Brúin - 23.11.1929, Qupperneq 4
4
BROIN
m bðk.
Guðbjörg Jónsdóllir
frá Broddanesi:
Minningar írá bernsku
og æskuárum.
Reykjavík — Prent-
smiðjan Gutenberg
1929. .
Lítil bók en góð. Yfirlætislaus
að máli og efnismeðferð. Minn-
ingarnar raktar blátt áfram og
skipulega.
Höfundur hefir alist upp á stór-
myndarlegu sveitaheimili, Brodda-
nesi í Strandasýslu, og lýsir hún
því nákvæmlega. Tekur hún les-
andan viö hönd sjer og leiöir
hann inn í gamla bæinn sinn,
sýnir honum hann allan hátt og
lágt og lýsir hverjum hlut vand-
iega. Gengur svo með honum fyrir
hvern mann á heimilinu og skýr-
ir fyrir honum háttu hvers eins,
vinnubrögð, skapgerð og útljt.
Sem að líkindum ræður, skipar
minningin um foreldrana æðsta
sessinn í huga höfundar. Er hvert
orð, er hún ritar um þau, þrungið
innilegri þakklátssemi, ást og
virðingu. Reisir hún þeim veg-
legan minnisvarða með þessari
bók sinni. —
Framarlega í bókinni kemst
höfundur svo að orði: „Jeg hefi
skrifað þessar línur í því skyni,
að minnast meö hlýju þakklæti
margra góðvina, er áttu svo mik-
inn þátt í því aö móta barnssál-
ina og sá hinu fyrsta fræi“. Bera
minningar höfundar þess glögg
merki, að þaðfræ hafi verið góðrar
tegundar. Trúin á.mátt hins góða
og göfuga er þar rauöi þráðurinn.
Eigi óvíða í bókinni er skáld-
lega með efni farið.
Sögulegt gildi hlýtur hún og
að hafa, einkum þá stundir líða.
Bókin er prentuð á góðan papp-
ír, snotur að ytri írágangi og
kostar 2 krónur og 50 aura. —
Þ. J.
Bærinn og grendin.
Messur á morgun.
í Hafnarfjarðarkirkju kl. 1 e. h.,
síra Árni Björnsson.
Engin messa í Fríkirkjunni.
í Spítalakirkjunni: Hámessa kl.
9 árdegis. Guðsþjónusta með
prjedikun kl. 6 síðd.
Magni.
Fundur miðvikudagskvöld kl.
8%. Framsaga: Þorleifur jónsson.
K. F. U. M.
Sunnudagaskóli kl. 11 f. h. á
morgun.
vSameiginleg samkoma kl. 8%.
Allir velkomnir.
A.D. og U.D. Fundur mánu-
dagskvöld kl. 8Y2. Drengjafund-
ur kl. 6.
K. F. U. K.
Yngri deild heldur fund á þriðju-
dagskvöldið kl. 8%. Allar
stúlkur 12 —17 ára velkomnar.
Saumafundur á þriðjudag kl. 8.
Föstudagskvöld A. D. kl. 8%.
Dráttarvextir
fjellu á sjðari lielming þessa árs
útsvara, síðasta f. m. — Það er
skorað á gjaldendur þessa bæjar,
að greiða gjöld sín hið alla fyrsta,
svo að bæjarsjóður geti staðið
við skuldbindingar sínar. -— Á
skilvísi gjaldendanna byggist af-
koma bæjarins. —
Bæjargjaldkerinn.
Fimleikafjelegið „Venus11.
Æfing þriðjudags- og föstudags-
kvöld kl. 9%.
Knattspyrnufjel. „Þjálfi“.
Leikfimisæfingar á mánudags-
og fimtudagskvöld kl. 8%
Taflfjelagið.
Skákæfingar á sunnudögum kl.
4, þriðjudögum og föstudögum
kl. 8 síðd.
