Alþýðublað Hafnarfjarðar - 24.06.1950, Blaðsíða 1
SKRIFSTOFA
ALÞÝÐUFLOKKSINS
í HAFNARFIRÐI
er í Alþýðuhúsinu
Sími 9799
Utan skrifstofutíma 9595
Skrifstofan er opin kl. 10-12
og kl. 4-7
Alþýðublað
Hafnarfjarðar
IX. árg. Hafnarfirði, 24. júní 1950 14. tölublað
Söngmót S. í. K.
Dagana 9,—11. þ. m. var háð í
Reykjavík Söngmót Sambands ís-
lenzkra karlakóra. í mótinu tóku
þátt 7 karlakórar með samtals 250
söngmönnum. Kórarnir voru þessir:
Fóstbræður, Reykjavík; Geysir, Ak-
ureyri; Karlakór Akureyrar; Karla-
kór Reykjavíkur; Svanir, Akranesi;
Vísir, Siglufirði; Þrestir, Hafnar-
firði.
S. í. K. var stofnað 1930 og hélt
þá söngmót í tilefni Alþingishátíð-
arinnar. Annað söngmót var lialdið
í Reykjavík 1934 og það þriðja nú.
Kórarnir héldu þrjá koncerta í
Austurbæjarbíó og tvo koncerta í
Tivoli. Var aðsókn mikil og mikil
hrifning áheyrenda.
Söngmót þetta var kórunum og
sambandinu til mikils sóma og
vonandi líða ekki mörg ár þar til
S.Í.K. heldur næsta söngmót.
Þetta er fyrsta söngmótið, sem
Þrestir taka þátt í, því að kórinn
var ekki í sambandinu þegar tvö
fyrri mótin voru haldin.
Frammistaða Þrasta var hin prýði
legasta og voru þeir Hafnfirðing-
um til hins mesta sóma. Þrestir hafa
starfað af miklum krafti mörg und-
anfarin ár og veitt bæjarbúum
margar ánægjulegar stundir. Hins
vegar hefur kórinn átt við þá örð-
ugleika að stríða að þurfa að fá
söngstjóra innan úr Reykjavík og
hafa að undnförnu verið tíð söng-
stjóraskipti, sem óneitanlega hefur
háð starfsemi kórsins. Sá maðurinn,
sem lengst hefur stjórnað kórnum
og unnið hann upp er Jón ísleifs-
son, en á síðastliðnu hausti tók Páll
Halldórsson við stjórn kórsins og
söng kórinn undir hans stjórn í
apríl s.l., en þá varð hann að hætta
og réði þá kórinn til sín ungan og
efnilegan hljómlistarmann Ragnar
Björnsson, sem þjálfaði kórinn
ásamt Einari Sturlusyni, óperu-
söngvara fyrir söngmótið og var
árangurinn af starfi þeirra mjög
góður.
Hafnfirðingum er það jafnan
gleðiefni þegar einstaklingar eða
flokkar manna úr bænum standa
Framh. á bls. 4
Saltfiskþvottavél fundin
upp í Hafnarfirði
Þetta er nýja saltfiskþvottavélin. Uppfinningamaðurinn er lengst
til vinstri á myndinni. Ljósm.: Herdís Guðmundsdóttir.
Hctraldur Kristjánsson
slökkviliðsstjóri hér í
bæ hefur látið smiða
vél, sem þvær um 2000
fiska á klukkustund.
Haraldur Kristjánsson er nú
slökkviliðsstjóri í Hafnarfirði, tók
við því starfi á s. 1. ári. Við stofnun
Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar gerð-
ist hann starfsmaður fyrirtækisins
og síðár verkstjóri og var við það
starf í 15 ár.
A þessum árum var venja að
verka mestan hluta saltfisksins, og
fór þá Haraldur að brjóta heilann
um, hvort ekki væri hægt að smíða
fullkomna saltfiskþvottavél, sem
leyst gæti kvenfólkið frá hinu mjög
svo erfiða starfi, sem fiskþvottur
alltaf er, sem og jafnframt að skapa
betri vinnuskilyrði á fiskverkunar-
stöðvunum.
Eins og kunnugt er lagðist salt-
fiskframleiðslan að miklu leyti nið-
ur yfir stríðsárin og fyrstu árin á
eftir, en er nú aftur að aukast all
verulega. Var þá almennt álitið að
erfitt myndi verða að fá þann fjölda
kvenfólks til fiskþvottar, sem mikil
saltfiskframleiðsla krefst, sú hefur
líka orðið raunin. Ákvað þá Harald
ur að gera tilraun með að láta
smíða fullkomna saltfiskþvottavél,
og hófst smíði hennar í marz s.l.
Og 15 júní s.l. gat Haraldur sýnt
þessa merku vél, og gafst mönnum
vel á að líta og spáðu góðu um
framtíðarmöguleikana.
Á árinu 1949 smíðaði Haraldur
fullkomið model að vélinni og sýndi
það nokkrum mönnum, sem hvöttu
hann eindregið til að smíða full-
komna þvottavél.
Þegar hér var komið málinu, leit-
aði Haraldur stuðnings stjórnar
Fiskimálasjóðs um fjárframlag til
að standast kostnað að byggingu
vélarinnar, veitti stjórnin styrk í
þessu augnamiði, sem gerði það
kleift að kaupa efni og vinnu við
smíði vélarinnar. Enn fremur hafa
hafnfirzkir útgerðarmenn lagt fram
fé í sama skyni.
Þvottavél þessi getur afkastað
rúmlega 2000 fiskum á klukkustund
eða á sólarhring nálægt 50.000 fisk
um. Sé fiskurinn vænn, mun láta
nærri að hún geti afkastað að þvo
á 24 klst. 450 til 500 skpd. Til sam-
anburðar má geta þess að þurfa
mundi 20 til 25 stúlkur í minnst 5
daga til þess að afkasta eins sólar-
hringsafköstum vélarinnar. Vél
þessi er drifin með raforku og er
orkueyðsla hverfandi lítill kostnað-
ur eða 40 til 50 kr. á sólarhring í
fullu starfi.
Rétt er að geta þess að enn vant-
ar þann hluta vélarinnar, sem tek-
ur himnu úr þunnildum og blóð úr
hnakka fisksins, en undirbúningur
er nú hafinn þess, og gerir Harald-
ur sér vonir um að geta tengt þann
hluta við vélina áður en langt um
líður.
Efni í vélina var allt fengið í
Englandi, Vélsmiðja Hafnarfjarð-
ar h.f. sá um smíði vélarinnar und-
ir verkstjórn Jóhanns Ól. Jónssonar.
Snæbjörn Bjarnason vélfr. í Hafnar
firði, sá um allar teikningar við
smíði vélarinnar.
Áður mun aðeins ein erlend vél
liafa verið reynd hér á landi við
fiskþvott en eigi reyndist hún þann
ig að hún gæti hreinsað fiskinn
undir uggum eða tekið himnu og
blóð úr hnakka, en þessi vél hreins-
ar fiskinn allan vel, jafnt undir
uggum, sem annað er þvo þarf.
Vélin er vel færanleg milli stöðva
og því eigi staðbundin. Mun hún
alls vega nokkuð á annað tonn.
Gólfpláss mun hún þurfa um 12
fenn. fullsmíðuð.
Framhald á bls. 3