Máni - 13.01.1917, Blaðsíða 2

Máni - 13.01.1917, Blaðsíða 2
2 MÁNI V egabréf. Motto: Satt og logið sitt cr hvað, sönnu er bezt að trúa. En hvernig á að þekkja það þegar flestir Ijúga? p. ó Máninn er víðförull. Hann sér margt, og fleira en flestir vita. Enginn veit hvað hann veit. Menn segja að hann sé þögull. En þeim, sem komast á snoðir um alt, og einnig það, sem í þeirra eigin skuggum er hulið, hættir til þess, að eiga erfitt með að leyna vitneskju siuni og fróðleik. Þeim verður eigi all- sjaldan „fótaskortur á tungunni", eigi síður en gömlu konunni á Leiti. Því er öllum vissara, bæði þeim, sem heyra ummælin, og þeim, sem um er mælt, að gjalda varhuga við öllu slíku, og taka sem fæst „eins og gullvægt og gott“. En þrátt fyrir alt þetta er máninn hreinasta gull. Haun er bæði skáld og sagnfræðingur Norðurlanda. Þegar hann fer á fætur standa allir með útbreiddan faðminn, fullan af vonum, til þess að fagna honum. Þegar hann er fullur — því einmitt þá er hann Ijós- lifandi ímynd skáldskapar og vitsmuna — er hann allra yndi. Hann er öllum stundum bjargvættur karl- manna og mundstoð milli skugganna. Hann er íslands skartmesti kvennaljómi, og öllum fremur kvenhollur á kvöldin. Ilann er í orðanna fylsta skilningi heims- barn og barnagull. Þessi nýi máni, sem nú kemur fram á sínum nýárs- himni, á að verða eftirmynd hins alkunna mána, er nú hefir í fám orðum lýst verið. Hann á að reyna að fylgjast með öllum hans einkennum og siðum, tiðum og tíma. Þvi verður hann látinn birtast, sem næst þeim tíma, sem tungl verður nýtt og fuit. Það þykir siðferðislega éðlilegt, eftir atvikum. Og munu flestir elskendur tungls og skjólstæðingar telja það viturlega ráðið, til þess að hann ekki verði til trufl- unar flóði og fjöru, né öðru því, er heimsbarnið, hinn gamli máni, stjórnar með áhrifum sínum, hvort sem er á sjó eða landi. Hann brosir góðlátlega við öllum, og þótt einhver vildi kalla bros hans glott, þá kippir hann sér ekki upp við það, því slík orð hafa verið um hönd höfð um hinn aldna mánann. Og þótt einhver rakkinn skyldi þjóta upp, og geyja að honum háðslega — í meinleysi þó — eins og títt er á beztu bæjum, um konunginn gamla, þá lætur hann sér ekki bylt við verða, en hlær bara enn þá hjartanlegar og hraðar förinni. Hann vill alla gleðja, og hlær þegar að honum er hlegið. Hann veit vel að það er munur á því að segja satt og að segja ósatt. En hann veit jafn vel, að það er ekki heiglum hent, að vita muninn á því, hvað er satt og hvað er ósatt, af því sem sagt er og haft fyrir satt. Því vill hann ekki bera ábyrgð á því, sem hann segir eða honum er sagt að segja. Yerði honum það á, að segja ósatt um málefni eða menn, þá er það auðvitað lygi. Og skyldi hann henda það siys, að segja of-satt frá einhverju eða einhverjum, þá er það líka lygi. Á þetta að jafna sig upp, samkvæmt hans „kokka- bók“, svo útkoman verður heill, hálfur, fjórðungur eða bara eitt stórt núll, með öðrum orðum eins og hver annar máni. Því er hann nú 1 bleki baðaður og skal Máni heita. Að nafnfesti er honum gefið alt það, er hann sér og heyrir. Er hann nú einnig vígður til hins mikla starfs með þjóð vorri, sem hann er kallaður til. Með þessari tvíþættu athöfn er hann friðhelgur ger fyrir öllum og öllu. Ráðherralaunin. í ráði kvað vera að greiða laun hins nýja ráða- neytis í álnum, þannig: Forsætisráðherrann, Jón Magnússon, fær harðfisk allan af Síðunni og æðardún úr Vestmannaeyjum. Björn Kristjánsson fær öll selskinn úr Möðrudal og rostungstennur úr Hafnarfjarðarhrauni. Sigurður Jónsson fær öll vaðmál, sem ofin eru í Surtshelli og hákarl allan úr Skjálfandafljóti. Nú er það vitanlegt öllum mönnum að þetta er ólöglegt, fyrir þá sök, að álnir eru ekki til. Verður þetta því að greiðast i stikum, tugstikum og hund- stikum. En að öðru leyti eru að þessu þægindi mikil, hag- ræði og sparnaður, þar sem iandssjóður losnar við að greiða kaupið í peningum. Aftur munu nú ýmsir líta svo á, sem þetta sé gert til hagsmuna fyrir þá, svo þeir þurfi ekki að kaupa þessa hluti. En hvað sem þvi .líður, þá er landssjóðs- hagnaðurinn bersýnilegur.

x

Máni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Máni
https://timarit.is/publication/492

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.