G. T. húsið.
Eins og flestum bæjarbúum
mun kunnugt, hafa templarar í
þpssum bæ, ráðist í að breyta
og endurbæta liús sitt, frá því
sem áður var, og það svo mjög,
að nú er það orðið fyrsta flokks
samkomuhús, og má heita svo,
að bygt hafi verið nýtt hús. -
Vígsla þessa nýja húss, fer
fram, að öllu forfallalausu, næst-
komandi föstudagskvöld (þann
29 þ. m.) kl. 8V2 og er j)ess
íastlega vænst, að templarar íjöl-
fnenni og fylli húsið, og á þann
hátt láti í ijós ánægju sína yfir
þessum góðu og nauðsynlegu
breytingum, sem gerðar hafa
verið ó húsinu. —
Húsnefndin mun sjá um að
skemtiskráin verði fjölbreytt, og
veitingar góðar. —
Nánara auglýst meðgötuauglýs-
ingum. A Á.
Litla tímaritið,
2. hefti, er nýkomið út. Flytur
fjórar smásögur eftir heimsfræga
rithöfunda og þrjú snotur kvæöi.
Útsölumaður ritsins hjer í bæn-
um, er Jón Pálsson, bókbindari.
Gjafir
til blindu stúlkunnar. Frá:
N. N. 15 kr., Magga Dúddý 5 kr.,
V. 2 kr., N. N. 2 kr., N. N. 5 kr.,
N. N. 2 kr., N. N. 5 kr, N. N.
10 kr, Siggu, Helgu og Svövu
30 kr, Óla M. 3 kr„ og Möggu
10 kr.
Togararnir.
Af veiðum hafa komiö Jressa
viku: Sviði með 88 tn. lifrar,
Walpole með. 95 tn, Ver með
130 tn, Surprise með 201 tn. og
Imperialist með 1000 kit.
Hellyer Bros.
Bretska útgerðarfjelagið Helly-
er Bros Ltd, sem rekiö hefir
togaraútgerð hjeðan úr bænum
siðan í vetrarvertíðarbyrjun
1924, er nú hætt starfrækslu hjer.
Hefir fjelagið þau 5 ár, sem það
hefir verið hjer, gert út 6 togara
á vetrar- og vorvertíð og jafn-
hliða starfrækt stóra fiskverkun-
arstöð, er það á hjer. Orkar það
j)ví engra tvímæla, að mjög
mikla atvinnu hefir fjelagið veitt
bæjarbúum,'og með því og ýmsu
öðru, svo sem atbeina sínum
við stækkun hafskipabryggjunnar
og óneitanlega háu framlagi til
bæjarsjóðs, oröið til þess að efla
atvinnulíf og um leið efnalega
velmegun í bænum. Hlýtur j>ví
atvinnulíf bæjarins að bíða nokk-
ura hnekki í bili, við það að
fjelagið hættir útgerð. En „maö-
ur kemur manns i stað“, stendur
þar, og eru fullar líkur til að
það muni ásannast hjer. Því
eins pg getið er um á öðrum
stað hjer í blaðinu, er það víst,
að tveimur skipum (línubát h.f.
„Örninn“ og hinum nýja togara.
h.f. ,,Belgaum“) verður bætt við
flotann hjer í bænum fyrir næstu
vertíð. Og með tryggri og íull-
kominni höfn, má gera ráð fyrir
því, að útgerð aukist mjög í
bænum í náinni framtíð.
„Örninn“
heitir nýstofnað hlutafjélág
hjer í bænum. Ætlar það að reka
útgerð. Hefir það keypt línuveið-
arann „Namdal“ frá Reykjavík
og á hann að ganga hjeðan.
Verður Júlíus Sigurðsson, er var
skipstjóri á „Málmey“, með hann
Eigendaskifti að „Jupíier“.
Hlutafjélagið „Belgaum“ hefir
nú selt togarann „Jupíter“. Er
það nýstofnað' hlutafjelag, er
heitir „Juþíter“, sem keypt hefir,
og tekur það við skipinu í næsta
mánuði. Aðalmenn fjelagsins eru
Tryggvi Ófeigsson. skiþstjóri, Þór-
arinn Olgeirsson, skipstjóri og
Loftur Bjarnason, útgerðarmaður.
