Frón - 02.08.1919, Page 2

Frón - 02.08.1919, Page 2
314 FRÓN við, að hver maður, sem umráð hefir fallvatna og vatnsorku, sé svo vitur, að hann þekki hættuna. En miklu fremur má ætla, að ríkið sjálft, stjórn þess og Alþingi, hafi betur vit á þessum hlutum, og láti aldrei viðgangast, að hér sé stofnuð fyrirtæki, er haft geti þær afleiðing- ar, að sú þjóð sem byggir og bygt hefir þetta land, missi tungu sína og þjóðerni, og yfirráð landsins heima fyrir. Mun óhætt mega gera ráð fyrir, að þing og stjórn verði jafn- aðarlega svo skipuð, að það verði að minsta kosti miklu óhættara að leggja slík vandamál undir þeirra dóm en einstakra manna. Vilji menn nú draga hér dæmi til, þá er ekki annað en að Iíta í skrá þá, er háttv. i. þm. S.-M. (Sv. Ö.) hefir samið, og prentuð er í nefndaráliti meiri og minni hlutans. Má þá sjá, hver með- ferð hefir verið á vatnsafli landsins undanfarið, og hvort engin ástæða sé til að óttast hættu, ef svo verður fram haldið stefnunni. Óll Þjórsá — milli fjalls og fjöru, miljón hestöfl — seld útlendum mönnum. Öll Hvítá seld, meðan fossanefndin sat á rök- stólum, sumpart útlendum mönnum, en sumpart innleedum. Eg man ekki hvort eftir er nokkurt vatnsfall, sem virkjandi væri, sunnan lands eða norðan, sem ekki er annað tveggja, selt eða leigt. Sjá því allir, að ein- stökum mönnum er ekki trúandi fýrir svo roiklu afli. Er þess vegna mikil hætta á ferðum þeirri þjóð, sem á mikið afl f sfnu landi, en hefir ekki mátt til að nota það. Það getur íslenzka þjóðin ekki. Hana vantar vinnukraft. Þótt hún færi öll til, og sneri sér að vatnsvirkjun og stóriðju, annaði hún því ekki, að hagnýta sér alla vatnsorku í landinu. Er því ekki ofmælt það, er eg segi um hættuna, og heldur ekki ofmælt, að þeir einstakir menn, er þykjast eiga orkuvötnin, eru ekki færir um að gæta hagsmuna landsins, ríkisins og þjóðarinnar í þessu máli. Virðist þá ekki annað fyrir, en að Alþingi setji iög, svo a.ð ríkið hafi í hendi sér, hvort virkja skuli fallvötn landsins eða ekki, og hve mikið virkja skuli Þetta er það, sem eg hefi kallað aðalatriði í þessu máli. Er í því sambandi sama, hvort menn hallast að meiri eða minni hluta fossanefndar um skilning á iögum landsins, hvort einstakir menn eiga vatnsaflið eða enginn einn maður Má í báðum tilfellum hafa þá sömu aðferð að til hverrar vatnsorkuvirkj- unar sem er, þurfi leyfi ríkisstjórn- arinnar, nema um smærri fallvötn og þar sem sveitaríélög virkja handa sjáiíum sér, til þess eins að fullnægja raforkuþörf manna í héraðinu. Að öðru leyti gildir sama um alla virkj- un í iðnaðarskyni. Allir þurfa að fá leyfi, hvort sem þeir eru innlendir eða útlendir, hvort sem þeir eiga vatn eða ekki. • Þess vegna á að heimila stjórn og þingi í hvert sinn, að banna eða leyfa. Til þess eru þessi lög sett um raforkusérleyfi. Að þessu hnígur það, er eg sagði fyrr, er þessi mál voru til umræðu, að fossanefndin hefði ekki klofnað um aðalatriði málsins Minni hlutinn hefir í höfuðatriðum lagt til hið sama og meiri hlutinn, enda var háttv. I. þm. S -M. (Sv. Ó.) okkur sammála um þetta. Hygg eg að það reynir t eigi vandi að sam- ræma skoðanir meiri og minni hlut- ans um þessa landvörn, sem þarf tii þess, að þjóðinni sé óhætt fyrir að- sókn auðmanna og erlendra fjár- brutlsmanna, sem ná vilja tökum á þessum afllindum Iandsins. 