Ljósvakinn - 01.11.1926, Qupperneq 8

Ljósvakinn - 01.11.1926, Qupperneq 8
52 LJÓ.SVAKINN meiri, en hjá Austurlandaþjóðunum. íþeim var falið einmitt það, sem Austurlanda- búar þráðu mest. Hjá þeim vöknuðu von- ir, og þegar styrjöldinni lauk, héldu þeir, að þessar vonir mundu uppfyllast, en þeir urðu fyrir sárum vonbrigðum, þeir fundu, að þeim var gerður tvöfaldur óréltur. Hvað þeim við kom, hefði naumast verið verra, þó að striðið hefði endað með ó- sigri bandamanna, þvi að þeir fengu ekki óskum sfnum framgengt hvoit sem var. Síðan hefir gremja þeirra farið sívaxandi dag frá degi. Það er ekki einungis að Auslurlandaþjóðirnar séu gramar Vestur- landaþjóðunum, heldur hafa þær fengið fyrirlitningu á þeim. Að heimsstyrjöldinni lokinni, voru Austurlandaþjóðirnar búnar að missa álit sitt á útlendingum. Þegar Austurlandabúar sáu volduga Veslurlanda- þjóð — þjóð, sem þeir höföu borið mikla virðingu fyrir — þjóð, sem þeim í viss- um skilningi hafði staðið ótti af, bíða svo algerðan ósigur, — þegar þeir sáu hana svifta rétti sínum á flestum sviðum, svifta nýlendum sínum, verða til háðs og fyrir- litningar frammi fyrir smáþjóðunum, þá óx kjarkur þeirra og von um að geta hrundið af sér oki útlendinga. Margir, sem glöddust yfir óförum þýsku þjóðarinnar, hafa nú fengið að smakka lítið eilt af þvi sama. Þjóðverjar sem áður voru svo voldugir, voru framvegis Veslurlandabúar og útlendingar í augum Austurlandabúa; og þegar nú svo var komið, að Austurlönd voru búin að svala sér með því, að hafa hönd í bagga með að auðmýkja þessa jötna að vestan, þá varð það einungis til þess, að þjóðina þyrsti í meira af sama tagi. Það, sem hafði orðið hlutskifti einnar þjóðarinnar, hélt hún að gæti ef til vill einnig orðið hlutskifti annarar. Hatviö brýst út. Austurrfki og Ungverjaland fengu sömu útreiðina og Þýskaland, og svo kom röð- in að Rússlandi. í Austurlöndum var litið jafnsmáum augum á borgara þessara ríkja og á borgara hinna auðvirðilegustu ríkja í Austurlöndum. Þúsundum saman flökk- uðu Rússar urn alt Kínaveldi, ýmist sem betlarar, blaðasalar, eða þá að þeir höfðu ofanaf fyrir sér með einhverju öðru, sem enginn Evrópumaður í Austurlöndum hingað til hafði viljað líta við — aitþetta hafði geysimikil áhrif í þá átt, að rýra á- lit það, sem þjóðin hafði haft á Vestur- löndum. Kínverjar sáu, að nú gátu þeir farið eins með þessa útlendinga og farið hafði verið með þá af útlendingum, og þeir notuðu tækifærið til þess ítrasta. Margir, sem hafa séð, hvernig Kínverj- ar hafa troðið þessa úllendinga undir fót- um sér og sýnt þeim hina megnustu fyr- irlitningu, hafa farið að hugsa alvarlega um það, ef ske kynni, að þeir sjálfir yrðu að sæta sömu meðferð. Eftir er í þessu sambandi að minnast á England og Frakkland. Hvað viðvikur Frakklandi, þá má með sanni segja, aðsá mikli fjöldi Kínverja sem unnu sem burð- arkarlar í Norðurálfustriðinu, lærðu margt, sem þeir munu aldrei gleyma. Þegar þeir komu aftur, voru augu þeirra opnuð og álit þeirra alt annað á Frakklandi en ver- ið hafði. Hver sem heyrt hefir Kínverja tala um reynslur slnar í Frakklandi veit, að þeir líta alt öðrum augum á það nú, en fyrir ófriðinn. Bretaveldi eitt, er enn í augum Kínverja hinn mikli, voldugi full- trúi hinna drotnandi Vesturlanda. Breta- veldi er að ætlun Kinverja sá þröskuldur, sem erfiðastur verður á leið þeirra í þjóð- ernisbaráttunni; af því er komin hin geysi- mikla ólga* sem nú í dag er í blóði Kín- verjans. Hið ytra verður Kína að Iúta Englandi, en hið innra er hatur og fyrir- litning. Það, sem býr inni fyrir hjá þjóð- inni, hefir komið mjög greinilega í Ijós í þvi, sem ált hefir sér stað nú nýverið, þegar ráðist var á bresk yfirvöld, breskir

x

Ljósvakinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.