Ljósvakinn - 01.07.1923, Blaðsíða 6

Ljósvakinn - 01.07.1923, Blaðsíða 6
78 LJÓSVAKINN Sá, sem lifir án samfélags við Krist, er varnarlaus gegn freistingum óvinarins, og gerir glappaskot í störfum sínum. Af því að hann fylgir ekki réttum grund- vallarreglum í því smáa, hlýðir hann heldur ekki Guði i því', sem stærra er, og, sem hann álítur hið rétta starfsvið silt. Sama vanrækslan og hirðuleisið, sem hann sýnir í smáatriðum lifsins, mun einnig koma í Ijós í því, sem stærra er. Hann breytir eins og hann hefir van- ið sig á. Það, sem síelt er endurtekið, verður að vana, vaninn mótar hug^r- farið, og hugarfarið gerir út um forlög vor, fyrir tíma og eilífð. Hvað helst sem vér erum, býður Krist- ur oss að takast á hendur þærskyldur, sem falla oss í skaut. Séu skyldur þín- ar á heimilinu þá kappkosta með alvöru og fórnfýsi að gera heimilið aðlaðandi og ánægjulegt. Ekkert líkist eins mikið hinni upphaflegu Paradfs, eins og heim- ili, þar sem guösótti, ást, íriður og ein- ing rikir. Sért þú móðir, þá al börn þín upp fyrir Krist; þetta er eins þýðingar- mikið starf i Guðs augum eins og starf prédikarans á ræðustólnum. Séu skyldu- störf þín i eldhúsinu, þá gerðu þér alt far um að vera þar trúr og samvisku- samur verkamaður. Búðu til Ijúflengan, hollan og nærandi mat, notaðu i hann þær beztu vörutegundir, sem þú getur fengið, og meðan þú starfar, þá láttu hugann dvelja við það, sem hreint er og gott. Sé það starf þitt að yrkja jörð- ina eða þú hefir eitthvert handverk, í stultu máli, hvers konar störf sem þú hefir á hendi, þá gerðu alt vel og trú- lega. Legðu krafta þína i starf þitll Vertu vottur Krists í öllu, sem þú gerir! Gerðu það eins og Kristur mundi hafa gert þaðl Hversu lítið sem pund þitt er, þá get- ur Guð þó notað það. Sé eina talentan iéttilega notuð, mun hún vinna sitl á- kveðna verk. Séum vér trúir í hinum allraminstu skyldustörfum vorum, þá mun Guð láta það bera margfalda á- vexti, og þau munu verða honum lil dýrðar og vegsemdar. Láttu lifandi trú vera rauða þráðinn í allri starfsemi þinni, þá mun daglega vinnan miða að kristilegum þroska. Ef við höfum Jesú sífelt fyrir augum, mun kærleikurinn lil hans verða líf og kraft- ur í öllu, sem vér tökum oss fyrir hend- ur. Með þvi að nota talentur vorar rétt, leggjum vér brú til landsins hinum meg- in. Pelta er helgunarverk; því helgunin er í því fólgin, að vér með gleði innum af hendi hin daglegu skyldustörf vor í fullkominni hlýðni við Guð. En það eru margir kristnir, sem bíða eftir því að eitt eða annað stórt starf- svið opnist fyrir þeim, en þegar það ekki verður, finst þeim ekkert geta sval- að löngun sinni, og svo vanrækja þeir að gegna venjulegum skyldustörfum með trúmensku. Peim finst ekki þeir geti telt sig við blátt áfram störf. Dag eftir dag láta þeir tækifærin til að sýna Guði trúmensku, ganga sér úr greipum, og meðan þeir eru að bíða eftir því, að fá eitthvað mikilvægt stari, líður æfin hröðum fetum, áforin þeirra fá ekki framgang, og það, sem þeim er ætlað að gera, verður ógert. Dómurinn yfir hinum lata þjóni hljóð- aði þannig: »Takið því af honum tal- entuna og fáið þeim, er hefir tíu lalent- urnar«. (Matt. 25, 28.) þetta sýnir oss, ekki að eins hvað verða mun í dóminum á efsta degi, heldur líka hinar óhjá- kvæmilegu afleiðingar hér í lífi. Hver sá hæfileiki, sem ekki er notaður mun veslast upp og deyja. Slarfsemi er lög-

x

Ljósvakinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.