Bréf til drengja og unglinga í K.F.U.M. - 11.10.1936, Blaðsíða 3
3
eldra sína og sanna vini og sumir af þein> urðu hreinustu
ræflar. Sumir þessara dreng’ja hafa löngu seinna sagt viö
mig grátandi: »Ef jeg hefði fylgt því, sem kennt var i
K. F. U. M. og haldið mjer að því betuj’, ]rá væri jeg ekki
kominn svona«. Jeg vona að þú litli bróðir, senr þetta
lest, þurfir aldrei að segja þetta. Og þú þarft þess aldrei,
ef þú villt fylgja Jesú og læra af honum. Hann einn getur
varðveitt þig frá öllu. illu, ef þú vilt lofa honum að gjöra
þaö. Vertu trúr og vakandi yfir sjálfum þjer. Þá fer alt
vel.
T'il þín og- allra góðra drengja í Y-D vil jeg að endingu
segja þetta: Lestu pistilinn í dag. Hann er í 1. kap. fyrra
brjefsins til Korintu manna 4- 9 versi (á bls. 297 í vasa-
testamentinu; á bls. 1021 i vasabiblíunni). — Þetta vildi
jeg skrifa til yðar allra í deildinni. Pistillinn byrjar svona:
»Áva.lt þakka jeg Guð'i minum yðar vegna fyrir þá náð^
Guðs, sem yður er gefin í Kristi Jesú«. Lestu svo vel og,
vandlega það, sem á eptir fer. Þetta vil jeg gjöra að mín-
um orðum qg minni ósk og bæn. Það vill sveitarstjórinn
þinn líka. Þinn Fr. Fnðriksson.
U-D í K. F. U. H.
Allir sannir og trúfastir fjelagar Y-D hlakka til að kom-
ast inn í U-D, þegar þeir verðia nógu gamlir. U-D er hau'ra
stig í K. F. U. M. Þegar drengir verða 14 ára geta. þeir
gen.gið inn í U-D. Þá er þroskinn orðin meiri, þess vegna
köllum við þá ekki l,engu;r drengi, heldur pilta, Þeir sem
hafa verið góðir og sannir og' trúfastuir, meðlimir í Y-D
haldia áfram á hinni góðu braut, sem þeir byrjuðu á í
Y-D, og nú kemur meiri alvav a inn í líf þeirra. Og kristin-
dómurinn, sem verndaði þá á bernskuárunum verður nú á-
kveðnari. Þeir fara að hugsa um að verða sjálfstæðir í sam-
bandi sínu við Guð og fara því að leita hans a.f meiri al-