Alþýðublað Hafnarfjarðar - 01.06.1991, Page 2

Alþýðublað Hafnarfjarðar - 01.06.1991, Page 2
Alþýðublað Hafnarfjarðar Listahátíö í Hafnarfiröi Listahátíð í Hafnarfirði er að hefjast og mun standa yfir í mánuð. Mikill uppgangur og gróska hefur verið í öllu menningar- og listalífi í Hafnarfirði á undanförnum árum. Listamönnum hefur verið búin betri aðstaða í Hafnarfirði til að vinna að listsköpun en þekkist vfðast hvar annars staðar. í Hafnarborg er aðstaða til sýninga- og tónleikahalds eins og best gerist hér á landi og þótt víðar væri leitað. Auk þess er að finna gistivinnustofu í Hafnarborg þar sem fjölmörgum erlendum sem innlendum listamönnum hefur gefist kostur að vinna að list sinni í lengri eða skemmri tíma. Sýningarhald hef ur staðið með miklum blóma í Hafnarborg en þangað koma þúsundir gesta á hverju ári. Þá mega Hafnfirðingar vera stoltir af listamiðstöðinni í Straumi. Þar hefur að frumkvæði listamanna risið einhver athvglisverðasta vinnuaðstaða fyrir listamenn sem þekkist. Bærinn hefur stutt dyggilega við uppbyggingu í Straumi og þá starfsemi sem þar hefur farið fram. Sfðast liðin hálfan mánuð hefur staðið yfir alþjóðleg vinnustofa höggmyndara og er hún þriðja sinnar tegundar í heiminum. í Straumi hafa því verið að vinna að höggmyndagerð, skúlptúr, fjöldi erlendra og innlendra listamanna. Þeir hafa ákveðið að gefa Hafnfirðingum verk sín að lokinni sýningu á verkum sínum sem verður í miðbæ Hafnarfjarðar. Munu verkin mynda grunninn að Höggmyndagarði Hafnarfjarðar sem rísa mun á Víðistaðasvæðinu. Verður hann einstakur í sinni röð á íslandi. Auk höggmyndasýningar verður á Listahátíð í Hafnarfirði boðið upp á myndlistarsýningar og tónleikahald ýmis konar. Stærstu rokktónleikar sem haldnir hafa verið hér á landi verða til að mynda haldnir á Kaplakrika. Munu þekktar hljómsveitir erlendar og innlendar leika á tónleikunum. Búast má við að Hafnarfjörður verði iðandi að lífi ogfjöri næsta mánuðinn eða meðan á Listahátíðinni stendur. Alþýðublað Hafnarfjarðar óskar hafnfirskum listamönnum og Hafnfirðingum öllum til hamingju með það merka framtak sem Listahátíð í Hafnarfirði er. Aöalfundur Rauða Krossins Dagana 7. og 8. júní hélt Rauði Kross íslands aðalfund sinn hér í Hafnarfirði. Fundarsetning var mjög virðuleg og fór hún fram í Hafnarborg. Þar var forseti íslands frú Vigdís Finnbogadóttir viðstödd en ávörp fluttu Guðjón Magnússon form. RKÍ, Gunnhildur Sigurðar- dóttir form. Hafnarfjarð- ardeildar RKI og Ingvar Viktorsson form. bæjar- ráðs Hafnarfjarðar. Tónlist léku þeir Gunnar Gunnarsson, skólastjóri Tónlistar- skólans og Helgi Bragason yfirkennari og Kór Öldu- túnsskóla söng undir stjórn Egils Friðleifssonar. Fögnuðu viðstaddir þessu hafnfirska tónlistar- fólki innilega. Loks voru heiðraðir nokkrir er skilað höfðu miklu og ágætu starfi fyrir RKI og í þeim hópi var Hjörleifur Gunnarsson fyrrum bæjarfulltrúi í Hafnarfirði en hann var Gunnhildur Sigurðardóttir