Heimilisblaðið - 01.12.1913, Side 6
96
HEIMILISBLAÐIÐ
um yíir hinni leyndardómsfullu ráðstöfun
Drottins, er hann sendi son sinn eingetinn í
heiminn, og lét hann fæðast sem fátækt barn
í jötunni i Betlihem. — „Það er naumast
þú ert í þönkum, elskan min“, mælti konan
hans, sem kom inn til hans. — „Þú heyrir
ekki að hann Hans litli grætur inni i stof-
unni. Góði komdu inn til hans og ruggaðu
honum. Jólahelgin er að byrja, og eg á svo
mikið ógert enn“. — Lúther gerði þaðjstrax,
þvi honum þótti mjög vænt um konu sína.
Hann tók biblíuna sína, settist við vöggu
litla sonar síns og fór að lesa um blessaðan
alheimsfrelsarann. Hjarta hans fyltist af
sælum fögnuði og djúpri Iotningu. Hann
tók hörpu sína og fór að syngja og
spila. Og þarna, við vöggu barnsins síns,
■orti Lúther jólasálminn:
„Ofan af himnum hér kom ey“,
og bjó til lag við hann jafnframt. Sá sálmur
hefir siðan verið sunginn uni gjörvalla kristn-
Ina. — Lúther var síðar mjög þakklátur
honu sinni fyrir að hafa beðið sig að hugga
<3renginn litla þetta aðfangadagskvöld.
Stjörnuspekingurinn Athanasius Kirchner
■átti vin, sem var trúleysingi og hélt því fram,
að Guð væri ekki til. — Einn dag kom hann
til Kirehner vinar sins sem oftar. Kirchner
var þá upptekinn í svip við stórt reiknings-
dæmi. Á meðan virti trúleysinginn fyrir
sjer stórt jarðlíkan (Globus), sem stóð á borð-
inu. — „Hver hefur búið til þetta jarðlikan?“
spurði trúleysinginn. — „Enginn hefur búið
hann til; hann hefur orðið til af sjálfu
sér“, mælti Kirchner. — „Ertu að draga dár
að mjer?“ spurði vinur hans með þykkju.
— - „Því heldur þú það“, svaraði Kirchner.
„Ef þessi eftirliking jarðar vorrar getur ekki
hafa orðið til af sjálfu sér, hvernig getur þá
jörðin sjáif — já alheimurinn, hafa orðið til
af sjálfu sór. Þessu heldur þú þó fram“.
Til er þessi smásaga um enska stjórn-
málamanninn Gladstone. Sýnir hún vel eina
hlið hins sanna mikilmennis:
Gamall maður hafði haft það starf á hendi
í fjöldamörg ár, að sópa tröppurnar fyrir
framan Parlamentsbygginguna. Einu sinni
lagðist hann veikur. Sóknarpresturinn kom
þá einu sinni til hans, þar sem hann lá í
fátæklega herberginu sínu. — —Kemur nokk-
ur til yðar? spurði presturinn.— „Já, Glad-
stone“. — „GIadstone!“ át presturinn upp
eftir sjúlingnum. — „Já, hann kemur oft til
mín og les fyrir mig kafla úr ritningunni.
Hann situr þá altaf í stólgarminum hérna
við höfðalagið mitt“.
Það var yfirráðherra hins mikla Breta-
veldis, og heimsins snjallasti stjórnmálamað-
ur, sem hafði tíma til þess, að Iíta inn til
gamla mannsins aldraða og sjúka og lesa
fyrir hann í Guðs orði. Hann hafði næg-
antíma, af því hann hafði nægan kærleika.
„Skinfaxi“, mánaðarblað U. M. F. í., 16
stórar síður i senn, kostar 2 krónur. Ræðir
áhugamál ;unga fólksins og flytur myndir.
Óbrúkuð íslenzk frímerki
eru seld á Linclargötii 34.
Barnahókin „Fanney“, úrvalssögur,
þýddar og frumsamdar, falleg kvæði og
myndir o. fl. Heftið kostar 50 aura.
Öll fimm heftin innbundin í bók, er ljóm-
andi falleg og góð tffiklfærisgjðf.
I»ór0ur Jónsson, úrsmiður
Aðalstrœtl 0,
hefir ætið úr, klukkur, gullskúfliólka
og allskonar skrautgripi.
Rciðliiól og alt til þeirra.
Viðgerð á úrum fljótt og vel af hendi leyst.
Utgefandi og ábyrgðarmaður:
Jón Helgason, prentari.
Félagsprentsmiðjan.