Alþýðublað Hafnarfjarðar - 20.12.1992, Page 21
Alþýðublað Hafnarfjarðar
21
FH
FH-ingar hafa náð betri árangri í 1.
deildinni en í sumar. Liðið hafnaði
þó í 6,sæti eins og árið áður en með
mun færri stig. Eins og alltof oft
áður voru væntingarnar miklar en
útkonra slök. Það afsakar þó ekki
slaka leiki FH-inga í sumar sem höfðu
alla burði til að ná lengra. Það
kemur vonandi næsta sumar.
FH-ingar léku 18 leiki, sigruðu í fimm
þeirra, gerðu sex jafntefli en þurftu
sjö sinnum að “lúta í þúfu”. Liðið
gerði 25 mörk en fékk á sig 29. Liðið
fékk því 21 stig.
Andri Marteinsson skoraði flest
mörk FH-liðsins eða 8. Hann var
einnig langbesti leikmaður liðsins í
sumar og sá eini sem virkilega gladdi
augað með lipurð sinni og hraða.
Andri var fastur maður í íslenska
landsliðinu í ár og átti þar góða leiki
á hægri vængnum.
Markahrókurinn Hörður Magnús-
son gerði “aðeins” fimm mörk á
þessu Islandsmóti og kom það
vissulega niður á árangri FH-liðsins.
Hörður var óheppinn með færi í
sumar og átti í meiðslum sem háðu
honum megnið af tímabilinu. Hann
gerði þó glæsilegt mark með
landsliðinu í Budapest og tryggði Is-
lendingum góðan sigur á Ungverjum.
Ljóst er að nokkrar breytingar verða
á liði FH fyrir næstu sparktíð og nýr
skipstjóri mun stýra skútunni.
Hörður Hilmarsson mun taka við af
Njáli Eiðssyni og hefur Hörður þegar
hafið störf.
HANDKNATTLEIKUR
FH-ingar sýndu landsmönnum af
hverju Hafnarfjörður hefur verið
nefndur “handboltabær” með ein-
stökum árangri sínum á síðustu
vertíð. Þá unnu þeir þá titla sem í
boði voru og það með glæsibrag.
1. deild karla - FH og
Haukar
Liðin tólf léku fyrst í deildar-
keppninni heima og heiman. Þar
skáru FH-ingar og Víkingar sig
nokkuð úr og voru sjö og níu stigum
á undan næstu liðum. FH-ingar
sigruðu hlutu 38 stig úr 22 leikjum.
Þeir sigruðu 18 leiki, gerðu tvö
jafntefli og töpuðu aðeins tveimur
viðureignum. FH-liðið skoraði
langflest mörk í deildarkepninni eða
614. Markverðir FH-liðsins þurftu
aftur á móti að hirða knöttinn 506
sinnum úr neti sínu.
Hans Guðmundsson fór á kostum
síðastliðinn vetur og var oftar en
ekki markahæsti leikmaður FH. Hans
skoraði alls 165 mörk í deildar-
keppninni og hlaut markakóngs-
titilinn.
Haukamenn voru misjafnir í leikjum
sínum og höfnuðu á endanum f 6.
sæti með 22 stig úr 22 leikjum.
Haukamenn sigruðu níu leiki, gerðu
fjögur jafntefli og töpuðu níu leikjum.
Markatala Hauka í deildarkeppninni
var 554-540.
Petr Baumruk var sá leikmaður
Hauka sem oftast kom knettinum í
mark andstæðinganna eða í 126
skipti.
Þegar kom að úrslitakeppninni fóru
FH-ingar Krísuvíkurleiðina í átt að
titlinum og að lokum stóðu þeir uppi
sem andstæðingar Selfyssinga í
úrslitum. Leikirnir voru æsispenn-
andi og fjörugir og myndaðist
skemmtileg stemming í kringum þá.
FH tryggði sér Islandsmeistaratitilinn
á Selfossi í frábærum leik er þeir
sigruðu 28-25. Islandsmeisturunum
var vel fagnað á Selfossi og þegar
þeir komu með bikarinn í Kaplakrika
þar sem margt fólk hafði safnast
saman. Margir leikmanna liðsins
áttu frábæra leiki. Áður hefur verið
vikið að þætti Hans Guðmundssonar
sem átti hreint frábæra kasttíð með
FH. Oft kom upp sú staða að hann
leysti vandamál í sóknarleik liðsins
með því að rífa sig lausan og þruma
knettinum í marknet andstæðing-
anna. Ekki má heldur gleyma
Guðjóni Árnasyni og Bergsveini
Bergsveinssyni besta markverði
landsins og öllum hinum sem stóðu
sig sem hetjur.
FH-ingar sigruðu einnig í bikar-
keppni HSÍ. Þar léku þeir til úrslita
við Valsmenn og sigruðu örugglega.
Leikurinn varð í raun aldrei spenn-
andi til þess voru yfirburðir allt of
miklir. Það skipti ekki máli þótt
Valsmenn tækju það til bragðs að
kalla leikmenn heim frá meginlandi
Evrópu, FH-liðið var of sterkt.
