Frón - 18.01.1919, Blaðsíða 2

Frón - 18.01.1919, Blaðsíða 2
206 FRÓN Verður þeim samningum lokið innan skamms. Ritfregnir. Réttur, tímarit um pjóðfélagsmál og mannréttindi. — Priðja ár, 1. hefti. Það flytur þessar greinar: Gamalt og nýtt, eftir Renedikt Jónsson. Skattamál, eftir Áskel Snorrason. Úrlausn Henry George i jarðeignamálinu, eftir Leo Tol- stoj, þýtt af Á. S. Nýr landsmála- grundvöllur, eftir Jónas Jónsson, mjög einkennileg grein, er ef til vill verður tækifæri til að minn- ast á siðar. Verzlunarmálin, eftir Þórólf Sigurðsson. Um fiskiklak eftir Guðm. Da- viðsson. Einfðld aðferð að búa til fiskitjarnir og ala upp fiska. Kver þetta sem er um 50 bls. í 8£y, er handhægur og góður leiðarvísir fyrir þá, er ráðast kynnu í að klekja út fiskahrogn- um. Um eitt skeið var nokkuð reynt til þess hér á landi og sum- staðar mun það hafa gengið sæmi- lega, en ,þó lognaðist það út af. Bæklingur þessi er, eins og við er að búast, tekinn saman úr út- lendum ritum, alla innlenda reynslu vantar. En viða um lönd er lögð mikil rækt við fiskiklak og þótt hér séu að vísu nokkur önnur skilyrði frá náttúrunnar hendi, má þó vel vera, að íiski- klak gæti orðið hér til mikils hagnaðar, eins og höf. bendir á. Guöm. Finnbogason: Frá sjónar- h e i m i. Bókin skiftist i þessa kafla. 1. Lóðrétt, lárétt og skáhalt. 2. Tvíhorf og jafnvægi. 3. Gullinsnið. 4. Einfaldar myndir. 5. Litir. 6. Áhrif lita. 7. Fj'arvíddin. 8. Fjarvídd i málverkum. 9. Ljós og litir í málverkum. 10. Fegurð. Vér viljum ráðleggja öllum, er rétt skyn vilja bera á það, sem fyrir augun ber, að lesa bók þessa. Hún er svo ljóst rituð, þótt efnið sé sumstaðar örðugt viðfangs, að engum er ofvaxið að hafa hennar full not. Eimreiðin. Ritstj. Magnús Jóns- son. Útgefandi Ársæll Árnason. XXIV. árg. 1—2, 3—4 hefti 1918. Það er ekki hægt annað að segja, en að tímarit þetta fari myndarlega af stað hjá hinum nýja eiganda og ritstjóra. 1. liefti byrjar á hinu heimsfræga kvæði Alfr. Tennyson, Locksley-höll, í snildarlngri þýðingu eftir Guðm. Guðmundsson skáld. Er mikill fengur að þessu kvæði fyrir ís- lenzka ljóðvini. Margar góðar rit- gerðir, skáldsögur frumsamdar og þýddar, og kvæði eru í þessum árgangi. Haldi svo áfram verður eigi annað sagt, en að Eimreiðin sé mjög eigulegt tímarit. L j ó ð m æ 1 i eftir Benedikt Por- valdsson Gröndal, 288 síður í 8av. Benedikt Þ. Gröndal hefir ekki gefið út kvæðabók fyr, en tals- vert af kvæðum hefir hann látið frá sér fara, er prentuð hafa verið í blöðum og timaritum, svo hann er fyrir löngu orðinn þjóðkunn- ur sem skáld, þó ekki væri fyrir annað en kvæðið: »Um sumardag er sólin skín«, er svo að segja hvert mannsbarn á landinu kann og syngur. Öll ljóðin í bók þessari eru hin snotrustu, sum náttúru- kvæðin gullfalleg, og þar tekst skáldinu að vorum dómi bezt. Ekki ætlum vér þó að telja hér upp nein sérstök kvæði, en af ádeilukvæðum viljum vér benda á »Fjárnámið«, ágætt kvæði, er hefir mikinn sannleik að geyma. Kaupið bókina og lesið kvæðin, þá getið þið sjálf dæmt. Lárus Halldórsson. Árdags geislar i augum hlógu, hátt leit æskan, liugur var djúpur. Morgunn hló við hópi prúðum, er eg leit hann fyrst afreksþyrstan. En óheill landsins litaðist um í laukagarði lítillar þjóðar. Vildi týna vænum gróðri, fegurstu vonum fólks i nauðum. Lét hún hervæðast hvita dauðann og sækja að íslands æskugróðri. Óvigan her af eiturkveikjum lét hann smjúga lauka rætur. Sá eg þá íslands ættarlauka upprennandi i æskublóma særast mjög og síðan falla. Mér var það sorg og missir landi. Þá hné Friðrik. Þótti mér sjónar sviftir vera að sjá hann hverfa. Gáfna og snilli gnægð hann átti, kjörinn að verða vísindamaður. Féll þá og Pétur fullhuginn glaði, afbragð manna að afli og vexti, sjálfkjörinn fremst í fylkingarbrjósti að vega sigur sínu landi. Lárus dó og með Ijóð á vörum, allra hugljúfi hægur og mildur. Niðja Bjarna bar í æsku hviti dauðinn í Heljar sali. Jóhann Gunnar gekk og héðan fagur i æsku fullum þroska. Dó í sárum svanurinn ungi. Það er þjóðsorg, er