Trú - 01.05.1904, Síða 6
22
T R Ú .
kraftur streymir yfir þá menn, sem ganga á slíkum vegi. Þeir
eru ríkulega blessaðir með því, að hlýðnast Guði í öllum
hlutum. fí»ýtt úr ensku].
Svertinginn.
Frásaga frá þeim tíma, sem þrælasalan átti sér stað í Norður-Ameríku].
[Niðurl.]. „Við förum ekki langt, því eg hef verzlun
niína hér í borginni, og eg hef komið því þannig fyrir, að
konan þín og börnin verða með þér".
„Guð veri lofaður fyrir þetta", sagði Móses. „En má eg
fá leyfi til að fara á bænasamkomur einstöku sinnum?“
„Já, Móses, þú mátt fara þrisvar sinnum á sunnudögum,
og á hverju kvöldi í vikunni. Þú getur beðið til þíns Guðs,
og verið svo glaður í Drottni þínum, eins og þú vilt fyrir mér,
og í hvert sinn, sem þú biður til Guðs, hvort heldur það er
heima hjá þér eða annarsstaðar, þá bið þú fyrir mér, konu
minni og börnum; ef þú ert rétttrúaður maður, þá gera þínar
bænir ekkert ilit, heldur þvert á móti gott“.
En á meðan Móses hlýddi a alt þetta, sem hr. B. sagði,
vakti það innilega gleði hjá honum, og augu hans tindruðu.
Hann hló svo hátt og dátt, sem svertingjum er tamt, þegar
þeir verða fyrir mikilli gleði, og sem enginn getur lýst rétt,
nema sá sem þekkir þá.
Og hann hrópaði hátt og sagði: „Dýrð sé Guði! Dýrð
sé Guði, ætið og um eilífð! Eg þakka fyrst mínum Guði
fyrir, að hann hefir gefið mér þennan nýja húsbónda, og þar
næst húsbónda mínum fyrir alla hans velvild, sem hann liefir
sýnt mér, konu minni og börnum. Aldrei hafði eg vonazt
eftir svo góðu hér á jörðu. Það er alveg eins og sú tign,
sem Jósep hlaut forðutn í Egyptalandi, eftir að honum hafði
verið kastað í fangelsi af Phótifar, eigi nú að hlotnast mér“.
Eftir að Móses hafði lagt blessun sína, yfir sinn gamla
húsbónda og kvatt hann, fór hann með sínum nýja húsbónda
til hans heimilis.