Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.10.1914, Blaðsíða 5

Heimilisblaðið - 01.10.1914, Blaðsíða 5
HEIMÍLISBLAÐIÐ 75 ingar Djraverndunarfélagsins og að þær komi þeim og öllum landsmönnum að góðum notum; þá er tilgangi útgefenda þeirra náð. Bendíngar frá Dýraverndunarfélaginu. Farið vel með hestana, notið þá ekki halta eða meidda; hnýtið aldrei aftan í; notið ekki vír eða járnsvipur; hnýtið ekki upp í hestana; látið þá ekki ganga járnalausa; hafið sprettina stutta og athugið vel reiðverin og aktýgin. Látið ekki ökuhestana bæði draga og bera. Loíið hestunum að drekka. Týnið ekki hundinum ykkar, en hafið hann með hálsbandi, ef hann kynni að týnast. Sigið ekki grimmum hundum á neinar skepnur. Skjótið ekki fuglamæður frá ungum. Munið eftir friðunarlögunum. Klippið sauðféð, en rifið ekki af þvi ullina, síst þegar hún er flókin. Hafið hús fyrir allan ykkar fénað. Kaslið út mylsnu fyrir snjótitlingana. Hafið það hugfast, að mennirnir hafa leyfi til að nota skepnurnar, en alls ekki til að fara illa með þær. Fáum skepnum öldum fylgir gagn og sómi. Mörgum skepnum kvöldum fylgir skaði og skömm. Setjið skynsamlega á heyforðann. Hollur er haustskaði. Burt með hordauðann! IpakmoBli í ljóðum. Þess er ei hvervetna þörf að þreifanleg sannindin birtist. Nóg er ef sálin í sér, samhljóðun finnur með þeim. Goiithe. * * * Markið fagurt og fast framyfir alt skyldi taka. Innihaldseining þá fær æfin, þó breytileg sé. Joh. v. Múller. * * * . Máttur i anda manns er aflinu gufunnar líkur. Fjöldanum færari ert þú finnirðu’ og notirðu hann. L. Börne. !§eijkitréð fruarinnar. Eftir Agneta Tyregod. [Niðurl.] VII. Dagurinn kom, er menn væntu hins nýja eiganda. Kristín, sem átti að vera ein af þeim fyrstu er tæki móti honum, beið inni í stofunni. Henni fanst einhver undarlegur þungi þrengja að sér. Það nálgaðist vagn, er nam staðar úti fyrir dyrunum, og hún heyrði einn heimamanna segja: „Nú komið þér víst til að taka við jörðinni!" Aðkomumaðurinn svaraði: „Ekki aðeins jörð- inni, heldur og öllu sem á henni er“. Kristín ætlaði að standa upp, en gat það ekki. I sömu svipan opnuðust dyrnar og inn kom maður, sólbrendur í andliti. „Kristín!" hrópaði hann og hraðaði sér til hennar. „Kæra, litla Kristín mín! hérna fann eg þig þá á endanum“. Kristín svaraði ekki. Iliin starði bara á Jörund, því það var hann, eins og hún tryði ekki sínum eigin augum. „En Jörundur, ertu þetta sjálfur‘?“ hvíslaði hún loks. „Já, litla vina mín, jeg er þetta sjálfur. Og var það ekki góð hugmynd hjá mér að kaupa jörðina? „Jörðina . . .? Ert það þú, sem hefir keypt hana? En það var sagt að eigandinn ætlaði bráðlega að gifta sig?“ „Það ætlar hann líka . . . viljir þú nokkuð með hann hafa, flónið mitt litla! sagði Jörund- ur hlæjandi, „en nú verður þú að fá að lieyra hvernig mér hefir gengið“. Og hann sagði frá hvernig hann hefði brot- ist áfram, fyrst sem háseti, svo stýrimaður og loks skipstjóri, og nú hafði hann þrjú skip hlað- in dýrindis vörum frá heitu löndunum. „Þú getur varla ímyndað þér hvað mikið

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.