Brúin


Brúin - 23.11.1929, Síða 2

Brúin - 23.11.1929, Síða 2
2 bRÚlN BRÚIN Vikúblað, kemur ut á hverj- um laugardegi. Útgefendur: Nokkrir Hafnfirðingar. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Þorleifur Jónsson. Sími 120. Auglýsingar, afgreiðsla og innheimta: Helgi Guðmunds^on. Sími 47. H.f. Prentsm. Hafnarfjarðar. Bæjarstjórnarfundur varhaldinn síðastliðinn þriðjudag. Þar voru þessi mál á dagskrá: 1. Lagt var fram svohljóðandi Uppkast að fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 1930. TEKJUR: 1. Hreinsun sorps og sal- erna.................kr. 7 000.00 2. Sóthreinsun . ,......— 2 000,00 , 3. Hundaskattur ......— 200,00 4. Vatnsveitan......., . — 43 000,00 5. Lóðagjöld og jarðaafgj. — 17 000,00 6. Barnaskólinn.........— 700,00 7. Fátækrastyrkur endur- greiddur.............— 25 000,00 8. Fyrri ára bæjargjöld . . —' 10 000,00 9. Girðingargjald og haga- tollur...............— 3 000,00 10. Byggingaleyfisgjald . . — 900,00 11. Gamli barnaskóiinn . . — 3 500,00 12. Bæjarbyggingin 2400,00 13. Sandur og möl.......— 2 000,00 14. Holræsagjald........— 7 000,00 15. Niðurjöfnunargjald . . . — 210 000,00 Samtals kr. 333 700,00 GJÖLD: 1. Launfastrastarísmanna a. Bæjarstjóri.......kr, 10 000,00 b. Bæjargjaldkeri: föst laun kr. 2 000,00 0/0 - — 4 000,00 kr. 6 000,00 c. Lögreglueftirlit. ... — 1400000 d. Ljósmæður.............— 2 000,00 e. Hreinsari ............— 7 000,00 f. Fátækrafulltrúi .... — 1 800,00 g. Sótari................— 2 000,00 h. Hjúkrunarkona. ... — 3600,00 i. Bæjarverkfræðingur. — 5 400,00 j. Endurskoðun.......— 800,00 2. Barnaskólinn. ......— 30600,00 3. Húsnæði fyrir bæjarstj. — 800,00 3. Afborganir og vextir lána......................— 106 000,00 5. Fátækrastyrkur........— 70 000,oo 6. Vegir. . . . ,............— 10 000,oo 7. Vatnsveitan . ............— 10 000,oo 8. Holræsi...................— 10 000,oo 9. Bjargráðasjóður.......— 800,oo 10. Stúdentagarður.......— 1 000,oo 11. Sjúkrasamlagið.......— 2 000,oo 12. Götulýsing...........— 3 500,oo 13. Ljós til spítalans .... — 2000,oo 14. Girðingin............— 1 000,oo 15. Sundkensla...........— 1 000,oo 16. Bæjarbyggingin.......— 1 000,oo 17. Gamli barnaskólinn. . . — 1 500,oo 18. Verkamannaskýlið ... — 1 800,oo 19. Alpýðufræðsla (sömu skilyrði og áður).....— 500,oo 20. Berklaveikrastyrkur . . — 6 600,oo 21. Bókasafnið............. — 2 500,oo 22. Sandur og möl........— 2 000,oo 23. Brunamál.............— 2 000,óo 24. Alpingishátíðin......— 3 000,oo 25. Flensborgarskóli (ný bvggging) - 5 000,oo 26. Óviss gjöld . ......... — 6 500,oo Sanitals kr. 333 700,00 Einn nefndarmannanna, Ásgrímur Sigfússon, hafði skrifað undir með fyrirvara og vildi lækka upp- hæð þá er jafna skyldi niður vegna burtflutnings stórra gjaldenda er flutt hafa úr bænum. Var áætluninni umræðulítið vís- að til annarar umræðu. Hverjum bæjarfulltrúa var afhent 1 eintak áætlunarinnar til athugunar fyrir næsta fund. Telja má líldegt að áætlunin taki einhverjum breyt- ingum, þar til hún verður sam- þykt. 2. Kosning niðurjöfnunarnefnd- ar fyrir árið 1930. Komu 2 listar fram, A og B listi. A listi fjekk 6 atkv. og hlutu kosningu: Emil Jónsson, Guðjón Gunnarsson og Gísli Kristjánsson. B ’listi fjekk 2 atkv. og hlaut kosningu: Þor- leifur Jónsson. Þessir varamenn hlutu kosningu; af Alista: Björn Jóhannesson, Valdimar Long og Böðvar Grímsson, af B lista: Sig- urgeir Gíslason, allir með sömu atkvæðum og aðalmenn. 