Tákn tímanna - 01.11.1919, Qupperneq 5

Tákn tímanna - 01.11.1919, Qupperneq 5
13 TÁKN TÍMANNA hrópa á hjálp; það hafði ekki séð hvað gerðist bak við þokuna. Neyðarópið hafði hreyft móttökutækin í mörgum skípum, þau breytt stefnunni og komið til hjalpar. Alt þetta skeði bak við þok- una. Fyrst þegar þokuna birti sást að meira en næga hjálp var að fá! Þegar ég las þetta, datt mér í hug, hvort vér mundum sjá það, sem gerist bak við þokuna! Hvort vér mundum sjá hvernig himnarnir hrærast þegar vér sendum skeyti þangað upp, sendum vor þráðlausu skeyti! Því heima hjá Guði eru móltökutæki. Hann heyrir bænir. »Ákalla mig í neyðinni og ég mun frelsa þig«. Vér erum svo oft staddir á sökkv- andi skipi. En séu hraðskeylatæki vor í lagi og vér kunnum að nota þau, munum vér ekki farast. Hjálpin mun koma. Enda þótt oft líti svo úl setn bænir vorar séu árangurslausar, þá hrærast þó himnarnir þegar vér þrýst- um á hraðskeytatækin. Vér sjáum það ekki, þokan — efa og vantrúarþokan — umkringir oss, en Guð mun gefa oss heiðskírt veður svo vér sjáum að hann vill frelsa oss. Daníel bað, en það leit út fyrir að Guð heyrði ekki. Hann hélt áfram að biðja. Þá lætur Guð ílytja honum þennan boðskap. »þegar þú byrjaðir bæn þína, út gekk orð, og ég er hingað kominn til að kunngera þér það, því þú ert ástmögur Guðs«. Þegar þú byrjaðir bæn þína! Ekki þá fyrst, er hann hafði lengi beðið. Nei, þegar hann byrjaði bæn sína, strax þegar bænin steig upp til Guðs, bjó hann sig til að svara, en svarið kom ekki strax í ljós. Hjálpin var á leiðinni, en Daníel sá ekkert. Svo lélti þokunni og dagur ljómaði yfir ástmög Guðs. Þannig er það ælíð. Engin bæn er árangurslaus, Guð heyrir hvert andvarp og hann hlustar ekki á það aðgerðalaus. Skovgaard-Petersen. Sjálfsögð skylda. Mörgum þykir mjög gaman að því, að segja það, sem þeir vita að öðrum fellur illa að lieyra. Þetta kalla þeir »að segja meiningu sína« eða »að tala blátt áfram«. Sumir velja því enn virðu- legri orð og kalla það að segja sann- leikann« — alveg eins og sannleikur- inn hlýtur að láta illa í eyrum fyrir það, að vera sannleikur! Er ekki marg- ur sannleikur til, sem er bæði fagur, góður og yndislegur? Ef svo er, hvers- vegna ællum vér þá ekki að reyna að gera aðra liamingjusama með því, að halda því á lopti, sem er gott, í stað þess að flýta oss að koma með alt það leiða, sem vér getum fundið? Mennirn- ir hafa oft meira af sorg en gleði. Það er því blátt áfram skylda vor að reyna að gera eins mikið og vér getum úr öllu því góða, en eins litið og vér get- um úr hinu. Ev. S. Peningar. í sjálfu sér hafa peningar .[ekkert gildi. Þú getur ekki etið þá, ekki drukk- ið þá, ekki klætt þig i þá. Þú rgetur haft fulla vasana af peningum — og þó dáið úr hungri, þorsta og kulda, ef hvorki matur, drykkur eða klæði eru til. Það er langt frá að peningar séu hin æðslu gæði, þeir eru heldur ekki hin

x

Tákn tímanna

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tákn tímanna
https://timarit.is/publication/498

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.