Kennarinn - 01.02.1905, Síða 6

Kennarinn - 01.02.1905, Síða 6
14 KENNARINN Jóhannes, og fer upp á hátt fjall, til þess að biðjast fyrir. UMMYDNANIN.—En meðan Jesús er að biðja, ummynd- ast hann. Andlit bans skin eins og sólin og fötin hans verða björt eins og ljósið. MÓSES OG ELÍAS.— Sjá, J)á birtast tveir hinir miklu spámenn gamla testamentisins, Móses og Elías, og tala við Jes- úm. Þeir tala við hann um pislir hans og dauða, sem bráðum eigi fyrir honum að liggja í Jerúsalem. Við þctta vakna læri- sveinarnir. Þeir höfðu sofið meðan Jesús var að biðja; þvi það var nótt. PÉTUR TALAR.—Móses og Elías fara. En Pétur lang- aði til þess að þieir væru kyrrir. Hann hélt, að þeir gætu hjálp- að Jesú að vinna verkið hans. Hann segir: „Það er gott að vera hér, herra. Ef þú vilt, þá byggjum við þrjár tjaldbúðir hér; eina handa þér, eina handa Móses og eina handa Elias. SKÝIÐ OG RÖDDIN.—Meðan Pétur er að tala, kemur bjart ský og hylur þá. Og rödd talar úr skýinu og segir: „Þessi er sonur minn elskulegur, sem eg hefi velþóknun á. Hlýðið þér honum“. En lærisveinarnir verða hræddir og falla niður á ásjónur sinar. JESÚS SEFAR ÓTTA ÞEIRRA.—Þá gengur Jesús til þeirra, leggur höndina á þá og segir: „Risið á fætur, og verið ekki hræddir". Þeir litu þá upp og sáu engan nema Jesúm hjá sér. SKIPAN JESÚ.—Þegar þeir fara niður fjallið, skipar Jesús þeim að segja engum frá því, sem þeir höfðu séð, fyrr en Mannsins sonur sé risinn upp frá dauðum. K/ERU BÖRN! Þegar þið heyrið um ummyndun Jesú á fjallinu, hvernig hann breyttist, og varð allur bjartur eins og ljósið, þá er ykkur sagt frá dýrðinni, sem Jesús er í nú hjá föður sínum. Og ykkur er líka sagt, hvað gott sé að vera hjá Jesú þar í ljósinu. En svo er ykkur lika sagt, að þið fáið ekki að verá hjá Jesú í ljósinu, nema þið breytist sjálí og líkist honum. En til þess að þið breytist og verðið lik honum, þurfið þið að heyra orð Jesú og hlýða honum. Lesið upp og lærið vel allan sálm. 9 új* Barnasálni. r - -«-vVV^-

x

Kennarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kennarinn
https://timarit.is/publication/487

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.