formaður Hafnarfjarðardeildar RKI flytur ávarp við setningu aðalfundar Rauða Krossins. einn af stofnendum Hafnarfjarðardeildarinnar og hefur lengi setið í stjórn hennar. Fundurinn hélt síðan áfram í húsnæði Hafnar- fjarðardeildarinnar að Bæjarhrauni 2, en þar er aðstaða hin besta til fund- arhalda. Á þessu ári varð Hafnarfjarðardeild RKI 50 ára og kom glögglega fram á fundinum að hún nýtur mikils trausts og virðingar innan raða Rauða Krossfólks. Alþýðublað Hafnar- fjarðar óskar deildinni innilega til hamingju með áfangann og væntir áframhaldandi góðs starfs af henni bæjar- búum til heilla. Knattspyrnuvertíöin hafin Nú er fótboltinn farinn að rúlla áfullu. Hafnarfjarðarliðin FH og Haukar hafa leikið sína fyrstu leiki í deildunum. FH sem leikur í 1. deild byrjaði illa og tapaði sínum fyrsta leik gegn Víkingum í Kaplakrika 2-4, en gerði síðan jafntefli í næstu leikjum 0-0 gegn KR og 1-1 gegn Vestmanna- eyingum. Haukar leika í 2.deild og hafa tapað báðum sínum leikjum til þessaí deildinni enda att kappi við sterkustu liðin. Haukar - IA1-4 og Haukar - Þór Ak 3-4. Haukar hafa hinsvegar leikið tvo leiki í Bikarkeppninni og sigrað í báðum eða Leikni 2- 0 og Gróttu 6-3. Við hér á Alþýðublaði Hafnarfjarðar óskum báðum félögunum góðs gengis í sumar og hvetjum bæjarbúa til að koma og fylgjast með heimaleikjum þeirra. ✓ ✓ * * * DAGSKRA 17. JUNI HATIÐAHALDANNA 1991 15.00 Við Strandgötu. 08.00 Skátar draga fána ad háni. Skátatívolí. Minigolf. 10.00 Kaplakriki. Hestaleiga Sörla við Hafnarborg. Hátíöamót íþrótta og leikjanámskeida. Bátaleita skáta við Hvaleyrarvatn. Vídistadatán. 17.00 íþróttahús Strandgötu. Knattspyrna yngri flokka Hauka og F.H. 17. júní mót í handknattleik F.H. og Hauka. 13.30 Hellisgerði. 17.00 Thorsplan. Láðrasveit Hafnarfjarðar og Karlakórinn Þrestir. Unglingahljómsveitir halda tónleika. 13.45 Hellisgerði. 20.30 Thorsplan. Kvöldskemmtun. Helgistund, prestur séra Einar Eyjólfsson. Lúðrasveit Hafnarfjarðar leikur. 14.15 Hellisgerði. 21.00 Avarp nýstúdents. Skráðganga frá Hellisgerði. Gengið er frá Hellisgötu Danssýning Islandsm. í samkvœmisdönsum. um Reykjavíkurveg, Arnarhraun, Tjarnarbraut, Hljómsveitin íslandica. Lœkjargötu og Fjarðargötu að Thorsplani. Margrét Eir syngur. 15.00 Thorsplan. Spaugstofan. Setning. Arni Guðmundsson œskulýðsfulltrái Stjórnin leikur fyrir dansi. Ávarp forseta bœjarstjórnar Jóna Ósk Guðjónsdóttir. 21.00 Vitinn. Ávarp fjaUkonu. Dansleikur. Gömlu brýnin leika gömlu og nýju Söngur leikskólabarna. dansana til kl. 01.00. Dansatriði, Fimleikafélagið Björk sýnir. Tóti trúður. Bjartmar Guðlaugsson. Kór Flensborgarskóla heimsœkir sjúkrastofnani. Karatesýning Hauka. Rokkópera Flensborgarskóla. kaffi- og veitingasölu í Vitanum frá kl. 14.00.

x

Alþýðublað Hafnarfjarðar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublað Hafnarfjarðar
https://timarit.is/publication/411

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.