Muninn

Volume

Muninn - 01.02.1975, Page 6

Muninn - 01.02.1975, Page 6
MUNINN 4. Ibl. 47. árg. Ritstjórn: Ingólfur Á. Jóhannesson (ritstjóri og ábyrgðar- maður), Gísli Ingvarsson og Guðmundur Rúnar Heiðars- son. Útgef.: Skólafél. Huginn. Prentun: Prentsm. Bj. Jónss. FRÁ SKÁKFÉLAGI M.A. ÆVINTVRI „Einu sinni voru kónsur oa Miðvikudaginn 5. 2. 1975 var aðalfundur S. M. A. haldinn. Málefni fundarins voru eftirfar- andi: 1. Inntaka félaga. 2. Lög félagsins. 3. Kosning stjórnar og ýmis mál. I stjórn félagsins voru kosnir: Gunnar Þórisson 5.-F íormaður, Einar Birgir Stein- þórsson 4.-Þ ritari og Egill Jóns son 4.-Þ gjaldkeri. Talá félagsmanna er nú á bil- inu 30—40 og hefur fjöldi fé- laga sjaldan verið jafnmikill. Á- haldakostur félagsins var vægast sagt mjög bágborinn og reynd- ist nauðsynlegt að fá töfl og klukkur að láni hjá Skákfélagi Akureyrar en nú hefur félagið fengið slyrk frá Skólafélaginu til kaupa á skákklukkum og töfl um. Mjög mikil gróska er nú í skáklífi M. A. og er t. d. húið að halda tvö taflmót með stuttu millibili. Fyrra mótið (hraðmót) var haldið 28. 1. og urðu úrslit sem hér segir: 1. Gunnar Þórisson, 5.-F. 12 v. 2. Egill Jónsson, 4.-Þ. 11 v. 3. Marinó Kristinss. 6.-T. 9V2 v. 4. Ásgeir Stefánsson, 3.-B, 9 v. 5. Árni Jósteinsson, 3.F, 8V2 v. (Keppendur voru 14). Seinna mótið var hinsvegar haldið 12. 2. (umhugsunart. 15 mín.). Teflt var í tveim riðlum og urðu úrslit eftirfarandi. A-riðill: 1. Marinó Kristinsson, 6.-T, 6V2 vinningur. 2. Jóhannes Sigurj ónsson, 5.-X, 5 vinningar. 3.—4. Jóhannes Jóhannesson, 5.-F, 4X vinningur. 3.—4. Einar Birgir Steinþórs- son, 4.-Þ., 4)4 vinningur. B-riðill: 1. Ottar Ármannsson, 3.-D, 6)4 vinningur. 2. Egill Jónsson, 4.-Þ, 6 vinning- ar. 3. Sigurður Örn Leósson, 4.-B, 4)4 vinningur. 4. Hartmann Ásgrímsson, 5.-U, 3% vinningur. (Keppendur voru 8 í hvorum riðli). Þessir 8 efslu munu síðan tefla lil úrslita. Áform Skákfélagsins eru ým- isleg t. d. verða skákæfingar einu sinni í viku, fjöltefli verð- tefli haldið, skólamót hefst í byrjun 3. annar og í undirbún- ingi er keppni við „geysisterkt“ kennaralið. — Stjórn S. M. A. Ong- 11IB iim- ans Öngull tímans lokkandi egndur í styrkum streng frá þumli Alföður. Skálverk straumsins seiðandi niðar sofandi djúpið jmgult vefur dökkar voðir. En aflahár Alfaðir brosir í kampinn og gerir að. /• drottning í ríki sínu. Þau hétu Jónas og Anna. Þau áttu tvo krakka, sem hétu Helga og Stein- ar. Þau áttu líka fósturbarn, sem hét Guðrún. Hún var mjög út- undan. Þessi kóngsf j ölskylda hugsaði mest um að græða pen- inga og beitti öllum brögðum til þess. Fyrir vikið var fjöl- skyldan ekki vinsæl meðal ná- granna sinna. Þegnar kóngs- hjónanna voru um 100 talsins. Stundum þegar mikið lá við, skipuðu þau þegnum að koma og vinna við að græða peninga. I fyrsta skiptið, sem fjölskyldan beitti sínum hellihrögðum með árangri, urðu talsvert margir fyrir harðinu á henni. Hún efndi lil samkomu fyrir þegna sína og hafði á borðum veitingar: þurrt hrauð, svo að þegnarnir neydd- ust til að kaupa sér vökvun, svo að brauðið stæði ekki í hálsin- um. Anna drottning og Helga prinsessa sáu um að pranga drykknum og högnuðust þær vel á því. Ekki tókst Jónasi kóngi þó síður upp við að stjórna þeirri stórhætlulegu fj árplógsstarfsemi sem bingó nefnist. Enda grædd- ist konungsfj ölskyldunni mikið fé á bingóinu. Eftir þennan atburð vöruðust allir þessa fjölskyldu um nokk- urt skeið, en jafnskjótt og tók að fyrnast yfir atburðinn, fundu skötuhj úin og krakkagrisling- arnir upp á nýrri aðferð til að þéna. Sú aðferð var miklu við- sjárverðari og hættulegri en hin fyrri, og er þá nokkuð sagt. Uhdirbúningur liófst snemma dags. Prinsessa hófst handa við að safna pottum um gervallt kóngsríkið, setti bygg í alla pottana og sauð þangað til byggið sprakk, fyllti pottana afL- ur af byggi