Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1913, Síða 3

Heimilisblaðið - 01.12.1913, Síða 3
HEIMILISBL AÐIÐ 93 Ungmennafélagar: Reynum að hreinsa og grœða; byrjum á okkur sjálfum; verðum fyrirmyndir annara í öllu sönnu og góðu. Lærum að þekkja oss sjálfa. Skipum okkur undir merki ljóssins og kærleikans, og berjumst sem góðir hermenn Betlehems- barnsins og verum trúir. Elskum sann- leikann og réttlætið. Skammdegið er á enda. Sólin fer að hækka á lofti. Hefjumst nú handa kæru félagarog göngum i lið með sólunni og birtunni. Og með þeirri ósk og von, að fæðingar- hátið frelsara vors verði oss öllum sönn gleði- og kærleikshátíð, óska eg ykkur öllum gleðilegra jóla. D. J. lóðirin úii við sæinn. (Hún syngur við litla drenginn sinn). I nótt er svo kalt og ömurlegt alt; þér barnið mitt blítt, við barminn sé hlýtt. Geisar kolbikað kaf, orgar kynjafult haf við grandann í grið, í grenjandi hríð, og illviðrisguðinn í úlfshami grá sig teygir á tá yfir tindana há. Og pabbi á sæ, en bí-bí i bæ eg syng við minn svein, í sorginni ein, meðan brimveldið blátt, rífst við blidhriðarmátt um fiskimanns fjör og fisléttan knör. Æ, sofðu nú barn mitt; á verði eg verð meðan voði’ er á ferð, og þótt sál nísti sverð. Hér bý eg í bæ, við brimhljóðið æ, en láti’ hann sitt líf, sé líf mitt þín hlif, — heyri’ eg hveimleiðan hvin, líkan helreiðardyn, og svipir af sjá mér sundvotir hjá, og hafið mér opnast með brim sitt og böl, rjúka feigðardjúp föl, sé eg föður áfkjöl. Lít i náð á min tár, Guð himnanna hár, lát stórsjóastríð nú stöðvað og hríð, vertu hjálp hans og hlíf, hríf úr háska hans líf, þess bið eg og bið unz birtir upp hríð. Æ, sofðu nú barn mitt; á verði eg verð, meðan voði’ er á ferð, og þótt sál nisti sverð. * * * Heyrði móðurorð sár, Guð himnanna hár, því að stórsjóastríð er stöðvað um sið, komnir sjómenn af sæ, nú er sólskin í bæ, því að faðirinn fljóð sitt faðmar og jóð. Guð kærleikans vakir með ylsól á arm yfir fiskimannsfarm, yfir fátækt^og harm. Jón Bunólfsson. læFlsiksríki siórhertogiiin. Hinn þjóðkunni rithöfundur, hirðprestur- inn Emil Frommel segir svo frá: „Faðir minn, sem var forstöðumaður listasafnsins í Karlsrute, sem aðallega var verk Leopolds stórhertoga af Baden (dáinn 1852), hafði oft mikið saman við hinn eðallynda höfðingja að sælda, einkum hvað snerti kaup á mál- verkum, styrk til listamanna eða að efla listasmekk þjóðarinnar. Einu sinni sem oftar kom fallegt málverk eftir alkunnan málara. Það var sent með’ þeirri ósk, að það yrði keypt til safnsins. Þegar stórhertoginn kom að skoða myndina, féll hún honum mjög vel í geð, og hann hafði ekkert á móti því að borga hina til-

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.