Kennarinn - 01.05.1902, Blaðsíða 6
3«
KENNARINN
um við? — I skírninni eru börnin lögð þríeinum guði í faðm og hann tekur þau
inn í ríki sitt.—Dýrðlegt!—,,Komið!" (20). Skírðu börnunum á að vera
kent, svo þau læri að þekkja guð, sem gerði sáttmála við þau, og lifi í samfélagi
við hann. — Foreldrar og kennarar! Sjáið skyldu ykkar.
. AÐ LESA DAGLEGA-—Mán.: Pe. 3, 1—10. Þrið.: Pu'. 4, I—2. Miðv.: Pg. 5, 20—42.
Fmu.: Pg. 6, l—15. Föst.: Pg. 7. 37—60. Laug.: Pg. 8, 26—40.
KÆRU BÖRN ! Þið hafið nú í hálft ár verið að lesa og læra um konung-
inn okkar, Jesúm Krist. Þið hafið lært að þekkja hann betur. Má eg ekki
vona það? Og ykkur er sjálfsagt farið að þykja vænna um hann. Og þá viljið
þið hlýða honum. Er það ekki svo? Hann er dýrðlegur konungur. Lexían í
dag sýnir það greinilega. Hann er drottinn himins og jarðar. Getur gert alt,
sem hann vill. Það segir hann. Hann er sannur guð eins og hann er sannur
maður. Þiðgetiðþá með sanni sungið: ,, Víst ertu, Jesú, kóngur klár, kóngur
dýrðar um eilíf ár." En Jesús kennir ykkur líka að þekkja föður sinn sem föður
ykkar á himnum. Þegar þið trúið á Jesúm og hlýðið honum, þá elskar faðir hans
ykkur sem börnin sín og vill vera faðir ykkar vegna Jesú.— En svo segir Jesús
ykkur líka frá heilögum anda. Og heilagur andi vill nú einmitt hlálpa ykkur til
þess að lifa eins og guðs börn í trúnni á Jesúm. Guð er góður og dýrðlegur,
sjáið þið, börnin mín. Því hann er faðirinn, sonurinn og heilagur andi. Og í
skírninni urðuð þið börnin hans, hins góða guðs. Hann á ykkur. Þið þurfið
því að Iæra að þekkja hann og hlýða honum. Það viljið þið.
,,Ó, sannleiks andi, ljóssins leið að trúar reglu réttri frá
mig leið þú, svo um æfiskeið, ei reiki’ eg, hvað sem þola má. “
TIL LEIÐBEININGAR.—Tal einfaldlega við börnin um, að guð hafi
með Jesú opinberað sig sem fadirinn, sonurinn 0% heilas'ur andi. Kristin kirkja
játi öll þá trú, og hafi játað. Sú játning aðgreini kristna menn frá öðrum, t. d.
fráUnítörum.—Tal um skírnina. Skírnar-náðina. Og skuldbinding skírnarinnar.
-----V-0-5-C3—<------
FRYSTI SD. EFTIR TRÍN.—l. Jtíní.
Hvaða sunnud. er í dag? Hvert er guðspjall dagsins? Hinn auðugi mað-
ur og Lazarus. Hvar stendur það? Lúk. ig, ig—31. •
Hvað meinar guð með því, sem hann segir um boðorðin? Guð hótar að
hegna þeim öllum, sem þessi boðorð brjóta; þess vegna eigum vér reiði hans að
óttast, og ekki móti slíkum boðorðum að breyta. En þeim öllum, sem þessi
boðorð halda, lofar hann náð og öllu góðu; þess vegna eigum vér og hann að
elska, honum að treysta og eftir hans boðum gjarna að breyta.
Hver er lexían í dag? — Yfirlit allra lexíanna hið síðastliðna hálfa ár.
EFNI LEXÍANNA OG MINNISTEXTAR
(1. Des. igoi til 23. Maí igo2).
FYRSTA LEXÍA (1. sd. í aðventu) 1. Des. 1901:—, ,Nýr konungur í vondri
veröld'1: Esaj. 61, 1—4, 6—8, 10 —11. Minnistexti: 10. Ég vil gleðja mig í
drotni; mín sála skal glaðvær vera í guði mínum; því hann hefir klætt mig klæð-
um hjálpræðisins og lagt yfir mig kyrtil réttlætisins, eins og þegar brúðgumi læt-
ur á sig prýðilegan höfuðbúning og brúður býr sig í skart sitt.
ÖNNUR LEX. (2 sd. í aðv.), 8. Des.: — ,,Konungurinn, sem menn út-
skúfuðu, verður að síðustu dómari vor": Matt. 11, 16—24, 27. Minnist.: 21.
Vei þér, Kórazin! Vei þér, Betsaída! Ef þau kraftaverk, sem í ykkur hafa
gerð verið, hefðu verið gerð í Týrus og Sídon, þá mundu þeir fyrir löngu hafa
iðran gert í sekk og ösku. 27. Alt er mér af mínum föður í valtl geíið, og eng-