og sauð þangað til byggið sprakk. Þetta gerði hún aflur og aftur, fram undir kvöld. Við útsprungna bygginu, sem þá hét popp, tók drottningin, sem komin var í nornalíki, bland aði salti saman við og pískaði tvo þegna §ína við að troða poppinu í poka. Á meðan þutu feðgarnir um allt; prinsinn fór og keypti mikið magn af drykkj- arföngum, en kóngsi hóf aug- lýsingaherferð. Slagorðin voru: F ramsóknarvist — Stórglœsileg- ir vinningar — Okeypis popp að vild — Aðgangur AÐEINS hundrað kall —- komið og notið þetta einstæða tækifæri! Furðu- margir létu blekkjast af þessum svívirðilega lygaáróðri konungs- fjölskyldunnar og komu á til- setturn tíma á samkomustað. Aumingja gestirnir gáðu ekki að sér og rifu poppið í sig af mikilli græðgi. En afleiðingarn- ar af salti Önnu drottningar sögðu fljótt til sín. Geypilegur þorsti greip þá, og þeim var nauðugur einn kostur að kaupa sér fljótandi við þorstanum. En drykk var hvergi að fá nema á okurverði í sjoppu kóngs og drottningar. Seldust birgðir upp á skömömum tíma og gróðinn var mikill. SaZí-bragðið hafði verið gott. ö En konungsfjölskyldan hafði fleiri járn í eldinum. Hún hafði undirbúið yfirgripsmikið spila- Hví starir ekki alþýðan í gaupnir sér og grætur guggnuð í baráttunni hörðu? Því alþýðan til lengdar hlut sinn ekki lætur og enn þá ber hún grellistök að sósíalískri vörðu. Þó til séu þeir menn sem vilja þessa vörðu verkalýðs og námsmanna jafnaða við jörðu, svindl. Ætlunin var að vinna öll verðlaunin, bæði fyrir flesta og fæsta vinninga. En nú brást þeirn öllum bogalistin, nema drottningunni. Hún reyndist öll, þar sem hún var séð og fékk langflesta vinninga og jafnframt aðalverðlaunin. Það er ósk mín og ætlan með þessari stuttu frásögn af þeim kóngshjónum Jónasi og Önnu, prinsessunni Helgu og prinsin- um Steinari, að bæði þegnar þeirra og aðrir, sjái þeirra rétta innræti og eigi auðveldara með að varast þau í framtíð- inni.“ Þetta stutta œvintýri, sem er til- einkað belckjarráði 4ða bekkjar, vorið 1973, var gert aðjaranótt 11. maí 1973 að lokinni jra.m- sólcnarvist, sem Iði bekkur stóð að. F. h. liöjundar Ingóljur A. Jóhannesson. þá látum ekki hugfallast minn hjartans bróðir, því hugsjón sinni alþýðan er sönnust móðir. Bindum hiklaust vonir við nýj an betri heim; bakhjarl vor er lífsins þrá og gleði. Bakhjarl vor er krafturinn í allþýðunnar geði og sjálf erum við bakhjarl með okkur sjálf að veði. — g „Okkar tími okkar líf það er okkar fegurð“ ATHUOASEMD - Vegna bréfs, sem „HEXÍAZ“ sendi mér, langar mig til að gera nokkrar athugasemdir. „HEXÍ- AZ“ segist ekki geta skilið af- stöðu mína, um það að ég vilji fá að vita nafn hans (hennar), á annan veg en ef einhver færi að klaga undan vísunni. Það er rétt skilið hjá honum (henni), að ég her ábyrgð á öllu nafnlausu efni í blaðinu. Ég ber eftir sem áður E ábyrgð á því efni, sem birt er nafnlaust, þótt ég viti, liver höf- undurinn er. Væri ég hins vegar sóttur til saka fyrir það efni, get ég þó haft samband við höfund- inn. Hitt er svo annað mál að undan vísum „HEXIAZ“ ætti engum að sárna. Ég skil svo sem ágætlega afstöðu „HEXÍAZ“, varðandi feimni hans (hennar) gagnvart viðtökununi við vísun- um og virði jafnframt þá já- kvæðu viðleitni hans (hennar) að láta í sér heyra. Það er auð- vitað gaman líka, „HEXÍAZ“, að geta fylgst óáreitt(ur) með viðbrögðum fólks við kveðskapn um. Ég býst við því, að þú njótir þess ög eigir eftir að glotta ó- geðsleg yafir því. Ég vil að lok- um enn ítreka það, að nafn sé látið fylgja öllu efni, sem sent er til birtingar. Hins vegar verð- ur efnið að sjálfsögðu birt undir dulnefni, sé þess óskað. Ritstj. Gólfmotlan (með kveðjiu til IJIfars) Kennarinn hrópaði yfir bekkinn: „Þurrkið af fótunum." Hann slapp með skrekkinn, því við vorum á sokkunum. HEXÍAZ.

x

Muninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.