Verði ljós - 01.04.1903, Qupperneq 15

Verði ljós - 01.04.1903, Qupperneq 15
VEUÐI LJÓS! m ið afskiftaleysi, sé alls ekki að lcitaí vautrú einni eða vondum vilja þessara manna, heldur með fram hjá kirkjunni sjálfri þ. e. kirkjunnar inönnum. Þeir kvoði í prédikunum sínum upp rangláta dóma, leiðiulega sleggju- dóma um mentalíf nútímans, þeir hafi ýmigust á öllum siðbótakröfum tímans og óbeit á öllum vísindalegum rannsóknum, og séu hræddir við þær; alt þeirra tal og hugsunarháttur sé fóstur löngujiðiuua tíma. Þar sem menningunni hofir fleygt fram ár frá ári, hefir kirkjan látið staðar nema við hina orþódoxu trúfræði 17. aldarinnar og lífs- „ideal“ píetistanna á 18. öld. Gamla orþódoxa trúfræðin er sprottin fram af hugsunarhætti, sem er svo gaguólíkur hugsunarhætti vorra tima, að nútíminn getur hvorki skilið hana né felt sig við hana. Þess vegna haía menn svo mjög fjarlægst kirkjuna á síðari tímum. Kirkjan hefir sjálf gjört þá leiða á sór með því að ávarpa þá á máli, sem þeir alls ekki skildu. Hvernig á kirkjan nú að snúa sér í þessum vanda ? Klaveness svarar hér um bil á þessa leið: Vér verðum að flytja mönnunum fagnaðarerindið á þann hátt að tímans börn skilji oss og í þeim búningi, að þau geti tileinkað sór það. Vér verðum vandlega að athuga, hver skilyrði þessir meun hafatilþess að gota tileinkað sér trúarleg sanniudi. „Skilyrðin eru nú ekki mörg“, segir liann; „mætti ekki taka dálítið tillit til þess? Væri ekki heppi- legra að eiuskorða boðun faguaðarerindisins við t. a. m. nýja testa- mentið eitt, eða jafnvel við kristindómsboðskap þriggja fyrstu guðspjall- anna, heldur en að bera á borð fyrir menn heilt trúfræðikerfi, ávöxt guðfræðilegrar íhugunar margra alda ? Með því væri tekið tillit til þarfa tímans eins og hann er. Muudi það ekki vera leyfilegt eða í anda Jesú? Mundi ekki millígram (þúsundasti partur úr grammi) trúar- legs sanuleika, lifandi tileinkað, verða þyngra á metunum en strákeilt lærdómskerfi, sem fæstir geta botnað í eða tileinkað sór ? Hvað eigum vór að pródika fyrir þessari kynslóð, sem audvarpar undir fargi orsakalögmálsins? Eigum vór að pródika fyrir þeim, að oymd kynslóðarinnar eigi rót sína að rekja til syndar Adains, sem Guð tilreikni þessari kynslóð, en að guð hafi tilreiknað Kristi syndasekt Adams og allra manna og að Kristur hafi tekið hana á sig og bætt fyrir hana með því að taka á sig hegninguna og uppfylla lögmálið i vorn stað? Hvað sem menu annars vilja segja um alt þetta kerfi af tileinkunum og tilreiknuuum, verður þó hver maður að játa, að það er ekki einfalt. Nei, vór verðum að flytja tímans böruum fagnaðarerindið eins einfalt og óbrotið og Jesús fiutti bændunum í Galíleu það. Aðal- efni prédikunarinuar verður þá, eftir kenningu Klaveness, í fæstum orðurn þetta: Guð er faðir yðar, heilagur faðir, sem vill, að þér verðið fullkomnir, en jafnframt ástríkur faðir, sem fyrirgefur fúslega þeim er iðrast, og blessar margfaldlega þá, er hlýðnast boðum lians. „Þetta er evangolíum Jesú“, segir Klaveuess, „sem hann pródikaði með muuni

x

Verði ljós

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.