Ljós og sannleikur - 01.12.1919, Blaðsíða 3

Ljós og sannleikur - 01.12.1919, Blaðsíða 3
Ljós og sannleikur 75 hvetja þá til a'ö vaka og vera viöbúnir þeim mikla degi. — Ó, eg vildi að eg gæti látið hjörtu brenna af þeim sannleika, að Drottinn kemur skjótt. Já, vegurinn er þröngur, en hann er nógu breið- ur handa Jesú og mér. Eg er ekki laus viö óvild -annara, en hann hefir borið það fyrir mig, og eg er fús til að bera hxað sem helst er fyrir hann, því hann hefir sagt: „Ef heimurinn hatar yður, þá vitið, að hann hefir hatað mig á undan yður.“ (Jóh. 15, 18). Eg lofa Jesúm fyrir það, að hann úthelti sinum heilaga anda yfir mig. Allir geta átt kost á því. Biðjið Drottinn um regn á vortím- unum.“ (Zak. 10, 1). Lausn yðar er i nánd. Dýrð sé Drotni Jesú! Hann fullnægir oss öllum. Full- nægir hann þér? Er hann þinn elskaði vinur? Sé ekki svo, þá bíð þú í þolgæði. Hann kemur (Hebr. 10, 36. 27.). Hvert orð vors guðs er satt og bregst aldrei. Legðu alt í sölurnar, því hann er langt um meira verður en alt, sem þú getur i sölur lagt. Hann mun vel fyrir sjá. Hann kemur og, ef vér erum trúir, þá munum vér ríkja með honum.“ (Opinb. 1, 5. 7.). En þar sem hann er mér svo dýnnætur og eg fæ að lifa i himneskum veislufagnaði, þá er sú hlutdeild eigi handa mér einum. Eg verð að fara út á hvítu akrana og segja öllum frá þessum fagnaðarboðskap, sem mér hefir verið birtur af honum. Eg er svo þakk- látur fyrir það, að hann hefir veitt mér rétt til að fara; eg trúi honum einum fyrir líkama mín- um, sál og anda. Hann hefir lofað að sjá mér fyrir öllu, sem eg þarf við, samkvæmt þessu orði: „Minn Guð mun uppfylla allar þarfir yðar af sinni dýrðlegu nægt, vegna Jesú Krists.“ (Fil. 4, 19)- Eg bið hvern ykkar fyrir sig, sem eruð i sam- félagi við Krist, að bera mig á bænarvængjum og lofgerðar, til þess að eg megi varðveitast i auðmýkt, negldur á kross Krists, til þess að hans megi verða dýrðin í öllum greinum, og hann megi fyrir mig ávinna sér til handa margar dýrmætar sálir. Einn og alla Kristur kallar: „Komið, lítið á hvíta aki'a, verkmenn vantar, vinni hver sem má.“ Komum, helgum hirði vorum hjarta vort og líf, því aö hann og enginn annar er í s t a r f i hlíf. — Guðleg lækning. Hér er um líkamlega lælcningu að ræða. Ritn- ingin segir, að það sé ein af náðargjöfum Guðs, trúuðum mönnum til handa, að þeir geti læknað ýmsa sjúkdóma með bæn fyrir hinum sjúku. Það var sérstaklega faliö öldungum safnað- anna eða prestunum. Og þess eru dæmi nú á tím- um, að tæring, krabbamein, taugaveiki og hita- sóttir m. fl., hefir verið læknað á þann hátt. Prestur nokkur segir frá þvi nú fyrir skemstu, að kona hafi beðið sig að lækna sig með smurn- ingu og bæn. Hann færðist undan því. Hann kvaðst egi hafa nógu sterka trú til þess. Og að þvi yrði dregið dár, ef hann færi að fást við þær lækningar og hefði eigi trú. En þetta varð til þess, að hann fór að rann- saka orð Guðs um þetta efni, og sannfærðist þá um, að það ætti að vera eitt af hlutverkum orðs- ins þjóna, að framkvæma þessar lækningar í nafni Jesú Krists, eins og Kristur gerði og post- ular hans. Um Krist var þessu spáð: Vorar þjáningar voru það, sem hann bar og vor harmkvæli, sem hann á sig lagði o. s. frv. (Jes. 53, 4, 5). Alla þá, sem sjúkir voru, læknaði hann (Matth. 8, 16 —17). Hann læknaði larna manninn bæði andlega og líkamlega (Mark. 2). Presturinn komst að þeirri niðurstöðu, að Guð hefði sent son sinn til að lækna menn, ekki sálir manna einar, heldur og allan manninn, líkama, sál og anda. Samkvæmt því ætti kirkjan, söfnuð- ur Krists, að bæta jafnt úr líkamlegu sem and- legum meinum manna með krafti Guðs. Hún á að prédika það, hún að kenna það. Drottinn gaf kirkjunni presta og þjóna. Þjónar hans áttu að boða fagnaðarerindið öllum þjóðum, samkvæmt orðum Krists: „Farið og kristnið allar þjóðir og kennið þeim að halda alt, sem eg hefi boðið yður.£’ (Matt. 28, 19. 20.). Þetta atriði um það, að frið- þægingin eigi að ná til m a n n s i n s a 11 s, má þá heldur eigi undan fella. í bréfi Jakobs, „bróður Drottins“, segir Drott • inn: „Sé einhver sjúkur yðar á meðal, þá kalli hann til sín öldunga safnaðarins og þeir skulu smyrja hann meö olíu í nafni Drottins og biðjast fyrir yfir honum, og trúarbænin mun gera hinn sjúka heilan, og Drottinn mun reisa hann á fætur

x

Ljós og sannleikur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljós og sannleikur
https://timarit.is/publication/479

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.