Þrefaldur sigur FH-inga var því
staðreynd. Leikur sem verður ekki
svo auðveldlega leikinn aftur í bráð.
Haukamenn náðu hins vegar ekki
langt í bikarnum og er ljóst að á
þessu keppnistímabili sem nú
IH-strákarnir léku 18 leiki og höfðu
vinninginn í 8 leikjum, gerðu ekkert
jafntefli og töpuðu 10. Markatalan
var þeim örlítið óhagstæð, þó ekki
hafi munað mörgum mörkum. Þetta
skilaði ÍH i 6. sæti sem verður að
teljast frambærilegur árangur hjá
ekki eldra félagi en IH er.
Yngri flokkar
Ekki er hægt að Ijúka umfjöllun um
handknattleik án þess að minnast á
vandræðum með erlendan leik-mann
sem stóð alls ekki undir þeim
væntingum sem til hans voru gerðar,
hvorki hvað leik né þjálfun snerti.
Ólafur Rafnsson tók því við þjálfun
liðsins og hóf þegar uppbygginga-
starf. Haukamenn réðu einnig til sín
nýjan erlendan leikmann. John
Rhodes varð fyrir valinu og þar
keyptu Hauka-menn feitan bita.
Þrátt fyrir að hann kæmi seint til
leiks varð hann stigahæsti leikmaður
liðsins á tímabilinu með 525 stig í
Islandsmeistarar Hauka í 4. tlukhi kvenna.
Andri Marteinsson FH landsliðs-
maður í knattspyrnu.
Bergþóra Laxdal markhœst
knattspyrnukvenna úr Haukum.
Islands- deildar- og bikarmeistarar FH í hnadknattleik.
íslands- og bikarmeistarar FH í 3. flokki í handknattleik.
Bikarmeistarar Hauka í m.fl. kvenna í körfuknattleik.
John Rhodes einn besti leik-
niaöur Hauka í körfunni.
Guðmundur Karlsson FH
íslandsmeistari í sleggjukasti.
Súsanna Helgadóttir fjórfaldur
Islandsm. í frjálsum íþróttum.
Jóhann Ingibergss. FH, Islandsm. í
víðavangshlaupi og liúlfmaroþoni.
Bikarmeistarar FH í frjálsum íþróttum.
stendur yfir munu þeir ná mun betri
árangri undir stjórn Jóhanns Inga
Gunnarssonar.
1. deild kvenna - FH og
Haukar
Kvennalið FH og Hauka áttu
sæmilegt tímabil í fyrra. FH-stelp-
urnar spjöruðu sig þó sýnu betur og
komust m.a. í úrslit í bikarkeppninni.
Þar töpuðu þær hins vegar stórt.
FH-liðið hlaut 26 stig úr 20 leikjum.
Stelpurnar unnu 12 leiki, gerðu tvö
jafntefli og töpuðu sex leikjum. Þær
gerðu 439 mörk en fengu á sig 381.
Þetta skilaði FH-liðinum í 4. sæti í
deildarkeppninni.
Haukastelpurnar hlutu átta stig í
deildinni. Þær sigruðu fjóra leiki en
töpuðu 16 leikjum. Haukar gerðu
ekkert jafntefli. Markamunur þeirra
var óhagstæður eða um 80 mörk í
mínus.
2. deild karla - ÍH
Lið íþróttafélags Hafnarfjarðar náði
ágætis árangri í keppninni í 2. deild.
Liðið lék undir stjórn Elíasar
Jónassonar eins og árið áður og
hafnaði um miðja deild.
strákana í 3. flokki karla hjá FH sem
náðu frábærum árangri undir stjórn
Ólafs Kristjánssonar. Þeir sigruðu
bæði í íslandsmótinu og bikar-
keppninni með glæsibrag. I liði
þeirra eru engar stjörnur heldur
efnilegur og samstilltur hópur sem
rær saman að settu marki. Frábært
afrek hjá piltunum.
Þá náðu strákarnir í 7. flokki karla
hjá Haukum oft skemmtilegum
árangri á mótum sem þeir tóku þátt
í. Oft er hrein unun að fylgjast með
yngstu iðkendunum við æfingar og
keppni. Innlifunin er stórkostleg og
keppnisandinn gífurlegur. Allir fá að
sjálfsögðu að spreyta sig. því það
hlýtur að vera markmið félaganna að
ala upp sem flesta félagsmenn en
byrja ekki að flokka þá niður í yngstu
flokkunum. Slík flokkun skilar sér
einfaldlega ekki upp á við.
KORFUKNATTLEIKUR
Uppskera körfuknattleiksmanna
hefur oft verið betri en á síðastliðnu
tímabili.
Meistaraflokkur karla lenti snennna í
heildina eða 26.2 stig í leik að
meðaltali.
Haukar léku 26 leiki í Japisdeildinni í
fyrra. Þeir sigruðu í 12 leikjum en
töpuðu 14 leikjum. Stigatalan var
liðinu óhagstæð, 2507 stig gegn 2526.
Þessi árangur skilaði Haukum 24
stigum og 7. sætinu í deildinni. Liðið
komst því ekki í úrslitakeppnina.
