Væringi - 12.03.1918, Blaðsíða 2

Væringi - 12.03.1918, Blaðsíða 2
2 VÆRINGI 1. bl, HIMMÍI £9 V æ r i n g i kemur út þegar tækifæri gefst og kostar 10 aura eintakið. Aðeins selt í lausasölu. Ritstjórar og útgefendur 5. Magnússon og St. Sigurðsson. Af framanrituðu ætti mönnum ekki að blandast hug- ur um það, að félagið hér er Skátafélag þótt það beri sérnafn. 5. 5. Skátabúningurínn. Rað er vanalegast hér í bæ, að Skátarnir séu að- eins í búningum sínum á æfingum félagsins (auð- vitað til undantekningar). — Mér finst það ætti alls ekki að eiga sér stað, að Skátarnir væru í öðrum búningum hvar sem helst er og ekki sízt í fjölmenn- um samkvæmum eða öðrum mannamótum. Eg álít því, að foreldrar þeir, sem drengi eiga í Skátafélag- inu, gerðu réttast í að koma þeim alls eigi upp öðr- um fötum en Skátabúningum. — Skáti er Skáti og það á að sjást bæði í framkomu og búningi. Skátabúningarnir eru líka langt frá því að vera dýrari en önnur klæði, en langt um ódýrari 25 — 30 kr. búningurinn, sem fer þó auðvitað eftir því^ hvar, hvenær og hvemig efni er tekið í þau. — En eitt er víst að verðið getur alls ekki orðið til að fæla frá að kaupa Skátabúninginn frekar en önnur föt. S. S. Það, sem Skáti œtti ekki að gjöra er að hæðast að öðrum, hvorki félagsbróðir sínum eða öðrum úti í frá, þó eitthvað sé athugavert við þá, því hæðnin getur oft verið eins sár og hárbeitt sverð. Hún getur jafnvel sært svo fínustu tilfinn- ingar að þær grói seint eða aldrei aftur. aö að hafa hávaða í frammi úti á götum eða mann- fundum, því það kastar óorði, bæði á mann sjálf- an og félag hans. að felia aldrei dóm yfir aðra, því það er ósiður sem engum heiðarlegum manni sæmir. — »Guðs er eins að dæma.« að ef maður hefir gert eitthvað, sem órétt er, þá að bera á móti því og margfalda þannig afbrot sitt með lýgi. S. S. Hitt og þetta. Kappglímur um verðlaunagripi U. M. F. A. voru háðar á sunnudagskvöldið var. Um Akureyrarskjöldinn glímdu 5 menn. Hlut- skarpastur varð Garðar Jónsson með 4 vinninga. Um GuIIpeninginn glímdu 5 unglingspiltar. Hlut- skarpastur varð Árni Valdemarsson með 4 vinn- inga. Um Silfurpeninginn glímdu 6 drengir. Hlutskarp- astur varð Agnar Gíslason með 5 vinninga. Bændaglíma var háð á eftir kappglímunum. Húsið var fult og skemtu menn sér vel. Glímur eru fögur íþrótt og alíslenzk. Heill þeim, sem styðja karlmannlegar íþróttir. Spakmæli (þýdd). Vertu ánægður með það sem þú átt, en ekki með það sem þú gjörir. Sem Skáti og sem' maður, — vert þú eins fullkom- inn og þú getur. Þeir menn, sem altaf eru reiðubúnir til að fórna hinum síðasta blóðdropa, eru vanalega sparsamari á þeim fyrsta! Skátaæfing annaðkvöld í Barnaskóla Akureyrar kl 7. Allir félagsmenn ættu að mæta bæði þá og endrarnær. Drengir! Gangið í Skátafélagið. í næsta blaði byrjar mjög skemtileg og fræð- andi Skátasaga. Einnig verður byrjað á sögu Skáta- hreifingunnar, uppruna hennar og útbreiðslu. Grein- ar með fyrirsögnunum; »Það sem allir Skátar eiga að vita.« og »Rað sem Skáti ætti ekki að gjöra.« munu halda áfram fyrst um sinn. Utanhéraðsmenn og þeir hér á Akureyri, sem ekki hafa fengið blaðið, geta fengið það keypt á prent- smiðju Björns Jónssonar Norðurgötu 17. Prentsmiðja Björns Jónssonar. 1918.

x

Væringi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Væringi
https://timarit.is/publication/521

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.