3. Lesin upp fundargerö vega- nefndar þar sem hún leggur til, að börnum og unglingum í bæn- sje leyfð umferð á sleðum og skautum á Kirkjuvegi, Gunnars- sundi og Bröttugötu, og að bif- reiðaumferð sje um leið bönnuð á götum þessum, þegar færi er þar fyrir sleða og skauta. Fundargerðin kom ekki til at- kvæða en í stað þess var samþ. svohljóðandi tillaga: „Bæjarstjórnin samþykkir að fela skólanefnd, að láta gera skíðabrekku vestast í skólalóð- inni ofan af hraunbrúninni, og að eftirlit sje haft með sleðaferð um barna á því svæði. Ennfrem ur er skólanefnd falið að athuga íleiri staði til barnaleika, t. d. Undirhamarstún og Bryðisgerði". 4. Lesin var upp fundargerð raf- ljósanefndar og samþ. Einnig var svohljóðandi tillaga samþ.: „Bæjarstjórnin felur rafljósanefnd að athuga hvort húseigendur í bænum hafi eigi rjett til að krefjast íif ljósastöðinni fleiri en eins mælis í hvert hús“. 5. Fasteignamál. Samþykt var að veita hr. Jóh. Sjursen afsal fyrir húseign þeirri, er bærinn seldi honum, með sömu rjettindum og bærinn hafði eign- ast hana. Einnig var eftir nokkr- ar umræður svohljóðandi tillaga samþ.: „Fasteignanefnd leggur lil að bæjarstjórn samþykki, að Magnúsi Magnússyni sje leigð 3 metra lóðarræma til viðbótar byggingarlóð hans á Vesturbrú, gegn 4o o gjaldi af 3,50 kr. pr. fermeter. Einnig var samþ. svohljóðandi tillaga frá Ásgrími Sigfússyni: „Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarverkfræðingi að gera tillög- ur um, hvort og hvernig hægt sje, að koma fyrir smekklegum sam- byggingum eða þjett settum húsum á hentugum stöðum í bænum, þar sem hvert hús hafi stóra baklóð, en aðaláhersla sje lögð á að spara lagningu nýrra vega og langra holræsa og vatns- æða, svo að fasteignanefnd geti vísað á þessi hverfi, í stað þess að leigja lóðir hjer og þar úti um hraunið". 6 Lesin var upp tilkynning frá borgarstjóra Reykjavikur, þar sem hann tilkynnir bæjarstjórn Hafnarfjarðar, að nefnd hafi verið kosin innan bæjarstjórnar Reykja- vikur, sem ætlað sje að starfa að ýmsum sameiginlegum málum bæjanna. Umræðum og ákvörð- unum út af erindi þessu var frestað. 7. Lesið upp erindi frá verk- fræðingi bæjarins, Emil Jónssyni, þar sem hknn fer fram á 150 kr. launahækkun á mánuði, eða úr 450 kr. upp í 600 kr. Var því vísað til fjárhagsnefndar. 8. Bæjarstjórnin samjiykti að auglýsa bæjarstjórastöðuna fyrir Hafnarfjarðarbæ, samkv. gildandi lögum. Prá Grænlandsför „Gottu“ eftir Kris/ján Kristinsson, stýrmann. Kl. 8 að morgni hinn 10. ágúst var lagl af stað í nýja veiðiför. Höfðum við um morguninn sjeð ellefu fullorðin dýr og þrjá kálfa ekki alllangt frá sjó, nokkru inn- ar með firðinum en hin voru. Vegna þess, hve illa fór daginn áður, var nú reynd önnur aðferð við veiðarnar. Dreifðum við okk- ur kringum dýrin, og færðum okkur síðan nær þeim i hægðum okkar. Þegar við nálguðumst þau, hlupu þau saman í hnapp, en gerðu enga tilraun til að ráðast á okkur. Undireins og við kom- umst í skotfæri, var byrjað að skjóta á fullorðnu dýrin. Það urð- um við að gjöra með mestu var- kárni, til þess að særa ekki kálf- ana, sem voru að flækjast kring um fullorðnu dýrin og inni á milli þeirra, og eins vegna j)ess, að við skutum hver á móti öðrum. Dýrin urðu afar hrædd þegar farið var að skjóta, og sum þeirra reyndu að hlaupa út úr hringnum, sem við mynduðum um þau, en voru drepin áður en þau komust út úr honum. Þegar búið var að drepa öll fullorðnu dýrin stóðu kálfarnir ráðalausir hjá þeim. Strengdum við þá net kringum þá og smáþrengdum að þeim. Hlupu svo kálfarnir á netið og flæktu sig í því, en við tókum þá og bundum. Meðan við vor- um að binda þá ljetu þeir svo illa, að tveir menn voru í vand- ræðum með að halda hverjum þeirra. Brutust þeir um svo fast, að við vorum dauðhræddir um að