Frón


Frón - 18.01.1919, Qupperneq 1

Frón - 18.01.1919, Qupperneq 1
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Grímúlfur H. Ólafsson, Laugabrekku, Reykjavik. Simi 622. Box 151. BLAÐ SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS * 2. tölublað. Laugardaginn 18. janúar 1919. II. árgangur. LIFUR LÝSI ojj þes&a árs (1919), kaupir hæsta verði mót peningum út í hönd ÓSK.AR HALLDÓRSSON, Sími 422. Reykjavík. Simn.: Oskar. Bladid. 2. árgangur þessa blaðs er ný- byrjaður. Á árinu sem leið hefir blað vort átt óvenju miklum vin- sældum að fagna. Vér erum kaupendum vorum mjög þakklátir fyrir, livað vel þeir hafa tekið blaðinu og vér grípum liér tækifærið til þess að þakka hinar hlýju kveðjur, sem oss hafa borist úr ýmsum áttum. Kaupendur vorir hafa glaðsl yfir þvi, með hve mikilli stillingu og l'estu vér höfum rætt rnál þau, sem á dagskrú hafa verið. Vér höfum 1 ekki barist með stóryrðum, vér trúum ekki á sig- ur þeirra. Vér höfurn sett oss það fyrir fast mark að skýra jafn- an satt og rétt frá öllum þeim niálum sem vér höfum fjallað um, og ætlun vor er sú að stefna að því marki framvegis. Skoðanir á ýmsum málum verða altaf mis- munandi og við þvi er ekki neitt að segja, en til þess að þjóðin geti myndað sér réttar skoðanir um þau mál, sem eru lögð undir dóm hennar, er fyrsta skilyrðið að rétt sé skýrt frá málunum. Á þessu heíir því miður oft orðið misbrestur. En á þessu má ekki verða misbrestur, því ef for- sendurnar eru skakkar verða dómarnir eftir þvi. Vér fylgjum fast fram stefnu- skrá sjálfstæðisflokksins, en sú stefnuskrá á með ári hverju dýpri rætur hjá þjóð vorri og i veru- legum atriðum er nú þessari stefnuskrá fullnægt með sigri þeim hinum mikla, sem unninn er nú í sjálfstæðismálum vorum. Tveir aðalliðir hafa staðið á stefnuslcrá sjálfstæðisflokksins: Fullveldi út á við og jafnrétti inn á við. Fullveldið er nú viðurkent og jaínréttið einnig i »principinu« í stjórnarskrá þeirri sem nú gildir, þó að kosningarrétturinn sé þar gallaður, en væntanlega verður nú bætt úr þvi. Sjálfstæðisflokkurinn hefir verið merkisberi í þeim málurn öllum sem miðað hafa að því að auka sjálfstæði vort, og því hefir þessi ílokkur nálega alt af sigrað við kosningar í þessu landi, og svo mun enn verða. Nýjir timar standa nú fyrir dyrum. Ófriðarokinu er nú bráð- um létt af og þá byrja stórstígar framfarir lijá þjóð vorri. Vér eig- um nú ýmsa dugandi menn á sviði framkvæmdanna. Oss er þörf á að eignast sem flesta slíka menn og með sein mestu víðsýni. Stjórnmálamenn í þessu landi verða að hal'a augun opin fyrir því að auka verklegar fram- kvæmdir með þjöð vorri og margfalda með þvi þjóðarauð vorn á sem skemstum tíma. Versti tálminn i götu vorri hefir verið sá, að vér. höfum haft of litla trú á sjálfum oss og landinu. Ef til vill höfum vér aldrei betur en nú, þegar liungrið vofði yfir heiminum, séð það, hvað mikið vér í raun og veru getum treyst á landið. Vér þurfum nú að koma upp nýtízku botnvörpungaflota sem allra fyi'st, og bankar vorir verða að styðja slík fyrirtæki af alefii. Botnvörpungaflotinn verður að aukast og margfaldast á sem allra stystum tima. Margir af hinum ötulu útgerðarmönnum vorum hafa um leið og þeir hafa auðg- að sig, unnið landinu ómetanlega mikið gagn. Vér verðum að örfa dugnað þeirra og ýta undir þá til nýrra framkvæmda. Landbúnaðurinn má ekki lialda áfram í sama mókinu. Vér verð- um að gera kröfu lil húnaðar- skóla vorra að þeir bendi kröft- ugar en þeir gera nú ínn á nýjar brautir. Vér verðum að senda lif- andi búnaðarráðunauta út um sveitirnar, sem vekja stórhuginn hjá bændunum, en hann einn er fær um að marka þau spor sem á að stiga. í sannleika talað, hér er svo milcið að vinna á öllum sviðum, að enginn má ganga með hend- urnar ,í vösunum. Verkefnin eru nóg. Þessi ýmsu verkefni munu gerð að umtalsefni í blaði voru. Vér munum leitast við að fá sem hæfasta menn og með sem mestri þelckingu, til að rita um þau og vekja áhuga á þeim. Blað vort á að verða framtíð- arblað. Vér viljum ekki auka stundarútbreiðslu þess með því að krydda það með æsandi skainmargreinum, en vér viljum vinna því traust með því að styðja þær einar tillögur og leggja að eins það til málanna, sem vér hvar og hvenær serti er, treystum oss að bera ábyrgð á. Ofsóknir i garð einstakra manna munum vér forðast, en hlífðarlaust mun- um vér segja þeim til syndanna sem misbeita valdi sínu, og halla rétti þess sem minni máttar er. Lítilmagnanum munum vérveita liðsinni, eltir því sem máttur vor nær til, og rétt mál munum vér sækja á hendur hverjum sem er án manngreinarálits. Vér treystum þvi að blaði voru verði tekíð hjá þjóðinni með vax- andi velvild og munum vér eftir fremsta megni gera það marg- breylilegt að efni, svo að það eigi erindi til sem flestra. Botnvörimngar sigla stöðugt til Englands og seija fiskinn fyrir hátt verð. Stendur nú á samningum inilli hásetafélagsins og útgerðamanna uni kaupgjaldið við fiskiveiðar.

x

Frón

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frón
https://timarit.is/publication/451

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.