Verði ljós - 01.12.1899, Síða 10

Verði ljós - 01.12.1899, Síða 10
186 Hatm, sem ríkir himnum á, lijálp vill sekum heimi tjá, glatast menn ei má hann sjá. Vertu — segjum — velkominn, vin og bróðir, til vor inn, mannkyns ljúfi lausnarinn. Lof sé föður ljósanua lof sé vorum frelsara, lof só helgum huggara. Nú gróa sár, nú þverra þrár, nú þorna tár. W ~ Sp kvcldi arsins. r o 11 i n n! nú lætur ]rú Jjjón þinn fara burt í friði, eins og þú hefir sagt; þvi að augu mín hafa litið hjálprœði þitt“ (Lúk. 2, 29—30). Arið líður óðfiuga áfram. Og eins og árið líður, þanuig líður og lífið. Hið útlíðandi ár prédikar fyrir oss um hverfleika lífsins. Hárri raustu kallar það til vor: Eilífðin nálgast, gröfin nálgast, brottfarar- stundiu nálgast. Gestir og útlendingar eruð þór hér á jörðunni og varati- logan sainastað hefir enginn yðar hér. „Mönnunum burtskolar þú, eins og draumur eru þeir“, segir sálmaskáldið — já, oss skolar öllum hurt. En hvert og hvernig ? Sæll er sá, er með gamla Símeon get.ur sagt af hrærðum anda: „ÍJrottimi, nú lætur þú þjóu þinn fara hurtu í friði“. Hver getur í friði farið gegn um dauðans dyr? Ekki sá, er álítur, að öllu sé lokið ineð dauðanum. Sú hugsun gæti gert manninu ærðan, ef hann hugleiddi liana út f æsar. Svo hræðileg er húu, að jafnvel spottarar og guðneitendur verða fegnir að heyra talað um ódauðleika og endursamfuudi, er þeir st.anda yfir líkbörum ástvina sinna. Ekki geta þeir heldur farið burtu 1 friði, sem að eins geyma í brjósti sér einhverja óljósa von um alt þetta, eiuhverja von, sem ekki á við neitt ann- að að styðjast eu, að þeir óska þess, að svo megi vera. Hugboð um þetta stoðar ekki lieldur, það er vissan ein, sem hér fær nokkra hugg- un veitt. „Spyrjir þú mig, hvaðan óg komi, þá svara óg þér: ég veit það ekki! Og spyrjir þú mig, hvert ég fari, þá veit ég það ekki. En ég lít himininn f'ullau af stjörnum, og hjörtu mannanna full af eftirvæut- ingu“. Þaunig hefir einn af spekingum heimsins talað og orðin eru vissulega fögur og hrífandi, — en til þess að öðlast friðinn þarfnast oinhvers meira en eintóms liugboðs. Ekki geta þeir heldur farið burtu í friði, sem að söunu eru sannfærðir um, að til sé himnaríki og helvíti, en hvað sjálfa þá snortir, segja: „Hvort leið mín liggur til himnaríkis eða helvítis, um það er mér ókunnugt, ókomni tíminu mun leiða það í ljós“. — Það þarf til þess annað meira.

x

Verði ljós

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.