Liðið komst í úrslitaleik bikar-
keppninnar en töpuðu þar gegn
Njarðvíkingum 77-91 í spennandi
leik. Bikarárangur liðsins var því
sannarlega sárabót fyrir slakt gengi í
deildarkeppninni.
Kvennalið Hauka náði frábærum
árangri undir stjórn Ingvars S.
Jónssonar í fyrra. Liðið náði öðru
sæti í deildarkeppninni á eftir
Keflvíkingum, en þessi tvö lið skáru
sig nokkuð úr hvað getu varðaði.
Haukastelpurnar léku 20 leiki, unnu
16 en töpuðu 4. Stigatalan var þeim
hagstæð, 1124-884. Þær hlutu því 32
stig í annað sætið eins og áður sagði.
Hanna Kjartansdóttir var stigahæst
Hauka í deildarkeppninni með slétt
300 stig í 18 leikjum eða 16.6 stig í
leik. Hún var síðan valin leikmaður
ársins í kvennaflokki á Lokahófi
Körfuknattleikssambandsins.
Haukastelpurnar náðu, eins og
strákarnir, í úrslitaleik bikar-
keppninnar. Þar gerðu þær betur en
strákarnir og sigruðu leik sinn gegn
Keflavík örugglega 70-54. Sannarlega
rós í hnappagat stúlknanna.
Vissulega setti það síðan svartan
blett á körfuknattleikinn þegar
ákveðið var að leggja niður
meistaraflokk kvenna hjá félaginu
eftir þann frábæra árangur sem
náðst hafði árið áður. Vonum við að
hann verði endurvakinn fyrr en
síðar.
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR
Frjálsíþróttamennirnir í FH náðu
frábærum árangri í sumar. Liðið
sigraði í bikarkeppni FRI nokkuð
örugglega enda liðið mjög sterkt sem
FH sendi til keppni.
Karlasveit félagsins sigraði
bikarkeppnina með fáheyrðum yfir-
burðum enda má segja um þá að þeir
séu sterkari en karlalandsliðið í
frjálsum íþróttum. Breiddin er
gífurleg. Kvennasveitin var ekki
langt frá því að sigra en hafnaði að
lokum í öðru sæti. Samanlagt sigraði
FH því í bikarkeppni FRI.
Margir snjallir frjálsíþróttamenn eru
innan vébanda FH og eru karlarnir
þar í sérflokki eins og áður er getið.
Einar Kristjánsson vann afrek ársins
að mínu mati er hann setti glæsilegt
Islandsmet í hástökki. Einar stökk
2.16m og bætti gamla metið um
nokkra sentimetra.
Guðmundur Karlsson setti enn og
aftur Islandsmet í sleggjukasti og er
það mánaðarlegur viðburður yfir
sumartímann að “Mummi” bæti
metið.
Jóhann lngibergsson er okkar besti
langhlaupari. Jóhann náði t.d.
bestum árangri íslendings í
Reykjarvíkurmaroþoni en hann
hafnaði í fjórða sæti á eftir erlendum
keppendum.
Jón Oddsson var ósigrandi í lang-
stökki á árinu og stóð sig einnig vel í
boðhlaupum.
Gunnar Guðmundsson var sprækur í
400m hlaupum á árinu og Hjörtur
Gíslason er enn fremstur íslenskra
grindahlaupara.
Þá má ekki gleyma mönnum eins og
Eggerti Bogasyni kastara, Frímanni
Hreinssyni langhlaupara og Jóni
Stefánssyni sem gekk til liðs við FH
frá Ungmennafélagi Akureyrar í fyrra.
I.oks má geta árangurs Þorsteins
Jónssonar; knattspyrnukappa, en
hann varð íslandsmeistari innanhúss
í 800m hlaupi.
Af kvenfólkinu hefur Súsanna
Helgadóttir sýnt hvað bestan
árangur í ár sem og undanfarin
keppnistímabil. Súsanna er jafnvíg á
nokkrar greinar og það kemur sér
svo sannarlega vel í keppni eins og
bikarkeppninni þar sem fyrst og
fremst er keppt um að hala inn stig
en ekki endilega að setja met.
FH-ingar urðu íslandsmeistarar í
Víðavangshlaupi íslands en þá
keppni hafa þeir unnið undanfarin ár
og hafa nokkra yfirburði í þeirri grein
hér á landi.
Karlasveit FH tók þátt í C-keppni
félagsliða í Birmingham á Englandi í
vor og hafnaði þar í fjórða sæti.
Frjálsíþróttadeild FH er stórhuga og
hyggur á enn frekari landvinninga.
Næsta vor fer fram Evrópukeppni í
Budapest í Ungverjalandi og mun FH
senda sveit sína þangað. (Ekki væri
úr vegi að þeir tækju þangað Hörð
Magnússon knattspyrnukappa, því
hann er vanur að hrella Ungverjana).
Framtíðin er því björt hjá Frjáls-
íþróttadeild FH og engin vafi leikur á
að hér er á ferð fremsta frjálsíþrótta-
deild landsins í dag.
Hafnfirðingar
munið
flugeldasölu
Fiskakletts.