1 þessu sambandi er það aukaat- riði, hver vatnsaflið á. En þó getur það atriði haft stórmikla þýðingu. Hugsum oss að allar sölur á íslenzku vatnsafli sé löglegar, og erleadir kaupendur sé réttir eigendur vatns- aflsins, eigi vatnið, engu síður en botn og bakka, Segjum svo að sér- leyfislög nái fram að ganga, og svo skynsamlega sé að farið, að engum sé leyft að setja á stofn stóriðnað, svo neinu nemi. Hvað gera þá þessir erlendu eigendur ? Vér getum vel hugsað oss, að þeir fari til stjórnar sinnar og segi við hana: »Viltu ekki verja mig og rétt minrs fyrir þessum ofríkismönnum þar norður á hala veraidar, svo að eg fái notað mína eign eftir vild*. Nú skyldu menn gera ráð fyrir, að þjóðin væri enn í ófriðarham og væri þá alls ekki óhugsandi, að hún neyddi íslenzka ríkið til að láta sonum sínum þetta i té. En ef dóm- stólar eru látnir skera úr, þá þarf þó meiri brjóstheilindi til, ef neyða á þá íslenzka ríkið til að brjóta öll sín lög, þau lög sem gilt hafa síðan þetta land bygðist. Eg að eins bendi á þetta, svo háttv. þm. sjái, að ekki er vert að gefa einstaklingunum þau réttindi, sem þeir eiga ekki, eins og minni hlutinn vili. Og þó að gullið sé ekki mikið í fossunum á þeirra manna mælikvarða, sem stórhuga eru, þá ætti þeim þm., sem ekki tíma að veita fátækum mönnum þúsund króna styrkt til nauðsynlegr- ar mentunar, að hrjósa hugur við að gefa þetta, Einkum er hér um bóndans mál og búnaðarins að ræða, því ef virkj- un kemst á, þá er það búnaðurinn, sem áreiðanlega verður fyrst fyrir barðinu á stóríðnaðinum. AUir, sem vetlingi valda, mundu hverfa frá bóndanum til að leita sér atvinnu þar. Og svo mundi eftir 5 —10 ára Jórfagleði, meðan ósköpin væru að komast í kring verða ávöxtur, er einyrkjur þyrfti að hjálpa dætrum sfnum til að geyma hans. M mdi því fylgja ógleði nokkur, er landsmenn sæu að vonirnar um framfarir og hagkvæmari lífsskilyrði af stóriðnað- arins völdum, voru tálvonir einar. Iðnrekendur sitja hér auðvitað að eins meðan þeir eru að græða og hverfa svo heim, Þess vegna skil eg ekki, að því verði nokkurn tíma kornið inn í höfuðið á nokkrum þingm. eða nokkrum manni yfirleitt, að stóriðnaður sé hollari landsmönn um en landbúnaður og sjávarútveg- ur, sé'staklega í landi esns og ís landi, sem hefir svo góð fiskimið. Vona eg svo að hjttv. deild taki frumv. vel, því að stefnun í því er rétt og sjálfsögð. Vil eg leyf'a mér að leggja til, að því verði vísað í hina sömu nefnd sem hin önnur vatnafrumvörp hafa farið í. Kæruleysi ? Nýlega kom það fyrir hér í bæn- um, að barn nokkurra vikna gamalt, er átti heima f húsi er liggur svo sem tuttugu mínútna gang utan við bæinn, veiktist mjög snögglega og ágerðist veikin mjög fljótt. Móðirin var ein heima og börn hennar, mað- ur hennar var í vinnu í bænum. Sími var í húsinu." Konan símaði þegar tii læknis þess, sem hún hafði venju- lega notað og skýrði honum frá að barnið hefði veikst mjög snögglega, og bað hann að koma og skyldi hún fá bifreið til fararinnar. Hann kvaðst ekki mega vera að því að koma, hefði svo annríkt, hún skyldi reyna að ná í annan. Konan gerði það og hringdi í annan, en fékk sömu svör, og svo koll af kolli. Barninu elnaði alt aí sóttin og kon- an hélt áfram að hringja, en annað- hvort voru læknarnir ekki heima eða væru þeir heima, þá höfðu þeir svo annríkt, að þeir máttu ekki vera að því að koma. Loks náðist í héraðs- læknir og var honum fenginn bíll og kom hann að vörmu spori, en þá var barnið um það bil að skilja við. — Það geta efalaust flestir getið sér nærri um, hvernig móðurinni hafi verið innanbrjósts. Eg skal ekkert um það segja, á hvern veg annríki því hefir verið háttað, sem læknar þeir er í náðist börðu við. En ólík- legt virðist það, að af 4 eða 5 lækn- um, sem til náðist hafi allir verið svo rígbundnir, að enginn þeirra hefði mátt sjá af svo sein 15—20 mínútum í lffsnauðsyn. Héraðslækn- irinn er eins og allir vita oít og ein- att mjög bundinn við ýms embaett- isstörf önnur en sjúkravitjanir. Getur því oft staðið svo á, að ekki sé hægt að ná til hans. En eru þá ekld þeir læknar, er fengið hafa lækuingaleyfi skyldir að sinna sjúkravitjunum, er svo stendur á sem hérí Frá