Alþýðublað Hafnarfjarðar - 01.06.1991, Side 1

Alþýðublað Hafnarfjarðar - 01.06.1991, Side 1
ALÞYDUBLAÐ HAFNARFJARÐAR Listahátíö í Hafnarfiröi Bærinn iðandi af lífi og fjöri í sumar Gunnar Gunnarsson, Jóna Ósk Guðjónsdóttir og Sverrir Olafsson við skúlptúr eftir hinn heimskunna iistamann Sebastian frá Mexikó. Þetta listaverk ásamt verkum fleiri listamanna mun verða staðsett til frambúðar í Höggmyndagarði 1 lafnarljaröar. Listahátíð í Hafnarfirði er orðin að veruleika. Draumur margra hefur ræst. Tekist hefur stórkostleg samvinna milli hafnfirskra listamanna og bæjaryfirvalda. Frumkvæðið er listamannanna en veruleik- inn er til orðinn vegna myndarlegs framlags Hafnar- ijarðarbæjar. Þann 1. júní var opnuð í Straumi alþjóðleg vinnustofa sem síðan hefur verið opin almenningi. Við hér á blaðinu brugðum okkur suður í Straum og hittum þar að máli þau Sverri Ólafsson og Gunnar Gunnarsson í stjórn Listahátíðar í Hafnarfirði og Jónu Ósk Guðjónsdóttur forseta bæjarstjómar en hún á einnig sæti í stjóm Straums. Fyrst tókum við Sverri tali og spyrjum hvernig hafi gengið? „Þetta hefur allt saman verið stórkostlegt, opnun vinnustof- unnar, en þar mættu hundruð manna og síðan hafa komið hingað þúsundir til að skoða og fylgjast með“ Og hvað er framundan? „Setning listahátíðar í Hafnarborg 15. júní. Þarverður mikið um dýrðir og verður forseti Islands frú Vigdís Finnbogadóttir heiðursgestur þar. Að lokinni þeirri athöfn verður opnuð alþjóðleg skúlptúrsýning við Hafnarborg og á Strandgötunni. Síðan verða listaverkin flutt á Víðistaðatún og þar verður höggmyndagarðurinn formlega opnaður 13. júlí. Það eru listamenn frá níu löndum sem sýna verk sín og færa þeir Hafnarfjarðarbæ þau að gjöf í lok Listahátíðar.“ Gunnar Gunnarsson var spurður um tónlistina á hátíðinni. „Nú þegar hefur Kór Hafnarfjarðarkirkju haldið tónleika sem tókust alveg einstaklega vel, uppselt var og hrifning áheyrenda mikil. Næst á dagskrá er síðan Sónötukvöld í Hafnarborg á sunnudag- skvöldið kemur, sama dag verða síðan rokktónleikarnir í Kaplakrika og ætti það að gleðj a ungu kynslóðina. Sunnudaginn 23. júní mun síðan Óperu- smiðjan flytja ljóðadag-skrá á Jónsmessu í Hafnarborg. Punkturinn yfir i-ið er síðan samleikur hins frábæra fiðluleikara Sigrúnar Eðvalds- dóttur og Þorsteins Gauta Sigurðssonar píanóleikara. Þeir tónleikar verða spennandi og örugglega frábærir, en þessir listamenn hafaaldrei áður leikið saman. Síðast snérum við okkur að Jónu Ósk, forseta bæjar- stjórnar og spurðum hana hvernig henni litist á Listahátíðina. „Þetta er stórkostlegt framtak og ég er alveg í skýjunum yfir því hversu vel hefur tekist til nú þegar og ég veit að allt á þetta eftir að ganga vel. Það er gaman að vita til þess hversu vei hefur tekist til um samstarf listamannanna og bæjaryfirvalda. Skemmtilegast af öllu er það að listafólkið skuli hafa frumkvæðið, það hefur kraftinn og áhugann en bæjaryfirvöld styðja síðan og styrkja framtakið myndarlega. Hafnarfjörður hefur með þessari Listahátíð og aðstöðunni hér í Straumi skapað sér sérstöðu meðal sveitarfélaga á íslandi." Alþýðublað Hafnarfjarðar hvetur alla bæjarbúa eldri sem yngri til að taka þátt í dagskrá Listahátíðar sér til ánægju og yndisauka. Ungllngar 13 ára og eldrl alllr í vinnu Skólafólkið þyrpist út á vinnumarkaðinn að afloknum prófum.Þessar hittum við í Hellisgerði í vinnu á vegum bæjarins. þær heita talið frá vinstri Guðný Katrín, Sigríður Líndal, I lalla Dóra og Lára Sif. Þegar sumrar og skólum lýkur hópast unga fólkið út á vinnumarkaðinn. Hefst þá leitin að sumarvinnu. Undanfarin ár hefur verið dálítið erfitt um vinnu fyrir unglinga og hafa þá bæjar- yfirvöld á hverjum stað gripið inn í og útvegað þeim er ekkert hafa fengið, vinnu til nokkurra vikna. Sumarið 1990 var mjög erfitt hvað sumarvinnu unglinga varð- aði og var þá fjöldi unglinga sem fékk vinnu hér hjá Hafnarfjarðarbæ. Þá brá hins vegar svo við að unga fólkið vildi frekar útivinnu en að vinna í fiskvinnsluhúsum bæjarins þó svo möguleikar á tekjum væru meiri í fiskinum. Þannig var bærinn kominn í hörku samkeppni við hinn almenna vinnu- markað og þótti stöðvar- mönnum það súrt í broti og ekki sanngjarnt. Nú í vor hefur hins vegar verið beitt sömu aðferðum og mörg undanfarin ár þ.e.a.s. til þess er ætlast að ungling- arnir reyni fyrir sér á hinum almenna vinnumarkaði en þeir sem ekki fá vinnu á þann hátt fái þá vinnu tímabundið hjá bænum. Astandið í atvinnumálum unglinga í sumar virðist miklu betra en t.d. 1990 og eru nú á skrá hjá Vinnumiðlun unglinga alls um 40 unglingar á aldrinum 15-20 ára og nú hefur bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkt tillögu sem byggir á greinagerð frá Æskulýðs- og tómstundaráði þar sem lagt er til að allir þessir unglingar fái vinnu hjá bænum í átta vikur frá og með 20. júní. Stærsti hópurinn er unglingar sem eru fæddir 1975 og verða ekki sextán ára fyrr en í haust en erfitt er fyrir atvinnurekendur að ráða fólk á þessum aldri vegna tryggingamála. En bæjarráð hefur sem sagt samþykkt tillögu í þessa veru og vísað henni til bæjarstjórnar sem kemur saman til fundar 18. júní. MALGAGN JAFNAÐARSTEFNUNNAR

x

Alþýðublað Hafnarfjarðar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublað Hafnarfjarðar
https://timarit.is/publication/411

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.