Ljósvakinn - 01.11.1926, Page 27
m av © q iSo
Visindi og trú. Sagt er að 40 mikilsmetnir
Amerikumenn hafl nýlega geflð út »boð«
þess efnis »að það væri ekkert ósamræmi
milli vísindanna og trúarbragðanna« Einn
þeirra, sem undirskrifuðu þetta sönnunar-
skjal var verslunarmálaráðherra Hoover;
annar var atvinnumálaráðherra Davis. Á
skjali þessu voru einnig þrír biskupar. En
hinn nafnkunni talsmaður kristindómsins
William J. Bryan s gir, að þessir herrar
hafl »fest upp band úr hálnii, sem þeir
síðan ráðist á með beillu sverði«. Hann
viðurkennir að milli sannra vísinda og
trúar sé ekkert ósamræmi. Vísindi séu
nefnilega flokkuð þekking; þess vcgna séu
það alls ckki vísindi, sem ekki er jafn-
framt sannleikur. Og enginn sannleikur
geti gei t Biblíunni nokkurn skaða. En
»ósannaðar ágiskanir«, er haldið er fram
sem sannleikur væri, getur hann að engu
leyli tekið góðar og gildar. Og hér heflr
hann auðvit^ð rélt fyrir sér. Mun ekki eiga
vel við til margra nútimans manna við-
vörunin, sem Páll postuli gaf samþjóni
sinum Tímóteusi, er hann sagði: »Pú
Tímóteus, varðveit það sem þér er trúað
fyrir, og forðast hinar vanheilögu hégóma-
ræður og mótsagnir hinnar rangnefndu
þekkingar, sem nokkrir hafa játast undir
og orðið frávillingar i trúnni«. (t. Tím. 6,20.
það, sem getur átt sér stað ( kristinni kirkju.
f einu víðlesnu blaði stóð ekki alls fyrir
löngu það, sem hér fer á eftir: »Vér lif-
um á undarlegum tímum. Svo undarteg-
um, að menn halda egypskarguðsþjónustur
í kristinni kirkju. Að kristinn prestur tæki
að sér að stjórna slíkri guðsþjónustu, myndi
fáum hafa úl hugar komið. Petta hefirþó
i raun og veru átt sér stað i St. Markúsar
biskupakirkjunni í New-York undir stjórn
séra Williams Guthrie Guðsþjónusta þessi
var helguð liinum egypska guði, Amon Ra,
sem dýrkaður var fyrir 4000 árum. Pessi
gamaldags egypska guðþjónusta í hinni
amerísku nýlísku kirkju, fór fram sam-
kvæmt forskriftum á gömlum pappírus-
rúllum. Sérstakir rafmagnsljósstrauraar
voru nötaðir til þess að setja dularfullan
blæ á samkomuna. Presturinn og söfn-
uðurinn söng tiænasönginn, sem er sam-
anseltur af kvæðum Ossians. Guthrie kraup
á kné og bað til Arnon Ra: »Heill sé þér,
Amon Ra, þú sem drotnar yflr konungs-
stólum jarðarinnar, þú sem viðheldur öll-
um hlutum, herra sannlcikans og rétt-
lætisins«. Gagnvart hinum miklu aðfinsl-
um, sem Guthrie fékk, varði hann sig með
því, að þetta væri gert til þess, að sýna
einingu trúarbragðanna, það talaði meira
til tillinninganna en skynseminnar og væri
einskonar samvinnutilraun«.
Fyrir skömmu var haldið kommunista-
þing í Moskva, og af ræðu, sem hr. Sino-
vjev liélt þar, getur maður fengið hugmynd
um, hvernig Sovjetstjórnin beinir augum
sínum að uppgangi Austurlanda og stríðs-
hæltunni. Hér er tilfært lítið eitt úr þess-
ari ræðu: »Löngu fyrir stjórnarbyltinguna
sýndi Lenin okkur fram á það, að mikil-
vægustu atvikin í hcimspólitikinni myndu
eiga sér stað í Austurlöndum, þar sem hin
ránfíkna keisarastefna er ríkjandi nú. Aust-
urlandaþjóðirnar eru farnar að nálgast
oss. Alþjóðapólitík vor er grundvölluð á
vináttu við Austurlandaþjóðirnar og sam-
bandi við þá, sem hafa verið kúgaðir siðan
eftir hi't fyrsta keisaralega strið, Eg sagði
hið fyrsta, það verður sem sé ekki hið síð-
asta. Lenin heflr sagt, að það sem vér
hingað til höfum orðið varir við, sé að eins
forspil þess stríðs, sem bráðlega muni
verða háð. Hvenær það byrjar er ekki unt
að segja«. Bolsvíkingar eru ekki í þeirra
tölu, sem gera sér óþarfar ímyndanir,
heldur gefa þeir nánar gætur að því sem
rás viðburðanna bendir þeim á að sé i
aðsigi. Óskandi væri, að vér, sem höfum
leiðbeiningu Guðs orðs, veittum eftirtekt
og kynnum að meta rétt tákn timanna.