útlöndum. Friðurinn, Bráðabirgðafriðarsamn- ingar hafa nú verið undirritaðir. Hafa bandamenn knúð Þjóðverja til að undirrita samning þann er þeir höfðu komið sér saman um á friðarþinginu og birtur hefir verið útdráttur úr hér í blaðinu. Það er varia hægt að segja, að dómur óhlutdrægra sé mismunandi um skil- mála þessa, því nær einróma álit flestra þeirra er nokkuð hafa* um þá sagt er það, að þeir séu mjög ómannúðlegir og ólíklegir til að langvarandi friður geti á þeim bygst. Virðist mörgum sem hefndarhugur og heimenskuharðneskja hafi meira ráðið á friðarþinginu, heldur enn einlæg viðleitni í þá átt að forða eftirkomandi kynslóðum við þeirri bölvun, er slyrjaldir og blóðsúthell- ingar ávalt hafa í för með sér fyrir mannkynið. Virðast nú leiðtogar bandamannaþjóðanna, þeir er mestu hafa ráðið í ófriönum, heldur ekki fara I neina launkofa með það, að máttur er vald, því stórkostlegar hernaðarviðtökur hafa fuiltrúum þeirra, er á friðarþinginu hafa setið, verið veittar, er þeir nú hafa horfið heim aftur, t. d. Wilson bandaríkjaforseta o. fl. Attur á móti virðist brydda á tals- veröri óánægju meðal alþýðu manna í löndum bandamanna. Virðist svo.A sem ýmsum þeirra á meðal liki illa meðferðin á Þjóðverjum og banda- mönnum þeirra. Hafa slíkar raddir koiníð fram bæði í Englandi, Frakk- landi og jafnvel í Beígíu. Verkföli í rlkjum þessurn eru og mjög tíð um þessar mundir. Leiðir þar af margs- konar glundroða á öllu verzlunar- og viðskiftalífi þjóðanna. Ná afleiðingarn- ar einnig til okkar og annara smá- þjóða, er hlutlausar hafa talist. Má svo að orði kveða, að alt ráð þjóð- anna sé á hverfanda hveli, svo óvíst er um öriög veraldarbúsins enn sem komið er. Það lætur að líkindum, að lítill gleðibragur muni nú ríkja hjá hinni þýzku þjóð og þjóðum þeim er í hernaðarbandalagi voru við hana. Þó verður eigi annað sagt, en að þeir taki afarkostum þessum furðu vel. Hafa foringjar alira flokka, að því er virðist, bundist samtökum um það, að reyna að vinna af alefli að því, að þýzka þjóðin sundrist ekki, og fulltrúar Þýzkalands í löndum þeim, er samkvæmt samningnum eiga að slítast frá þýzka ríkinu, hafa lýst þvf yfir, að lönd þessi muni haida áfram að vera þýzk og muni á all* an hátt reyna að vinna að því, að samtengjast aftur heimalandinu. Eins og eðiilegt er á slíkum byltingatím- um, hefir þýzka þjóðin heldur ekki farið varhluta af þeim. Þó er eiris og minna hafi borið á þeim í seinni tið. Um bandamenn Þýzkalands f ofriðn- um er það að segja, að friðarþingið hefir að því er sagt er, afhent þeim skilmála þá, er ætlast er til, að þeir gangi að, og áður hefir verið getið að nokkru hér í blaðinu, og að sögn gefið þeim hundrað daga frest til ákvörðunar, enda hefir fulltrúi Aust- urríkismanna, að því -er sagt er, neitað að undirrita samninginn eins og hann var afhentur honum. Litur út fyrir, að friðarpostularnir álíti ekki sekt þess ríkisins eins mikla og Þýzkalands. Verður þó eigi útskafið, að þar hófst hildarieikurinn, hver svo sem upptökunum hefir valdið, sem sennilega upplýsist seint. Úr af þeirri kröíu bandamaana, að ráðamenn þýzka hersins sæti ábyrgð á hryðjuverkum þeim, er framin hafa verið af þýzkum hermönnum, hefir Hindenburg ritað forseta þýzka lýð- veldisins á þessa leið: Herra _iíkisforseti I í tilefni af því að friðársamningar hafa verið uudirritaðir, lýsi eg yfif því. sem hér seg'ir: Ég ber einn ábyrgðina á öllum athöfnum og fyrirskipunum hinnar æðstu herstjórnar síðan 29. ágúst 1916. Sömuleiðis eru allar tilskipanir og fyrirskipanir Hans Hátignar keis- arans og konungsins, er að herstjórn-

x

Frón

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frón
https://timarit.is/publication/451

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.