði þjóðfélagslegt fyrir- bæri, hanu er ekki bundinn neitt sérstaklega við Menntaskólann á Akureyri. — Hvernig þá? Fylgir hann einliverri ákveðinni félagslegri þróun? — Ég hef gengið í gegnum ýmis þrep hér í skólanum. Þegar ég var hér fyrst í 3ja bekk, var hér mikið félagslíf og mikil á- tök milli vinstri og hægri fylk- nga. Svo dettur þetta niður, því að vinstri mennirnir fóru að leita að sterkari afstöðu til pólí- tíkurinnar og leita út fyrir skól- ann að verkefnum. Nú, nýtt fólk kemur í skólann sem ekki hafði kynnst félagslífi og heldur svo kannski að félagslíf sé ekki til nema sem goðsögn. * — Attu við, að félagslegu upp eldi unglinganna, sem þeir fá í gagnfrœðaskólunum, sé ábóta- vant? — Alveg tvímælalaust. Það er að vísu eitthvað misjafnt eftir skólum. Ég kem úr gagnfræða- skólanum hér á Akureyri og þar er ekkert fyrir hendi, sem hægt er að kalla félagslegt uppeldi og engin félagsleg aðstaða. Félags- málum, að svo miklu leyti, sem þau eru til, er troðið inn á nem- andnan. T. d. á málfundum voru alltaf einn eða tveir kennarar viðstaddir til að gæta þess, að það sem færi fram, kæmi ekki illa við þá á kennarastofunni. — Þú minntist áðan á pólítík í skólanum og þann vinstri arm, sem hefði leitt félagslífið hér áður og þau átök milli hœgri og vinstri manna sem áttu sér stað. Finnst þér það ekki skjóta nokk- uð skökku við það sem áður var, uð nú skulið þið, þú og Guð- mundur Rúnar, tveir hörðustu kommúnistarnir sem eru í fram- boði, vera sjálfkjörnir, meðan kosið er í flest önnur meiri hátt- nr embœtti? — Jú, það er rétt. Ég hef ein- mitt tekið eftir þessu. Ekki held ég þó, að þessu valdi, að fólk sé almennt orðið vinstri sinnaðra, en áður var. Líklega er ekki eins sterk hægrj klíka hér í skólanum eins og var. Þeir hægri sinnuðu leggja ekki í það að bjóða fram á móti okkur, bara af pólítískum ástæðum. — Telurðu þá, að það sé pólí- tískt einkenni innan skólans, að miðjumanna gœti meira en áið- ur? — Já, það má nú kannski segja, að þeirra gæti meira, a. m. k. meira heldur en hér fyrir 3 árum, þegar ég var í 3ja bekk. — Nú ert þú í framboði á sama lista og maður, sem eitt sinn var talinn vera nasisti. Hvað vilt þú segja um það? — Hagsmunaráð hefur verið ákaflega bitlaus stofnun undan- farið og persónulega finnst mér að Sigurður Sigfússon geti breytt því til batnaðar. Hann er einarður maður og hitt er svo annað lika, hvort hann hefur nokkurn tíma verið nasisti. Ég tel hann einmitt til þessa miðju- hóps, sem minnst var á áðan. Ég tel ennfremur að pólítískur skoðanamismunur okkar skipti ekki meginmáli, aðalatriðið er að breyta þessu „passíva“ á- stand. Sigurður er til alls lík- legur í því sambandi. Það kemur oft fyrir, að þegar einhver nemi í skólanum er ó- rétti beittur, að aðeins lítill hóp- ur veit af því. Þetta þarf að koma í veg fyrir og mér finnst að þeir menn sem starfa í Hags- munaráði og skólastjórn fyrir nemendur ættu að vera upplýs- ingaskyldir. Það tryggir miklu raunhæfari baráttu gegn þeim öflum, sem við er að etja, en merkir ekki endilega að nemend- ur eigi að standa í sífelldu stríði við yfirvöld, það þarf fyrst og fremst að fylgja málunum betur eftir. — Hver telur þú helstu hags- munamál nemenda í dag? — Þau eru auðvitað ótal mörg. Mér finnst t. d., að nem- endur ættu að fá meiri og virk- ari völd við stjórnun skólans. frh. á bls. 5 4 - MUNINN

x

Muninn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.