Mánaðartíðindi kristilegs unglingafélags - 01.03.1900, Blaðsíða 8
24
MÁNAÐARTÍÐINDI.
II. ÁRG.
þótt verið sje að tala um guð, og
standa upp í hárinu á foreldrum sín-
um heima fyrir, ogstríðasmábörnum á
götunni. Þeir eru svo sjálfstœdir að
þeir láta ekki hafa sig ti! neins þess,
sem fullorðna fólkið telur gott og fag-
urt, einkum ef það er eitthvað í átt-
ina til þess að gjöra guðs vilja, en
sna?ir eru þeirað finna upp á að gjöra
það sem fjelagar þeirra telja þeim
trú um, ef það má miður fara. —
Stöduglyndir eru þeir við þessi af-
reksverk og stadfast/r í þvl að gefast
upp eptir viku eða hálfan mánuð, ef
þeir hafa byrjað að læra eitthvað þarf-
legt. Já, þetta eru efnilegir imgling-
ar! Þeir þurfa ekki að verða miklir
menn, því þeir eru þegar orðnir mikl-
ir — — —.
---------
Frá fjelaginu.
Söngflokkurinn kemur saman á
laugardagskvöldum eptir kl. 8 til æf-
inga. Auglýst nákvæmar á fundi.
Bókasafni voru hafa gefizt marg-
ar góðar bækúr í þessum mánuði.
Vér f'ökkum gefendum innilega fyrir.—
Þeir drengir, sem einslega vilja
eiga við mig tal um altarisgönguna,
geta komið til mín á hverju fimmtu-
dagskvöldi frá kl. 8— 10 e. m. Stúlkur,
sem langa til þess sama, geta komið
á sunnudögum kl. j—g. —
Margir af fjelagsbræðrum vorum
eru nú að fara á þilskipin, og ættum
vjer að muna eptir þeim í bænum
vorum. —
IVIunið eptir biblíulestrunum á
þriðjudögunum. Heilmikið af mynda-
blöðum er lagt fram til að skoða,
meðan menn eru að safnast saman.
Barnaguðsþjónustur komnar
á fót í Hafnarfirði. --
I Hafnarfirði eru 19 drengir, sem
hafa tekið sig saman um, að fá byrj-
aðan unglingafjelagskap hjá sjer að
hausti, ef guð lofar, þangað til verða
þeir skoðaðir sem meðlimir unglinga-
fjelagsins í R.vík. —
Ef einhver áskrifandi ekkt
fær blaðið, er það er borið út, bið-
jeg þann vinsamlega, að lofa mjer að
vita af því. —
„EINA L Í F I Ð “ .
Enn þá er nokkur eintök eptir til
sölu hjá tjelaginu.
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
S-j-á-l-f-b-l-e-k-u-n-g-u-r ♦
fundizt. Eigandi vitji til Fr. Fr. Ý
og borgi þessa auglýsing og Ý
fundarlatin. J
:
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
Pappirinn ókominn enn.
Blaðið ábyrgist:
Fr. Friðriksson
cand. þhil.
Grjótagötu 12.
Glasgow-prentsmiðjan.