þeir myndu rota sig, eða að minsta kosti beinbrjóta. Samt tókst að hefta þá á öllum löpp- um, og binda bönd á milli haft- anna á fram- og afturlöppum. Var þeim síðan slept og hoppuðu þeir í ofboði burtu frá okkur, og skeyttu engu þó að þeir steypt- ust kollhnýs i urðum e,ða lækjar- farvegum. Vegna þess hvehræddir þeir voru við okkur, afrjeðum við að fara um borð og matast, en lofa kálfunum að bíða á meðan og hvila sig eftir umbrotin. Þegar við komum aftur, stóðu þeir grafkyrrir yíir mæðrum sínum dauðum. Rákum við þá síðan niður að sjó og fluttum þá út á skip. Voru þeir allir hressir og byrjuöu jafnvel að jeta brauð- mylsnu þegar þeir voru búnir að hvila sig stutta stund. Eftir þetta fóruni við þrjár ferðjr upp að fjalli, til þess að flá dýr- in og bera kjötið og húðirnár niður að sjó. Var þá komið fram yfir miðnætti og allir orðnir upp- gefnir, svo að við urðum að hætta, til þess að verða færir um að byrja snemma að morgni ef vart yrði við fleiri sauðnaut. Morguninn eftir byrjuðum við snemma að vinna. Fóru sumir að sækja vatn, aðrir að salta kjöt og húðir og og flá hjera, seli og tófur. Eftir hádegi var ljett akkeri og farið að leita sauðnauta. KI. 5 e. h. sáum við nautahóp, og fórum í land. Þarna vor átta dýr fullorðin og tveir kálfar. Höfðum við sömu aðferð og daginn áður. Náðum við tveimur kálfum og drápum sex dýr, tveim þeirra gátum við slept án þess að missa kálfana. Eftir þetta fórum við með kálf- ana til skips, og sóttum síðan húðirnar af dýrunum, sem við höfðum lagt að velli. Hinn 12. ágúst kl. 8 f. h. lögð- við af stað út Dusensfjörð, og hjeldum suður fyrir Ýmisey og inn Sofííusund. Um hádegisleytið sáum við sauðnautahóp, suðaust- an á eynni. Voru það sex dýr fullorðin og tveir kálfar. Fórum við í land sex saman, röðuðum okkur kring um nautin, skutum öll en tókum kálfana og fluttuni til skips. Eftir þetta hjeldum við áfram inn sundið, sem er sextiu sjómílna langt. Kl. 8 um kvöldið vorum við komnir gegn um sund- ið, og hjeldum út í Óskars kon- ungs-fjörð. Um nóttina lágum við í vík einni nafnlausri við Óskárs-fjörðinn. Daginn eftir fór- um við inn í tvo firði, sem ganga inn úr Óskarsfirði (Segelsálskapets fj. og Alpfj.), en höfðum í hvorugum viðdvöl, af þvi að þar sáum við engin sauðnaul. Hinn 14. ágúst fórum við út Vegassund (milli Traills-eyjar og Geographical Society-eyjar). Um kvöldið lögðumst við við litla eyju, nafnlausa, milli Palanders- og Nordenskjölds-höfðanna. Við tók- um inn bátinn vegna þess að þjettur ís var fyrir utan. Kl. 11 sama kvöldið var farið af stað aftur, og haldið suður með Traills-ey. ísinn var greið- fær og gott veður, logn og þoka. Morguninn eftir ljetti þokunni lítið eitt. Vorum við þá komnir upp undir litla ey, sem er norð- an við Davys-sund. Við köstuð- um lóði, og var dýpið fimm faðm- ar. Þarna var ísinn svo þjettur, að ekki varð komist lengra. Var j)ví snúið við og lagst við ísjaka á tuttugu faðma dýpi. Um kvöldið ljetti þokunni af. Sáum við þá, að ísinn var svo þjettur, að hvergi varð komist lengra suður á við, en fyrir norðan okkur var hann greiður uppi við landið. Hinn 15. ágúst vorum við orðnir vonlausir um að komast þessa leið suður í Davys-sund, vegna j)ess að ísinn var sifelt að j)jettast kring um skipið og allsstaðar þar sem við sáum. Sner- um við því aftur í þeirri von, að okkur tækist að komast sömu leið inn í sundin, og út Davys- sund. Þegar við komum að Vegas- sundi aftur, var isjnq orðin svq

x

Brúin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Brúin
https://timarit.is/publication/448

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.