Ljósvakinn - 01.11.1926, Blaðsíða 22

Ljósvakinn - 01.11.1926, Blaðsíða 22
66 LJÓSVAKINN sínum alt upp að landamærum borgarinnar, einmilt á þeim slóðum sem hámúrar borg- arinnar skygðu á forðum. En í grend við rústirnar vilja þeir ekki koma. Esekiel spáði því um Rabba, að Guð mundi gera það »land að beitilandi fyrir úlfalda« (25, 5) og um Ammon segir bann, að það »skyldi verða að fjárbóli til þess að þér viðurkennið, að ég er Drottinn« (v. 6). Ferðamaður, sem kom á rústir þessar, ritar, að »það sé algengt á þessum slóð- um, að hjarðmenn noti rústir af bygging- um til skjóls handa hjörðum sínum«. En um Babýlon er öðru máli að gegna. Ferðamenn staðfeslu þessi orð spámannsins: »Enginn Arabi skal þar slá tjöldum sín- um«. (Jes. 13, 20). Hvernig gat Jesaja vitað: 1. Að Arabar mundu verða við lýði, þegar Babýlon væri orðin að dufti? Ekki bjuggu nema fáeinir lítilmótlegir Arabar fyrir 25 öldum síðan í kringum Babý- lon, en þá voru Babýloníumenn ein- hverjir hinir ríkilátustu drotnarar í heimi. Því var spáö, að sú þjóð mundi algerlega undir lok líða, og nú er ekki til einn einasti maður i heimi af þeim kynstofní. En spámaðurinn sagði líka fyrir, að hin litla hjarðmannaþjóð, Arabarnir, mundu uppi vera þúsundir ára eftir það Babýloníumenn og borg þeirra væri undir lok liðið. 2. Að Arabar skyldu haldast uppi i grend við Babýlon? Par sem þeir voru ílökku- þjóð, þá hefði verið eðlilegt að álykta, að þeir mundu, er tímar liðu frarn, hverfa burt af svo óvisllegum stað sem Babýlon hefir reynst. En sam- kvæmt orðum spámannsins hafa þeir hafst við í kringum rústir Babýlonar öldum saman og fram á vora daga. En sá hæðnishlátur, sem biblíuvefengj- endurnir mundu reka upp, ef engir Arabar hefðust við hundrað mílna fjarlægð frá Babýlon. Og hvað mund- um vér hafa fengið að heyra ef allir Arabar væru nú úldauðir, áður en Babýlon gleymdistl 3. Að Arabar mundu búa í tjöldum? Nóg var efnið i rústum Babýlonar til að reisa borgir á bagkvæmari stöðum. En Arabar búa í tjöldum enn þann dag í dag. 4. Að Arabarnir mundu ekki leita skjóls í þessum rústum? Margir landkönnun- armenn og þátttakendur í leiðangrum til fornmenjagraftar á seinni tímum, skýra svo frá, að það sé ómögulegt að 'fá Araba til að vera nætursakir i rúst- unum. Sex Arabar fylgdu Mignan höf- uðsmanni, alvopnaðir, en bann segir, að hann hafi ekki getað »haldið þeim hjá sér til kvölds, sakir hræðslu þeirra við illa anda«. Og þó vita allir, að Arabar eru hinir vígdjörfustu og skeinu- hætlir í orustum. Og Jeremías segir: »Kaldea skal verða að herfangi, allir, sem hana ræna, fá nægju sína, segir Drottinn«. (50, 10). í þessum spádómi er tvent, sem vér viljum benda á: Fyrst og fremst orðið »allir«. Pað bendir til, að bæði Babýlon og aðrar borgir í Kaldeu muni oft verða rændar. Aldrei var neinu slíku spáð um Týrus, Sídon eða Niníve, né um þær mörgu borgir og lönd, sem sagt var fyrir að eyddar mundu verða. Og samkvæmt spá- dómunum rændi hver þjóðin eftir aðra rústir Babýlonar, fyrst Medar og Persar. Ótæmandi auðæfi, Og því næst: Hvernig gat spámaðuriun vitað, að nóg mundi þar verða fyrir af auðæfum til að freista hvers ræningjaskar- ans á fætur öðrum og nægja þeim? Týrus var ein hin auðugasta borg í heimi; en þegar Nebukadnesar var búinn að fara einu sinni ránshendi um hana, þá var ekkert eftir, sem gæti freistað annars Iandvinn- ingamanns til að bertaka hana. Öðru máli var að gegna um auðæfin í Babýlon og

x

Ljósvakinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.