Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1912, Qupperneq 4

Heimilisblaðið - 01.05.1912, Qupperneq 4
36 HEIMILISBLAÐIÐ Til hvers er grasafræðin? (Eftir kennara Gu8m. Hjaltason). III. Grasavinur verður að œtijarðarvini. Sá sem er vel grasafróður, hlýtur smátt og smátt að elska gróðrarríkið, fegurð þess og tign, fjölbreytni þess og eining, og svo um leið hverja plöntu út af fyrir sig. Einkum plöntur þær, sem upplifga og uppljóma eyði- merkur vorar. Margar þeirra eru einhverjar fallegustu plöntur iandsins, t. d. hoitasóley og lambagras. Plöntuelskan vekur svo hjá honum ást til ættjarðarinnar, sem elur þessa fegurð og dýrð í sínum kalda jökulfaðmi. Plöntuelskan kennir honum að þakka þeim, sem gaf oss plönturíkið. Jurtavinurinn veit manna bezt; að án þeirra væru mennirnir og dýrin ekkert. Ekki þurfa grösin mannsins við. í ótal aldir stóð ísland alklætt blómskrúði ■og skógardýrð, áður en nokkur lifandi maður leit það. Við eigum vort líkamlega líf undir náð jurtaríkisins. Vér lifum ætið eins og þyrst og svöng börn á brjóstum þess. Það íórnar sér ósjálfrátt fyrir oss, vér lifum á fórnarblóði þess; það er vor jarðneski fóstur- faðir og frelsari. Virðum því og elskum jurtaríkið, förum vel með það, veiturn því skjól og verjum það tortímingu og ræktum auðnir vorar, svo „Eden myndist á mel og hrauni, mýri og sandi“. £Prh.]. r 0, þu ung'lingafjöld! Bú sólgyðjan helga, kom heim til vor nú og hitaðu alt sem er dofið, og sendu’ okkur geisla’ yfir bygðir og bú, á bæjunum nóg er nú sofið. Já, vektu’ okkur sólgyðja, sendu’ okkur y], þó seint sé, þá byrjum um miðaftansbil. Svo tökum til starfa, vér ungmenni öll, því okkar er veginn að ryðja, þótt lagður hann veröi um firnindi’ og fjöll, mun framganga’ og blessast vor iðja. Og „aldrei að vikja“ — þó erfið sé braut, — vort orðtak skal vera í sérhverri þraut. í útlegð skal reka hvern óheillagest sem innar í hugskoti leynist. Oss sjálfa vér þurfum að bæta sem bezt, til blessunar drjúgast það reynist; og menningarbrautin þá gjörist oss greið, og glögg verða merkin á framsóknar leið. Spói. Síðasti dansinn. (Smásaga eftir Alvilrla Madse n). Hershöfðingjafrúin sat vift gluggann í dag- stofunni og starði unaðsfanginn á rósviðinn. Hún hafði hirt um hann, og hlúð honum eins vel og hún framast kunni. enda auðnast sú gleði — á miðjum vetri — að sjá hann blómstra. En, hún var aðeins ein krónan, sem hafði opnað sig — en hún var yndis- leg — og dökkrauðu rósablöðin hennar voru svo mörg og stór, að leggurinn sem át.ti að bera hana uppi — hampa henni móti ljós- inu — bognaði undan þunganum. Augu gömlu konunnar ijómuðu af ánægju enda voru þær ekki margbrotnar ánægjustund- irnai hershöfðingjafrúarinnar. Árin höfðu komið — og farið og sorgin beygt þessa viðkvæmu og blíðlyndu konu. Hárið var silfurgrátt orðið — en þó augun væru þreyt.uleg var viðmótið hlýlegt. Bau áttu 3 börn, hershöfðingjahjónin — tvo sonu og dóttur. Synirnir voru herfor- ingjar, en óreiðumenn og skulduðu víða. Gat faðir þeirra engu tauti komið á viö þá, og tók því að lokum það ráð að senda þá eitt-

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.