Ljósvakinn - 01.11.1926, Side 12

Ljósvakinn - 01.11.1926, Side 12
56 LJÓSVAKINN sér fyrir hendur að ransaka Krist til að geta gert sér grein fyrir honum á náltúr- legan hátl; en allir hafa þeir lokið ransókn sinni, á sama hátt og Lowis Wallace — komist til fastrar trúar á guðdóm Krists. Hver er þessi Kristur sem var á ferð fram með Galíleu-vatninu og hélt fáeinar prédikanir, sem aukist hafa að krafti öld eftir öld? Hver er hann þessi ólærði kennari, sem geng- ur á hólm við alt brjóstvit og heim- speki veraldarinn- ar, sem segir með svo undarlega ör- uggri, rólegri full- vissu: »Sjá, hér er hann, sem er meiri en Salomó«. »Eg er Ijós heimsins«. »Himinn og jörð munu líða undir lok, en orð mín munu aldrei undir lok líða«. Hversvegna kom aldrei neinum til hugar að kalla þetta hræðilega frekju? Ef einhver annar en hann hefði gert slíkar kröfur til guðlegrar tignar, þá mundu þær hafa virst ósann- gjarnar; en af því að þær koma frá Kristi, þá sýnast þær alveg náttúrlegar. — Hverja grein eigum vér að gera oss fyrir Kristi? Getur þú eina svipstund látið þér í hug koma, að hann hafi öðlast hreinleika sinn af óhreinleika annara, þekkingu sína af ófræði annara, frjálslyndi sitt af þröng- sýni annara, viðkvæmni sína af harðýðgi annara, viðgang sinn af kyrstöðu annara, göfuglyndi sitt af litilmensku annara, kær- leika sinn af óumræðilegu batri annara. Því að hið siðferðilega og andlega and- rúmsloft, hinar þjóðlegu erfikenningar og metnaður, hin hefðarkenda óframfærni, hnýsni og andúð gegn Kristi, lýsti algerðu skilningsleysi á öllu, sem hann haíði ásett sér að koma til vegar. Hinn ungi maður kemur frá fyrirlitnum smábæ i Galíleu, ólærður i vísindagreinum heimsins — ungur trésmiður,semhafði víst aldrei komið út fyrir landamæri Gyðingalands. Og fyrsta opin- bera ræða hans, fjallræðan, er hin frumlegasta og byltingasamlegasta ræða, að því er raunverulegar sið- ferðishugmyndir snertir, sem nokk- urntímahefirhaldin verið í heiminum. Hún kollvarpar öll- um siðferði-kerfum Gyðinga og heið- ingja. Hvorki fyrr né síðar hefir nokk- ur maðurtalað.eins og hann talaði. Hvaðan kom hon- um kraflur hans og speki? Enginn vantrúa spekingur hefir getað gefið full- nægjandi skýringu á því. Allur heimurinn hefir verið undrun sleg- inn við orð hans. Tíminn hefir ekki getað dregið úr ljósi þeirra né veikt kraft þeirra. Þó að einhver hafi haft náin kynni af þeim þá hefir það ekki eylt gróðurmagni né ilmi þeirra. Orðin hans eru hin blíðustu, viturleg- ustu og einföldustu, sem nokkurnlíma hafa verið töluð til manna; þau skína enn jafn skært og áður. tSvo sönn eru þau, svo »IIann var sœrður vegna vorra synda og kram- inn vegna vorra misgerðau.

x

Ljósvakinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.