Ljósvakinn - 01.07.1923, Side 4

Ljósvakinn - 01.07.1923, Side 4
76 LJÓSVAKINN Umhyggja og kærleikur. wÞví aö eg þekki þær fyrirætlanir, sem eg kefi í hyggju með yður — segir Drottinn, — tyrirætlanir til heilla, en ekki til óhamingju, að veita yður vona- ríka framtíð«. Jer. 29, 11. »Því að mínar hugsanir eru ekki yðar hugsanir, og yðar vegir ekki mfnir veg- ir segir Drottinn, heldur svo miklu sem himininn er hærri en jörðin, svo miklu liærri eru minir vegir yðrum vegum og mínar hugsanir yðrum hugsunum«. Es. 55, 89. Ekkert er manninum eins yndislegt og farsælt og það, að leggja sig alveg í Guðs hönd, en samt virðist það vera hið erfiðasta hlutverk í lífi manns að leyfa Drottni að stýra gangi manns alveg. Hvað er barninu betra en að hjúfra sig að elskulegum föður eða móður og fá leiðsögn þeirra eða verða fyrir ástar- allotum /rá þeirra hendi? En samt sér og heyrir maður daglega um börn, sem ganga fram hjá ráðleggingum foreldra sinna og snúa sér heldur að æfintýra- lífi gatnanna með kunningjum sínum og vinum þar. En í heitnakúsum getur maður fundið mömmu eða pabba í bæn til Guðs, um að hann hjálpi hinu frá- vilta barni til að sjá að sér. Hver ætli finni mest til undir þvílíkum kringum- slæðum barnið eö'a foreldrin? Barnið gleymir sér og að lokum sínum í glaumi lífsins, en eftir situr sá eða sú, sem elskar lífsafkvæmið sitt meira en sitt eigið líf, og alt sem þau fá fyrir kærleika er óhlýðni frá harnsins hálfu. Kærleiks- ríkur faðir mun aldrei gefa fyrirskipan- ir sem brjóta i bága við velferð sonarins, og ástrík móðir mun heldur aldrei gefa dóttur sinni þær ráðleggingar, sem verða öðruvísi en til heilla, en barnið kýs heldur að ganga sína eigin gölu og af- leiðingarnar af því eru því miður oft of bersýnilegar lil að veita því ekki eftir- tekt. Ekki kemur föðurinn með fyrir- skipanir sínar til þess að gera soninn að þræli, heldur er hver fyrirskipun kærleiksríks föður sett fram syninum lil góðs, faðirinn lrefir reynsluna en sonur- inn er að byrja lífsskeiðið. Syninum finst oft ályktanir föður síns alt of úr- eltar til þess að gefa þeim gaum að nokkru eða öllu leyti, og tekur heldur tillit til þess, sem jafningjar hans ráð- leggja honum, föður sínum til ama og hrygðar, en sjálfum sér í óhag. Reha- beam konungur, sonur Salómons, misti nærri alt ríki sitt, af því hann gaf ráð- leggingum hins óreynda lýðs gaum, en sneyddi hjá og virti að engu ráð hinna reyndu. Aðrir hafa mist eigur sinar, aðr- ir mannorð sitt og en aðrir líf sitt af sömu ástæðu. Samt hefir óhlýðnin al- drei verið á hærra stigi en einmilt núl Þelta er all raunveruleiki þessa lífs; en til er annað lif, sem Jesús er elskar oss svo innilega, hefir gert alt lil að við öðlumst. Vegur til frama hér i þessu lííi er skilyrðum bundinn eins er vegur til heilla og sælu heima hjá Guði bundinn skilyrðum, sem hægt er að sameina í einu orði: Hlýðni. Margir hafa þá röngu hugmynd, að þeir geti sjálfir ákveð- ið leiðina, og svo taki Guð það gilt að lokum, en svo er ekki. »Ó að þú vildir gefa gaum að boðorðum min- um, þn mund; heill þín verða sem fljót og réttlæti þitt sem bylgjur sjáfarins«. segir Drottinn. Es. 48, 18. og en frem- ur. »Ekk^mun hver sá, er við mig seg- ir: Herra, herra, ganga inn í himnaríki, heldur sá er gerir vilja föður míns, sem er í himninum. Margir munu segja við

x

Ljósvakinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.