Væringi - 12.03.1918, Side 1

Væringi - 12.03.1918, Side 1
+ 7ÆRINGI + ■*»K® Gefinn út til stuðnings Skátahreifingunni. 1. tbl. Akureyri, þriðjudaginn 12. marz 1918. 1. órg. IIII•M•■I•II•••II|••I• IHIIIII ■llll■••IIU•••IIMII•IIIIIIIIMII■lll•llr•ll•lllr•••MMCnBM•••M■•■tM■•l•lll«l•ll•l•l•l•Mltt•••l•l•••*•l •«•••■ •l||lll|11 II •••• MMII •■ |l|ll|||||,l,,,ll|M«||,l,n|ir|,,,|IIM|,|,l •*•**• 7/7 lesendanna. »Væringi« litli kemur nú í fyrsta sinn. Vonurn við að honum verði svo vel tekið að hann geti látið sjá sig aftur. Hann á ekki að verða pólitiskt blað, heldur ætlar hann aðeins að ræða mál, sem viðkoma Skátafélögum og stefnu þeirra. Fúslega verður tekið á móti öllum góðum og gagnlegum leiðbeiningum í þessa átt, sem kynnu að koma í framtíðinni. Litlurn auglýsingum verður fúslega veitt móttaka, því þær styrkja útgefendurnar til að kosta út- gáfu blaðsins. Vonum við að lesendur »Væringa« virði það til vorkunar þó hann sé dýr, en þeir eru beðnir að athuga, að hugir manna hneigjast smátt og smátt meira og meira að uppeldi barnanna, og Skátafélög- in hafa verið stofnuð um heim allan í þeim til- gangi að undirbúa unglingana undir lífið, reyna að hjálpa þeim til að styrkja hinn andlega og líkamlega þroska sinn, svo þeir geti tekið á móti því, sem að höndum ber á lífsleiðinni, eins og vera skal. Með því að kaupa blaðið fá menn tækifæri til að kynnast uppruna, viðhaldi ogtilgangi Skátafélaganna. Það eru ekki eingöngu þeir menn Skátar, sem eru í Skátafélögunum, heldur allur sem lifa lífi sínu eins og Skátalögin krefjast. — Með þeirri sannfæringu að »Væringi» berjist fyrir góðu málefni, hefur hann göngu sína. hi, sem allir Skátar eiga að Yita. Það fyrsta, sem allir Skátar eiga að vita eru, Skáta- lögin. Þau eru svona: 1. gr. Skáti segir ávalt satt og gengur aldrei á bak orða sinna. 2. — Skáti er tryggur. 3. — Skáti er hæverskur í hugsunum orðum og verkum. 4. - Skáti er hlýðinn. 5. - Skáti er glaðvær. 6. - Skáti er þarfur öllum og hjálpsamur. 7. — Skáti er drengilegur í allri háttsemi. 8. — Skáti er sparsamur. 9. - Skáti er dýravinur. 10.- Allir Skátar eru góðir lagsmenn. Skátari Það er ekki nóg að þið með því að þylja lögin ykkur, sýnið að þið kunnið þau. Þið verðið að sýna í verkinu að þið kunnið þau og farið eftir þeim. Hjálpið hver öðrum að halda þau og ieið- réttið hógværlega hver aunan þegar þess þarf. Of- mikið má ekki heimta af ykkur í fyrstu, en eitthvað verður að heimta ef að takmarkinu á að ná. S. M. Nöfnin. (Skáti - VseringiJ Það munu vera fjölmargir hér í bæ, sem villast á nöfnunum Skáti og Væringi af þeirri orsök að Skáta- félagið hér heitir »Væringjafélag Akureyrar.« Nafnið Væringi (þ. e. hermaður) er komið til af því,að í Rvík. var félag er nefndist »Væringjafélag«, sem síra Fr. Friðriksson stofnaði og var formaður fyrir, það félag hafði svipaða stefnu og Skátafélögin, en svo sameinuðust félögin fyrir skömmu og »Vær- ingjar* tóku upp búning skátanna (áður höfðu þeir forníslenzkabúninginn) og sömdu sig að lögum þeirra. — Svo þegar félagið var stofnað hér, var fyrst í í ráði, að láta það taka upp búninga »Væringafélags- ins«, og var látið bera nafn þess. Stuttu á eftir var þessu þó breytt, og félagið gekk í samband við Skátasamband íslands og tók upp lög þess og bún- ing. En samt sem áður var það Iátið halda nafninu »Væringjafélag Akureyrar«

x

Væringi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Væringi
https://timarit.is/publication/521

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.