Kennarinn - 01.02.1905, Síða 8
i6
KENNARINN
ráðast á hann, færa hann úr fötunum, særa hann, fara svo frá
honum og skilja hann eftir nær dauða en lífi.
PRESTURINN OG LEVÍTINN,—Þá vill svo til að prest-
ur nokkur kemur þessa sömu leið. En þegar hann sér
særða manninn, lætur hann hann liggja og fer fram hjá. Levíti
nokkur kemur þarna að líka. Horfir á, en fer sömuleiðis frarn
hjá.
SAMVERJINN. — En þá kemur Samverji einn, sem var
þarna á ferð. Þegar hann sér mannaumingjann, kennir hann í
brjósti um hann . Fer til hans, bindur um sár hans, hellir í þau
viðsmjöri og víni, lætur hann svo upp á asnann sinn, sem hann
reið, fer með hann til gistihúss og hjúkrar honum. Næsta dag
heldur hann áfram ferð sinni; en áður en hann fer, tekur hann
upp hjá sér tvo peninga, fær gestgjafanum þá og biður hann að
hjúkra manninum og segir: „Ef þú kostar meiru til, skal eg
borga þér þegar eg kem aftur.“
HVER VAR NÁUNGINN---------Þegar Jesús var búinn að
segja skriftlærða manninum þessa dæmisögu, spyr hann hann:
„Hver af þessum þremur mönnum var náungi mannsins, sem
féll í hendur ræningjunum?“ Hinn svarar: „Sá, sem gerði
miskunnarverkið á honum.“ Jesús segir þá við hann: „Far
þú og ger hið sama“.
KÆRU BÖRN! Þeir voru vondir mennirnir báðir, sem
fóru frarn hjá aumingjanum særða. Þið finnið til þess, og þið
segið það líka öll. En þið segið: Hann var góður, maðurinn,
sem ekki fór fram hjá, heldur hjálpaði. Viljið þið ekki vera
svona góð, aldrei fara fram hjá neinum, sem á bágt og þið getið
hjálpað? Jesús fór ekki fram hjá okkur, heldur kom hann til
okkar til þess að frelsa okkur frá öllu illu, — líka til þess að
frelsa okkur frá vondu hjarta, sem vill fara fram hjá. Biðjið
hann að gefa ykkur gott hjarta, svo þið aldrei farið fram hjá
þeim, sem bágt eiga.
Lesið upp og lærið vcl 9. sálminn i Barnasálm.