Tákn tímanna - 01.11.1919, Page 7

Tákn tímanna - 01.11.1919, Page 7
TÁKN TÍMANNA 15 hann um leið og hann rétti honum pen- inga sem hann tók upp hjá sér. »En lierra minn, þetta eru 150 mörk«, sagði Róbert alveg frá sér numinn. »Eg veit það«, svaraði kaupmaðurinn, »en í vasabókinni, sem þér funduð voru 20,000 mörk, sem eg hefði mist, ef þér hefðuð ekki verið ráðvandur maður«. »Góða nótt herra minn, Guð launi yður fyrir mig«. Kaupmaðurinn tók undir kveðju hans og gekk svo hugsandi leiðar sinnar. Jóhanna sat í fátæklega kalda lier- berginu og beið komu mannsins. Alt í einu heyrði hún fótatak á tröppunum, það gat ekki verið maður hennar, hann var hæltur að ganga svona léltilega. Dyrunum var lokið upp, þarna stóð Róbert með andlitið ljómandi af gleði og fulla körfu á öxlinni. »Ertu með brauð?« kallaði Hans litli og vonin skein út úr augum hans. ».Já, barnið mitt, bæði brauð sykur og kjöt«. Eg kem líka með kol og við. Ivomdu Jóhanna, við skulum þakka Guði, svo skal eg segja þér alla söguna«. Róbert sagði síðan frá því, sem við hafði borið, að því búnu settust þau að kvöldverði ásamt börnum sínum, öll glöð og hamingjusöm. Næstu viku fengu þau sér betra hús- næði. Róbert vann trúlega fyrir hús- bónda sinn, og kaupmaðurinn var ávalt vinur hans upp frá þessu. Seinna mintist Róbert oft hinnar döpru stundar og hvernig hann þá fekk óvænta hjálp. (Þýtt). Frá trúboðssvæðinu. Þegar eg eftir nær eins árs dvöl flyt frá Akranesi, finn eg mig knúðan til að senda íbúum bygðarlagsins kveðju mína í blaði voru »Tákn Tímanna«. Og eg vil minnast hinna huggunar- fullu orða postulans! »En þakkir séu Guði, sem ávalt gefur oss sigur í Ivrists erindi og lætur hans þekkingarilm al- slaðar af oss útbreiðast«. 2. Kor. 2, 14. Eg minnist með gleði þeirra stunda, er eg var saman kominn með þessum mér kæru í binum litla sal Gamla barna- skólahússins, til að lesa saman með þeim um hinn frelsandi sannleika heilagrar ritningar. Iíæru vinir! mætti yður tileinkast orð vors kæra frelsara: »t*ér rannsakið ritn- ingarnar og það er rétt, því þær eru það sem vitna um mig«. Jóh. 5, 39. »Eg em vegurinn, sannleikurinn og lífið; enginn kemur til föðursins nema fyrir mig«. »Eg em hinn góði hirðirinn og eg þekki mína og minir þekkja inig, eins og eg þekki föðurinn og faðirinn þekkir mig«. Jóh. 10, 14. Mættu þessi lífgandi lífsiris orð Krists fá að þrengja sér að björtum yðar og um fram alt að bera ávöxt til eilífs lífs. Vér lifum á þeim alvarlegustu tímum er saga þessa heims hefir verið skráselt á, óeirð og sundurlyndi fer frá þjóð til þjóðar. Þannig er ástandið á vorum dögum. Er það þá ekki sælt að vera ávarpaður með þessum huggunarorðum af konungi friðar og frelsunar? »Komið til min allir þér sem erfiðið og þunga eruð hlaðnir, ég vil gefa yður hvíld«. Matt. 11, 28. Aldrei hafa orð frelsarans hljómað eins skýrt og nú þessi. Komið ! Hann

x

Tákn tímanna

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tákn tímanna
https://timarit.is/publication/498

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.