Verði ljós - 01.04.1903, Blaðsíða 16

Verði ljós - 01.04.1903, Blaðsíða 16
64 VERÐI LJÓS! sínum og Hfi sínu og innsiglaði með blóði sínu á krossinum, og sém faðirinn hefir innsiglað með upprisu hans frá dauðum11. Sérstaklega finnur Klaveness að þvi, hve mikla áherzlu menn leggi á syndaeymdina í prédikun nútímans, en gleymi svo allri annari eymd í heiminum, og hversu menu leitist við að vekja syndameðvit- undina með því að halda fram trúarsetningunni um algjöra spillingu manneðlisius og gjöri þessa tilfinningu fyrir syndaeymdinni hjá sjálfum oss að sáluhjálparskilyrði. Þetta telur Klaveness rangt. Yér verðum að halda oss við veruleikanu, benda á verulegar syndir og brot, benda á lögmálið, á verkefni þau sem guð hefir fengið mönuuuum að leysa af hendi. Með þvi að halda á lofti hinni siðferðilegu hugsjón getum vér vakið syndarviðurkenninguna hjá tímans börnum. En fyrst og síðast eigum vór að prédika fullkomna syndafyrirgefningu fyrir alla þá, sem vilja gjöra guðs vilja og því iðrast synda sinna. Þetta er í höfuðdráttunum það sem Klaveness álítur, að nútíminn þarfnist og sem því verður að heimta af pródikun uútímans. — En er þetta framkvæmanlegt ? Geturn vér yfir höfuð varið það að taka upp slíka prédikunaraðferð ? Þýzku prelátarnir í Lundi, sem hlustuðu á Klaveness, er hann flutti þetta erindi, svöruðu spurningu þessari harðlega neitandi. Og nú hefir gamla kristindómsstefnan norska svarað henni fyrir sitt leyti og svarið er harla ákveðið n e i. En maðurinn, sem hér hefir svarað fyrir hennar hönd, er euginn annar en biskupinn i Kristjánssaudi, J. C. Heuch. Og svarið birtist í riti, sem hann gaf út í haust eð var og nefnist „Móti straumnum11 („Mod Strömmen11) — eldheitu sóknar- riti, þar sem með mikifli mælsku og þaðau af meiri gremju er ráðist á alt hið nýja, sem komið hefir fram innan norsku kirkjunnar á siðari árum, en jafníramt með þeirri óbilgirni í garð nýju stefnunnar og þvi skilningsleysi á markmiði hennar, að búast má við að höggið, svo hátt sem það er reitt, verði ekkert annað en vindhögg. Vór skulum nú í næsta blaði skýra stuttlega frá efni bókariuuar og þeim viðtökum, sem hún hefir fengið. Hjá öllum bóksölum landsins fásti PRÉDIKANIR á öflum sunnu- og helgidögum kirkjuársins. Höf- undur: Helgi Hálfdánarson, lector theol. Búið hefir til prentunar sonu.i höfundarins Jón Helgason, prestaskólakennari. YIII -f- 495 bls. ístóru 8vo með mynd höfundarins. Verð : óinnb. 3 kr. 85 a., i velsku bandi 5 kr. 35 a. i skrautbandi 5 kr. 50 a. og 6 kr. Fólagsprentsmiðjan. I TJtgefondur: Jón Helgason, prestaskólakennari, og Haraldur Níelsson, kand. í guðfræði. Beykjavik — Félagsprentsmiðjan.

x

Verði ljós

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.