Heimir - 01.11.1913, Blaðsíða 9
HEIMIR
105
Ég brenn.
Ó, þú alvíöi geimur,
ó, þú lifandi heimur!
Þínum arni ég fæddist eg fórnast—ég brenn!
Þú átt alt, sem ég á,
alt er lánaö þérfrá:
öll mín æfinnar þrá,
atvik stór eöa smá.—
Ég er neistinn, sem mátt þínum sameinast senn.
Ég brenn.
þorsteinn fi. fiorstcinsson.
Kenningar Nýju Guðfrœðinnar.
Skoðun Prdf. Jóns Helgasonar á persónu Jesú.
Fyrirlestur fluttur á Menningnrfjelagsfundi 19. Nóv. 1913.
Kæru vinir: Erindi þetta er held eg fyrsta erindiö sem eg
hefi flutt á Menningarfjelagsfundi, sem snertir trúmál og
kyrkjulegt efni. I þau 7 ár sem þetta Menningarfjelag vort er
búiö aö vera til, hefi eg fylgt því sem fyrir stofnendum þess
vakti, aöallega, að þaö skyldi fremur starfa á þeim sviöum sem
fyrir utan liggja prjedikunarstólinn heldur en aö grípa inn í
verkahring kyrkjunnar..
Þó var ekki svo aö sklija aö ekki væri öllum heimilt aö
ræöa þau mál er viðkæmi trúbrögöum á íundum hjer, enda
hefir þaö veriö þrásinnis oft gjört. Þannig hefir til dæmis, séra
Friðrik J. Bergmann í þeim eina fyrirlestri sem hann flutti
hjer, tekiö kyrkjulega starfsemi sjer aöallega til umræöu.
llann talaði um skoöanir, stefnu og starfssvið frjálstrúar þing-
anna er Unitarar í Boston komu fyrst af staö og haldin hafa