Ljós og sannleikur - 01.01.1920, Blaðsíða 2

Ljós og sannleikur - 01.01.1920, Blaðsíða 2
82 Ljós og sannleikur Ófriöarbáliö með grimdar gný geisar nú örjjjáðum heimi í. Bræður, ó, verum á verði því: Jesús, hann kemur senn. Lifandi vottar. Allir kristnir menn eiga að vera vottar Jesú, „Þér skuluð vera v ot t a r mínir,“ sagði Jesú við lærisveina sína. En til eru 1 i f a n d i vottar og til eru dauð- ir vottar í kristnum söfnuðum. Lifandi vottar hafa 1 i f a n d i t r ú; trú, starfandi í kærleika. þeir eru glaðir í von- inn, brennandi í andanum, j^olgóðir i þiáning- unni og staðfastir í bæninni. Dauðir vottar hafa dauða trú, trú, sem ekki er nema köld játning með vörunum og betrar hvorki hjartað né lífernið. Þeir hafa v o n, en sú von er engin v i s s a, þeir eru hálfvolgir í andanum, möglandi í j)jáningunum, og biðj- andi eru jæir ekki. „Eg heilsa Guði“, sagði al- jjektur vantrúarmaður, „en við tölumst aldrei við.“ Svonar eru dauðir vottar. Þeir bera meiri eða minni virðingu fyrir ytri siðum kirkjunnar og fylgja venjunum, en þeir biðja ekki. Þeir láta skrá nöfn sín í kirkjubækurnar, þeir gjalda til prests og kirkju nokkurn veginn umyrðalaust, þeir láta skíra börn sín og ferma og fara með þeim til altaris; en j)á er lika lokið. Þeir fylgja siðunum, lengra fara J>eir ekki. — Að öðru leyti lifa þeir, eins og regluleg veraldarbörn. Ekkert er þeim ver við en ákveðinn, lifandi kristindóm. Ef einhver er svo djarfur að segja þeim, að trú þeirra sé ó n ý t, því að hún sé ekkert nema litur utan á þeim, þá reiðast þeir sannleikanum. Þeir halda dauðahaldi í „gömlu fötin“, sem Jesú talar um og vilja í hæsta lagi láta eitthvað bæta þau; en að fá sér ný föt, algerlega nýog fleygja gömlu tötrunum, þykir þeim hin mesta óhæfa. Þeir vilja ekki þigfgrja. brúðkaupsklæðið, náð Guðs fyrir Jesú Krist. Þeir vilja koma á fund hins heilaga Guðs í sínum eigin fötum. En hvernig geta dauðir vottar orðið lifandi? Geta þeir það af eigin skynsemi eða krafti? Nei, því getur ekkert til leiðar komið, nema Vik fyrir deginum, dimma nótt! Dýrðlegi brúðgumi, kom j>ú fljótt! Veit þú oss gleði og vonarþrótt: Jesús, hann kemur senn. Guðs h e i 1 a g i a n d i m e ð o r ð i G u ð s. Orð Guðs, sem er beittara hverju tvíeggjuðu sverði, smýgur inn milli sálar og anda hins synduga manns. Honum opnast augu, hann sér, að hann er aumur syndari í augum Guðs, stadd- ur í dauðans háska í andlegu tilliti. Hann verð- ur djúphyggur, eins og Pétur í garði æðsta prestsins og biður og andvarpar eftir náð, j>ang- að til páskadagsmorguninn rennur upp í lífi hans og hann hittir sinn upprisna frelsara og fær aö heyra fyrirgefningarorðin af vörum hans sjálfs. Þá er hann orðinn lifandi vottur. Þá verður vonin að lifandi vissu, að sannfæringu, sem hefir fult vald á honum, j>á verður hann þolgóður í hverri þjáningu, því nú þjáist hann vegna Krists, sem elskaði hann að fyrra bragöi og nú er orðinn einkavinur hans. Nú er hann orðinn brennandi i andanum, nú villi hann vinna verk Guðs, reisa þá, sem fallnir eru, eins og hann var sjálfur, leiða þá til frelsarans. Þá getur hann sungið af heitu hjarta: Jeg vil með þér Jesú stríða, eg vil finna týndan sauð, eg vil lækna sár, er svíða, seðja j)á, sem vantar brauð, eg vil með j)ér líka liða, lausnarinn góði, kross og nauð. Nú verður hann í bæninni staðfastur. Nú ákil- ur hann áminningar frelsarans. „Vakið og biðj- ið, svo j)ér fallið ekki í freistni.“ Og nú biður hann ekki eingöngu fyrir sér, heldur fyrir öðr- um og biður urn það eitt, að Guðs ríki, Guðs heilagi andi, komi til sín og þeirra og að Guðs. vilji verði með sig og j>á. „Gjör við mig, sem j>ú vilt, j>inn v i 1 j i æ sé minn!“ „Bætið ráð yðar, og snúið yður, til þess að syndir yðar verði afmáðar," segir Drottinn. Ef j)eir, sem kristnir éru kallaðir, skildu al- ment, livað þessi bót og betrun er, og vildu alt

x

Ljós og sannleikur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljós og sannleikur
https://timarit.is/publication/479

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.