Vörður - 01.05.1918, Qupperneq 6
62
VÖRÐUR
kaup frá 700 kr. og upp í 1500 kr. Farandkennarar til
sveita fá venjulega alt frítt og 10 til 12 kr. á viku.
í barnaskólunum i kaupstööunum, þeim sem bestir eru
aö minsta kosti, finst Ögmundi kennara aö fult eins
mikiö muni lært á því fjögurra ára aldursskeiöi, sem
kenslan nær yfir, og hér á sér staö. Hann dáir kensluna
hér í barnaskólunum upp aö ellefu ára aldri. Eftir þaö
finst honum hún vera síöur til fyrirmyndar. Þegar er
börn á íslandi eru komin í gegn um barnaskólann, þó
námstími sé ekki lengri en þetta, finst honum aö fult
eins mikillar vakningar verði vart hjá þeim og hér á
sér staö.
Alþýöufræðslan er eitt afar mikilsvert undirstööuatriði
í lífi hverrar þjóöar. Alment er hún í mentalöndunum
komin á margfalt hærra stig en hún hefir nokkuru sinni
áöur veriö. Samt kemur öllum saman um, aö samkepnin
meö þjóðunum i þeim efnum veröi margfalt meiri, þegar
þessari styrjöld lýkur, en áður hefir veriö. Eins og nú
er ástatt, .fær engin þjóð staðið annari á sporði, nema
séö sé um, aö alþýðufræðslan sé í besta lagi. Á öllum
svæöum veröur hér eftir í frekari skilningi en nokkru
sinni áöur spurt eftir verkhæfasta manni. Og verkhæf-
astur verður sá, sem mest kann og mest veit, flest skilur
og best hefir æft hönd og huga undir urnsjón og tilsögn
góöra og vakandi kennara.
Alþýðufræðsla íslands þarf að veröa eins fullkomin
og best gerist í mentalöndunum, eigi það aö geta haldið
sér í samkepninni."