Tákn tímanna - 15.11.1918, Side 5

Tákn tímanna - 15.11.1918, Side 5
TÁKN TÍMANNA 13 unga manninum að koma inn á skrif- stofuna og lokaði svo dyrunum á eftir þeim. »Hvaða áríðandi erindi eigið þér í þvílíku veðri?« spurði hann vingjarn- lega. »Það voru nokkrar bækur, sem eg keypli hér í vikunni sem leið, og þegar eg kom heim, sá eg að reikningurinn var ekki réttur«, »Nú, svo við höfum þá fengið meira en okkur har að fá«. »Nei, þér hafið fengið 3 kr. of lítið; hér eru þær«. »Það verð eg að segja, að er viðburð- ur, sein eg hefi ekki þekt dæmi til í þau 40 ár, sem eg hefi rekið verzlun- ina. Hver hefir kent yður svo mikla ráðvendni?« »Það gerði móðir mín«. »Drottinn blessi þvílíka móður; en segið mér, því komuð þér þá ekki und- ir eins aftur?« »Það skal eg gjarnan segja yður. Eg á heima nokkuð langt uppi i sveit, en er bókari við verzlun hér í bænum. Einu sinni í síðustu viku, þegar eg fór að borða miðdegisverð á malsöluhúsinu, keypti eg þessar bækur hjá yður á leið- inni, en þegar eg kom til matsöluliúss- ins, lá þar símskeyli til mín þess efnis, að móðir mín væri látin. Og í gær lögðum við hana lil hinnar síðustu hvílu til upprisudagsins«. Rödd unga mannsins tilraði og bók- salanum vöknaði um augu. »Er ekki faðir yðar á líti enn þá?« »Nei, hann dó þegar eg var tveggja úra gamall, svo nú er eg foreldralaus«. »Guð blessi yður, ungi maður. Ráð- vendni þarfnast ekki neinna launa. Hún heíir launin í sér fólgin, og fær þau í blessun frá liæðum. En sem einn af framtíðarvinum yðar bið eg yður að velja yður fimm bækur, sem þér kunnið að þarfnast, úr bókhlöðunni þarna úti, og ef þér mætið einhverjum erfiðleikum, þá reiknið mig sem vin yðar«. Ungi maðurinn þakkaði bóksalanum lijartanlega fyrir vinsemd hans og hlut- tekningu og síðan skildust þeir. Þeir mættust þó rélt ofl á götunni og skröf- uðu saman, svo bóksalinn lékk tæki- færi til að kynnast framlíðarhorfum unga mannsins. Hann tók viðunandi slúdenlspróf og las síðan til lögfræð- ings. Þótt bóksalinn byði honum styrk, vildi hann helzt komast fram úr því sjálfur og með iðni, sparsemi og þeim litla höfuðstól, sem móðir hans hafði látið eftir sig, náði hann með tímanum því takmarki sínu að stofna eigin skrif- stofu. Kvöld nokkurt, þegar hann var kom- inn heim og ætlaði að hvíla sig eftir annir og erfiði dagsins, var dyrahjöll- unni hringt í ákafa. Það var símskeyti frá lækni, sem bað hann um að koma tafarlaust til J. W. bóksala, sem lang- aði lil að sjá hann áður en hann dæi. Hann fór í skyndi til járnbrautarstöðv- arinnar og náði nælurlestinni á síðasta augnahliki. Tveim tímum síðar kom hann til bóksalans, þar sem læknirinn lók á móti honum. »Hann á ekki langt eftir«, sagði hann, »og þráir að fá að sjá yður«. Þegar þeir koinu inn í heibergi sjúkl- ingsins, hrá gleðiblæ á andlit bóksalans, og er þeir tókust í hendur sagði hann : »Eg vissi að þér munduð koma. Lækn- irinn segii' að minn timi sé kominn. Heimkynni mín þar uppi eru tilbúin, Guði sé lof. Það er eins ástatt fyrir mér eins og yður, eg hefi enga ætlingja, og nú vil eg arfleiða yður að liúsi mínu og öllu sein eg á af jarðneskum mun-

x

Tákn tímanna

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tákn tímanna
https://timarit.is/publication/498

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.