þvílíkir deyja. Sjálfum lengst þér lífið treyndist; varðist þú atalt, svo að undrum sætti. Og þú eftir lézt ungan gróður í sjálfs þín stað til sorgaléttis. Hrein var lundin hugurinn mikill, fastheld vonin við list og líf. Léku þér ungum Ijóð á tungu, hagur á móður málið þú varst. Árdags geislar í augum hlógu fullhugum ungnm, er fallnir ligggja. Stórhuga manna starfinn bezti ófæddur dó. Svo er ungra torrek. Bjarni Jónsson frá Vogi. Búnaðarbálkur, (Framh.). Ótrú á umbótum. óhagsýni og íhald i gamlar og úreltar venjur, er ein af okkar illu ættarfylgjum og átumeinum í þjóðlikama vorum. Okkur er svo gjarnt á, að halda í það sem er gamall, einmitt af því, að það er gamalt og vana- bundið, án tillits til alls annars. En að sama skapi og við erum fastheldnir i gamlar venjur og vinnuaðferðir, erum við seinir til að færa okkur í nyt ýmsar ný- ungar í heimi framfaranna. Og það er einmitt þessi þröngsýni eða vanablinda sem mestu um veldur, hve stutt við erum komn- ir áleiðis i framfaraáttina. Álit fjöldans á flestum umbót- um hefir verið þannig, að um- bótanna væri ekki þörf, því hing- að til hafi mátt komast af án þeirra og svo muni einnig verða framvegis. Algengt er að lieyra setningar eins og þessar: »Eg hefi nú lcom- ist af án þess hingað til og fer ekki að breyta um það héðan af. Svo eru nú þessar nýjungar ekki alt af betri en gamla lagið. Hvern- ig fór ekki fyrír N. N., hann ætl- aði að gera alt með nýjum að- ferðum og nýjum siðum, en fór svo á hausinn með það alt sam- an. Breytingarnar eru ekki alt af til bóta«, o. s. írv. — Það er dá- lítill sannleikur í þessum og því- líkum orðum, ef þau væru tekin eins og þan væru töluð »blátt áfram«, en í því sambandi og þeim anda, sem þau eru vana- lega löluð í, hafa þau ekki inni að halda nema hálfan sannleika. Því auðvitað má hafa þetta og hitt svona og svona og það er hægt að »komast af« með því, en það er engin sönnun þess, að það geti ekki verið betra á ann- an liátt og að ekki megi betur »komast af« með öðrum hætti og bættum aðferðum. Þær eru fleiri en við viljum kannast við, einsýnu og lágfleygu vanasálirnar, sem ekki geta, eða vilja skilja það, að eitt geti komið öðru betra, eða þótt megi hafa þetta svona, þá sé samt betra að hafa það á annan hátt. En þetta íhald i það, sem er gamalt og úrelt, veldur kyrstöðu, sem ekki að eins kemur í veg fyrir eðlilegar og nauðsynlegar framfarir, heldur einnig kyrkir marga framfaraviðleitni og um- bótaþrá meðal æskulýðsins. En kyrstaðan og afturhaldseðlið er einhver hættulegasta pestin sem grafið getur um sig í hverju þjóð- félagi—verri en öll »spanska veiki«. Islenzki landbúnaðurinn hefir legið undir oki þessarar kyrstöðu, alt fram á síðustu áratugi. En dá- lítið er nú farið að rofa til í framfaraáttina, bæði í þessu til- liti og öðru. Það mun oftast hafa verið svo að þegar komið hefir verið fram með einhverjar nýungar viðvíkj- andi búnaði vorum, hafa menn orðið fyrri til að láta i ljós ótrú sína á þeim, heldur en að viður- kenna kostina, jafnvel þótt þeir hafi verið auðsæir. Ef til vill er ofmikið sagt, að menn hafi bein- linis óskað ýmsum nýungum og umbótum ófara, en finna mun samt mega þau dæmin. Hina almennu ótrú á öllum breytingum, hljóta allir að kann- ast við, sem kómnir eru til vits og ára. Það mundi áreiðanlega margt fara betur i búskap vor- um ef menn væru fyrri til að taka upjí nýjar og hagkvæmari vinnuaðferðir og færa sér í nyt allar umbætur á öllu viðkomandi búskapnum, — hefðu þar hin réttu tök og tæki. ótrúin á umbótum mun að mestu leyti stafa af þekkingar- leysi manna i þeim efnum og svo af þessari vanavillu, sem mörg- um er gjai*nt að aðhyllast, að á- líta allar nýjar aðferðir óþarfar og jafnvel skaðlegar, vegna þess, að þær hafi undir einhverjum kringumstæðum, gefist illa af ein- hverjum orsökum. En slík dæmi sanna ekkert umnothælni aðl’erð- arinnar.

x

Frón

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frón
https://timarit.is/publication/451

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.