Verður Tryggvi skipstjóri á „Jupí-
ter“. Loftur Bjarnason veröur
framkvæmdastjóri fjelagsins og
á skipið j)egár til keipur, að leggja
upp afla sinn hjá Geirsstöðinni.
í staðinn fyrir „Jupíter“ er h. f.
„Belgaum“ að láta smíða skip í
Englandi, og mun j>að hlaupa af
stokkunum um mánaðamótin
næstu. —
Dánarfregnir.
Hinn 15. j). m. ljetst á sjúkra-
húsinu hjer í bænum, Eiður vSig-
urðsson, sjómaður, Suðurgötu 33.
Var hann miðaldra maður, f. 25.
maí 1886. Lætur eftir sig konu
og 7 börn, sum í ómegð. —
Hinn 17. j). m. Ijetst að heimili
sonar síns, Guðmundar Ág.
Jónssonar bifreiðastjóra, ITverfis-
götu 16, ekkjan Guðfinna Helgá-
dóttir, 80 ára að aldri. —
Harmoniku-hljómleikar.
Marínó Sigurðsson og Haraldur
Björnsson hjeldu harmoniku-
hljómleika í Bíóhúsinu hjer á
íimtudagskvöldið. Fengu þeir
troðfult hús, bg virtust áheyrendur
vera í sjöunda himni af ánægju
og hrifningu, l>ví að húsið dunaði
af lófataki allan tímann meðan
hljómleikarnir stóðu yfir. —
Happdrætti.
Á hlutaveltu skipstjórafjel.
„Ivári“ á sunnud. var, komu upp
jressi númer: 91 Saumavjel, 633
Taurulla, 1978 Tauvinda, 1974
Olíutunna, 2819 ein smál. kol og.
277 ein smál. kol. —
Brunaliðsæfing
fór fram á föstudaginn. Voru
þá og reyndir hinir nýju bruna-
hanar, er settir voru niður í
haust víðsvegar í bænqm.'
Netagarn
af bestu teg. er hingað flytst,
nr. .10/4, 11/4, og 12/4.
Þetta garn íæst aðeins hjá mjer
hjer á landi, og hefir reynst það
b.esta, er hingaö hefir ílutst.
Einnig línur, lóðarbelgir og neta-
kúlur. Nýkomnar miklar birgðir.
Gunnl. Stefánsson.
Pantanir óskast nú jjegar, eða
í síöasta lagi fyrir mánaðamót,
svo að hægt sje að panta þær
stærðir, sem fólk óskar eftir.
Gunnl. Siefánsson.
Sími 32 og 164 ' p
e
astar fcrðu' milli Hafnarfjarðar og
Rc^’kjavíkur alla daga á hvcrjum
ldukkutíma. —
Frá Hafnarfirði kl. 9Va árdegis.
Til Orindavíkur 3var í viku.
1. flokks bifrciðar ávalt til leigu
í lengri og skemri ferðir.
Jólakort.
Stærstu og fallegustu birgðirnar
eins og að undanförnu hjá
Gunnl. Stetánssyni.
Eitt herbergi og eldhús eða
með aðgangi aö eldhúsi, óskast
sem fyrst. Upplýsingar á Skúla-
skeiði 6.
Stör, góÖ stofa móti suðri,
til leigu á „Birninum“.
LÍFTRYGGINGARFjELAGlÐ
ANDVAKA
LífirYggingar, barnait'Yggingar, hjóna- -
iryggingar, nemendairyggingar, ferða-
irYggingar, lífeyrisirýggíngar o. fl.
Oóð irygging kemur yður og fjöiskyldu
Yðar að besium noium er mesi á reYnir.
Skrifsiofa Lækjariorgi 1. ReYkjavík.
Sími 1250.
Foi*sijóri: J6n Ólafsson, lögfræðingur,
heima Suðurgöiu 22, sími 2167.
K. F. U. M. og K.
hafa hlutavéltu í lvvöld kl. 8%.
Margt góðra og eigulegra muna.
Engin núll og ekkert happdrætti,