Framtíðin - 01.03.1908, Side 5
^osbomsJt
'i
1. árg. || 1. MARS 1908.________________|| 1. tbl.
Nýja blaðið hneigir sig.
Sh EÐAL barna og ung-
'«* linga hefur í seinni tíð
)| ofur-lítið verið minst á
barna- og unglinga-
blaðið, sem í vændum
‘ hefur verið. Þá befur
það oftast verið kallað nýja blaðið •
því enginn hefur vitað neitt um
það, iivað það ætti að heita.
Nú kemur það þá loksins fram á
pallinn, og hneigir sig fyrir unga
fólkinu. Enginn fæst tii þess að
gera það kunnugt. Það verður að
hafa fyrir því sjálft. Og af því
það er öllum ókunnugt, — liefur
aldrei á manna fundum setið né
með börnum verið—, þá segir það
til nafns síns, og segist lieita Fram-
tíðin.
Fyrir henni klappar unga fólkið,
eins og lög gera ráð fyrir, enda þótt
hún lmeigi sig viðvaningslega, eins
og títt er með unglinga, þegar
þeir í fyrsta sinni koma fram á
ræðupall. Það tekur ekki neitt til
þess. Klappar eins hjartanlega,
þótt sumt eldra fólkið kunni að
brosa að viðvaningsbragnum, það
sem betur kann sig.
Hún kemur eins og ung stúlka,
ofur-lítið feimin; og það fer henni
ekkert illa. Og ungum stúlkum er
hún lík í því, að hana langar til
þess að fólki —- að minsta kosti
sunni fólki — lítist vel á sig.
Þótt aðrir brosi að henni, þá
stendur henni það á sama, ef það
ekki gerir það—fólkið, sem hún vill
að lítist vel á sig. Annars vill hún
reyna að gá að sér með að vera ekki
hörundsár. Hún heldur, að það
borgi sig illa. Hún muni finna
mest til þess sjálf. Enda sé bros
saklaust. Og geti líka verið til góðs;